Óljóst hver skuld íslenska ríkisins er við Impregilo 25. febrúar 2008 16:15 MYND/GVA
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir ráðuneyti hans nú kanna hver skuld íslenska ríkisins sé við ítalska verktakafyrirtækið Impregilo í ljósi nýfallins dóms vegna málsins. Ráðherra segir einnig að kanna þurfi hverjir standi á bak við skattskuldina. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, fjallaði um framkvæmdir við Kárahnjúkavirkju og eftirlit stjórnvalda varðandi erlent vinnuafl og skattgreiðslur í fyrirspurnartíma í dag. Benti hann á að veturinn 2003-2004 hefði hann spurt þáverandi fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, um það hver væru álitamálin varðandi skattalega meðferð mála í tengslum við Kárahnjúkavirkjun. Ráðherra hefði svarað því til að engin sérstök álitamál væru fyrir hendi. Hann hefði svo endurtekið fyrirspurnina nokkrum sinnum á þingi og alltaf fengið sama vitlausa svarið. Nú hefði ríkið hins vegar klúðrað innheimtu á sköttum á þann hátt að það skuldaði ítalska verktakafyrirtækinu 1,2 milljarða og greiddi eina milljón króna í dráttarvexti á dag vegna þess. Vísaði Steingrímur þar til dóms Hæstaréttar sem komst að því að Impregilo hefði ekki átt að greiða skatta af launum portúgalskra starfsmanna starfsmannaleignanna Select og Nett. Spurði hann fjármálaráðherra hvernig tekið yrði á þessum málum. Árni M. Mathiesen sagði niðurstöðu Hæstaréttar hafa verið aðra en ríkisskattstjóra en Hæstiréttur hefði lokaorðið í málinu. Þá benti hann á að í fjármálaráðuneytinu hefðu menn talið sig vera í viðræðum um að ljúka þessu máli gagnvart Impregilo en lögmaður félagsins hefði svo þingfest mál á hendur ríkinu. Sagði Árni að fyrirtækið þyrfti að sanna að það hefði raunverulega innheimt þessa fjármuni og þá þyrfti að greina hverjir stæðu á bak við skattskuldina. Sagði hann unnið að málinu í fjármálaráðuneytinu og hagsmuna ríkisins væri gætt. Steingrímur J. benti á að fjármálaráðuneytið hefði nú gefist upp og viðurkennt mistök sín. Þá sagði hann það undarlega hagsmunagæslu að borga eina milljón króna á dag í dráttarvexti og spurði ráðherra af hverju ekki væri greitt inn á skuldina til þess að lækka dráttarvaxtakostnaðinn meðan unnið væri í málinu. Árni Mathiesen sagði að ef hann myndi rétt snerist dómurinn ekki um upphæðir og áður en hægt væri að greiða skuldina þyrfti að komast að niðurstöðu hver hún væri.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira