Iðnaðarráðherra leggur fram orkumálafrumvarp 26. febrúar 2008 16:01 MYND/GVA
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra lagði í dag fram frumvarp sitt um orkumál á Alþingi en nýlega tókst samkomulag á milli stjórnarflokkanna um efni þess. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu að því sé ætlað að setja reglur um eignarhald auðlinda í opinberri eigu og skýra mörk samkeppnis- og sérleyfisþátta í starfsemi orkufyrirtækja. Það er gert til þess að tryggja að öll mikilverðustu vatns- og jarðhitaréttindi sem nú eru í eigu ríkis eða sveitarfélaga, beint eða óbeint, haldist áfram í eigu þessara aðila. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að í þeim tilvikum þar sem starfsemi dreififyrirtækja og hitaveitna byggist á sérleyfum verði eignarhlutur opinberra aðila að minnsta kosti 2/3. Bent er á að þrír fjórðu af allri frumorkunotkun Íslendinga sé nú mætt með orku frá innlendum, endurnýjanlegum orkulindum en samkvæmt lögum er heimilt að einskorða leyfi fyrir virkjunum til raforkuvinnslu við endurnýjanlegar orkulindir. Verðmæti hreinna orkugjafa á eftir að aukast Enn fremur er bent á að ljóst sé að verðmæti og mikilvægi hreinna orkugjafa sé stöðugt að aukast, ekki síst með tilliti til mikilvægis þeirra til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum. „Þá hafa íslensk stjórnvöld undirgengist að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda en eitt mikilvægasta tækið í því sambandi eru möguleikar Íslendinga til að nýta endurnýjanlegar orkuauðlindir sínar í því skyni. Ljóst er að miklir þjóðhagslegir og samfélagslegir hagsmunir tengjast eignarhaldi og nýtingu orkuauðlinda landsins og því er mikilvægt að þær verði áfram í samfélagslegri eigu," segir í athugasemdunum. Þar er einnig bent á að unnið sé að gerð Rammaáætlunar um verndun og nýtingu náttúrusvæða þar sem leggja eigi mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita. Á grundvelli þeirrar vinnu verði mörkuð stefna um nýtingarhraða og röð virkjunarkosta í þeim tilgangi að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlindanna. Opinbert eignarhald á auðlindum auðveldi framkvæmd slíkrar stefnumörkunar. Fyrirtækjaaðskilnaður í stað bókhaldslegs aðskilnaðar Í frumvarpinu er lagt til að í stað bókhaldslegs aðskilnaðar komi fyrirtækjaaðskilnaður hjá orkufyrirtækjum sem bæði stunda samkeppnisstarfsemi og starfsemi sem háð er sérleyfum. Þetta þýðir að sérleyfis- og samkeppnisþættir skuli reknir hvor í sínu fyrirtæki. „Er þessi stefna mörkuð til að tryggja jafnan aðgang framleiðenda að flutnings- og dreifikerfum raforku og koma í veg fyrir samkeppnishindranir sem kunna að leiða af því að sérleyfis- og samkeppnisstarfsemi er á sömu hendi. Samkeppniseftirlitið hefur bent á að taka þurfi til umfjöllunar á vettvangi orkufyrirtækja og stjórnvalda að skilja með skýrari hætti milli einkaleyfis- og samkeppnisþátta raforkumarkaðarins, þ.e. flutnings og dreifingar annars vegar og framleiðslu og sölu hins vegar. Að mati Samkeppniseftirlitsins væri í bestu samræmi við markmið samkeppnislaga að skilja að eignarhald samkeppnis- og einkaleyfisþátta, en að lágmarki að skilja þessa starfsemi að í sjálfstæðum félögum," segir enn fremur í athugasemdunum.
Mest lesið Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Fleiri fréttir Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Sjá meira