Fleiri fréttir

Segja sátt um hlutverk Vinnumálastofnunar brostna

Stjórn Starfgreinafélagsins AFLS boðar harðari vinnubrögð á vinnumarkaði og mögulegar vinnustöðvanir vegna ummæla forstjóra Vinnumálastofnunar um að félagið væri ekki sinna sínu starfi. Stjórnin segir að sátt um hlutverk Vinnumálastofnunar á vinnumarkaði sé brostin.

Uppgjöf sjálfstæðismanna í málefnum leikskólanna

Borgarfulltrúi Samfylkingar segir sjálfstæðismenn hafa gefist upp á að leysa vanda leikskólanna. Einkavæðing þeirra sé ekki lausnin við vandanum heldur þurfi að endurskoða launakjör leikskólastarfsmanna.

Norðurál vill kaupa orku Þjórsár

Norðurál hefur óskað eftir því við Landsvirkjun að fá að kaupa tvo þriðju af orku Þjórsárvirkjana til fyrirhugaðs álvers í Helguvík. Þetta myndi hraða uppbyggingu álvers þar en um leið útiloka möguleika Alcan á næstu árum til að stækka í Straumsvík eða að reisa nýtt álver suðvestanlands.

Messa á Íslandi til minningar um Pavarotti

Sungin verður sérstök sálumessa til minningar um stórsöngvarann Luciano Pavarotti í Landakotskirkju næstakomandi mánudag. Fyrir messu flytja Sigrún Hjálmtýsdóttir, Pamela De Sensi, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Leone Tinganelli lög úr ítölskum óperum.

Stjórnvöld ítrekað gert starfsmenn Vinnumálastofnunar ómerka

Stjórnvöld sýna fyrirtækjum sem brjóta á réttindi starfsmanna allt of mikla linkind að mati formanns Rafiðnaðarsambands Íslands. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt er á heimasíðu sambandsins. Hann segir stjórnvöld ítrekað hafa gert starfsmenn Vinnumálastofnunar ómerka þannig að þeir veigri sé nú við að vinna störf sín.

Langar biðraðir við sölustaði Bæjarins bestu

Fleiri hundruð manns eru nú við pylsuvang Bæjarins bestu í miðbæ Reykjavíkur til að kaupa pylsu og kók á tuttugu krónur. Biðröðin nær frá pylsuvagninum alla leið að Lækjargötu. Eigandinn segist vera mjög ánægður með móttökurnar.

Ráðist á aðstoðarlögreglustjóra í miðborginni

Ölvaður maður réðst að Herði Jóhannessyni, aðstoðarlögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins, á meðan hann var við eftirlit í miðbænum í nótt. Í fylgd með Herði voru þeir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, Jón HB. Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn. Saman tókst þeim að snúa manninn niður.

Dýrt að pissa í Reykjavík

Alls voru tuttugu og tveir einstaklingar sektaðir fyrir að kasta af sér hlandi á almannafæri í miðborginni í nótt. Mennirnir voru allir færðir á lögreglustöð og gert að greiða sekt.

Bílvelta við Blönduós

Flytja þurfti unga stúlku á sjúkrahúsið á Blönduósi eftir að bíll sem hún ók valt við bæinn Húnsstaði sunnan við Blönduós um klukkan ellefu í morgun. Ekki er talið að stúlkan hafi slasast alvarlega. Þá fór bíll útaf veginum við Langadal laust eftir klukkan níu í morgun.

Lítil þungmálmamengun í sjónum umhverfis landið

Mengun þungmálma í hafinu umhverfis landið er almennt vel undir alþjóðlegum viðmiðunarmörkum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Matís um breytingar á lífríki sjávar við landið. Hár styrku kadmíns við landið er talinn eiga sér náttúrulegar orsakir.

Fjórir sérsveitarmenn við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt

Aukin sýnileiki lögreglu í miðbæ Reykjavíkur í nótt hafði jákvæð áhrif á ástandið að sögn Jóns Bjartmarz, yfirlögregluþjóns hjá embætti ríkislögreglustjóra. Fjórir sérsveitarmenn og fimm lögreglumenn úr liði höfuðborgarlögreglunnar voru við eftirlit og löggæslu í miðborginni í nótt til viðbótar þeim lögreglumönnum sem almennt sinna þessu eftirliti.

Áfengisreglur brotnar á veitingastöðum

Óeinkennisklæddir lögregluþjónar voru á ferð í miðborg Reykjavíkur í nótt. Voru mennirnir meðal annars að fylgjast með því að veitingastaðir færu að settum reglum. Mikið var um að fólk labbaði út af stöðum með áfengi í glösum að sögn lögreglu.

Ráðist á pilt fyrir utan skemmtistað á Selfossi

Fimmtán ára piltur hlaut töluverða höfuðáverka eftir að tæplega tuttugu ára karlmaður réðst á hann fyrir utan skemmtistaðinn Kaffi krús á Selfossi um tvöleytið í nótt. Lögreglan kom á vettvang skömmu síðar og fylgdi piltinum á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem sauma þurfti nokkur spor á höfði hans.

Eldur í fjölbýlishúsi í Njarðvík

Fjölbýlishús að Brekkustíg 31 C í Njarðvík er mikið skemmt eftir að eldur kom þar upp rétt eftir miðnætti í nótt. Íbúar hússins voru allir komnir út þegar lögreglan og slökkvilið kom á vettvang.

Lögreglan leysir upp unglingagleðskap í Garðabæ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gær unglingapartý í Garðabæ eftir að húsráðandi hafði óskað eftir aðstoð hennar til leysa upp gleðskapinn. Unglingurinn á heimilinu hafði boðið nokkrum vinum sínum í partý en fljótlega fylltist húsið af óboðnum gestum.

Ofurölvi á felgunum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ölvaðan ökumann á Strandgötu í Hafnarfirði. Maðurinn ók um á loftlausu dekki á móti einstefnugötu og var ekki með ökuskírteini.

Fjórir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Fjórir voru fluttir á slysadeild í gærkvöldi eftir harðan árekstur tveggja bifreiðar á Hringbraut við Birkimel. Fjölmörg vitni gáfu sig fram og bar öllum saman um að annarri bifreiðinni hafi verið ekið á miklum hraða.

Réðust á mann með golfkylfu og piparúða

Mjög erilsamt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og var mikið um ölvun og almenn ólæti í miðborginni. Fangageymslur fylltust og þurfti lögreglan að rýma til svo fleiri kæmust að. Einn maður fannst rotaður í Hafnarstræti og þá var ráðist á mann með golfkylfu og piparúða við Broadway.

Harður árekstur á Hringbraut

Tvær bifreiðar lentu harkalega saman á Hringbraut rétt hjá Birkimel laust eftir klukkan tíu í kvöld. Lögregla og sjúkraliðar eru enn á staðnum.

Eldur í hópbifreið í Þrastarlundi

Eldur kom upp í rútu í Þrastarlundir laust fyrir klukkan átta í kvöld. Um þrjátíu manns voru í rútunni en þá sakaði ekki. Bílstjóra tókst að slökkva eldinn áður en slökkvilið bar að garði.

Ný þyrla leigð í stað TF-SIF

Ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Björns Bjarnason, dómsmálaráðherra, um leigu á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Þyrlan á að koma í stað TF-SIF sem eyðilagðist eftir að hún féll í sjóinn skammt frá Straumsvík fyrr í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns.

Einkavæðing leikskóla ekki lausn á manneklu

Einkavæðing leikskóla er ekki lausn á núverandi manneklu að mati Sigrúnar Elsu Smáradóttur, borgarfulltrúa og fulltrúa Samfylkingarinnar í leikskólaráði Reykjavíkur. Hún gagnrýnir ummæli formanns leikskólaráðs sem segist vilja kanna einkarekstur til að draga úr manneklu.

Mörg umferðaróhöpp í höfuðborginni

Óvenju mörg umferðaróhöpp urðu á höfuðborgarsvæðinu í dag milli klukkan þrjú og sjö síðdegis. Að sögn lögreglu var í öllum tilvikum um að ræða minniháttar slys.

Fundu þrjú grömm af hassi í bifreið

Lögreglan á Blöndósi lagði í dag hald á um þrjú grömm af hassi en efnin fundust í bifreið tveggja ungmenna. Að sögn lögreglu var bíllinn stöðvaður við reglubundið eftirlit. Fólkið þótti hins vegar grunsamlegt og var ákveðið að láta fíkniefnahund leita í bifreiðinni.

Keyrt á ölvaðan reiðhjólamann

Keyrt var á reiðhjólamann í Lækjargötu laust eftir klukkan sjö í dag. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, slasaðist ekki en við nánari skoðun kom í ljós að hann var ölvaður.

Vistaskipti í utanríkisráðuneytinu

Þórir Ibsen, skrifstofustjóri auðlinda- og umhverfisskrifstofu, og Jón Egill Egilsson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, munu hafa hlutverkaskipti í næst viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Háskólanám hafið á Sólheimum í Grímsnesi

Háskólanám hófst í dag á Sólheimum í Grímsnesi. Á meðan hinn landskunni Reynir Pétur Ingvarsson sýslar við lífrænt ræktaðar tómatplöntur leggja bandarískir háskólastúdentar stund á nám í umhverfisfræðum á Sólheimum.

Bæjarins beztu 70 ára og pylsan á 20 kall um helgina

Elsti veitingastaður landsins, Bæjarins beztu, er 70 ára í dag. Í tilefni afmælisins fæst pylsan og kókið á 20 krónur um helgina, laugardag og sunnudag. Öll velta helgarinnar fer til stuðnings Konukoti.

Jafnlaunastefna KÍ úrelt

Formaður leikskólaráðs Reykjavíkur efast um að opinbert kerfi leikskóla þrífist í markaðsdrifnu hagkerfi Íslands. Hún segir jafnlaunastefnu Kennarasambandsins úrelta í þjóðfélaginu í dag.

Eðlilegt að ráða erlenda flugmenn til starfa

Flug Icelandair gæti raskast um helgina vegna kjaradeilu við íslenska flugmenn. Forstjóri félagsins segir fullkomlega eðlilegt að ráða erlenda flugmenn til starfa hjá fyrirtækjum sem félagið rekur út í heimi, íslenskir flugmenn hafi ekki forgang að þeim störfum.

Astrópía valtar yfir Bourne Ultimatum

Aðsókn á kvikmyndina Astrópíu hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Fjallað er um málið í nýjasta tölublaði bandaríska kvikmyndablaðsins Screen International. Þar þykir það eftirtektarvert að á sama tíma og aðsókn á stórmyndina Bourne Ultimatum dregst saman hérlendis eykst aðsókn á Astrópíu.

Vilja rannsóknarnefnd um Gjástykki

Fulltrúar þrennra náttúruverndarsamtaka kröfðust þess á fundum tveggja þingnefnda í dag að Alþingi skipaði sérstaka rannsóknarnefnd til kafa ofan í ákvörðun fyrrverandi iðnaðarráðherra að veita Landsvirkjun rannsóknarleyfi í Gjástykki tveimur dögum fyrir síðustu þingkosningar.

Orka Þjórsár boðin öðrum til kaups

Forgangur Alcan í Straumsvík að orku Þjórsárvirkjana er úr sögunni og hefur Landsvirkjun þegar hafið viðræður við önnur fyrirtæki. Ekki er þó búið að loka á Alcan.

Fyrstu etanólbílarnir komnir til Íslands

Nú eru komnir til landsins þrír bílar, einn Saab og tveir Volvoar, sem eru knúðir af etanólblöndu. Etanól er umhverfisvænt eldsneyti, tiltölulega ódýrt og auðvelt í dreifingu.

Ósanngjörn, óþolandi og ómálefnaleg gagnrýni

Gagnrýni Afls, starfsgreinasambands, á þann frest sem Vinnumálastofnun veitti verktökum á Kárahnjúkasvæðinu í gær er ósanngjörn, ómálefnaleg og óþolandi að mati forstjóra stofnunarinnar. Hann segir gagnrýni starfgreinasambandsins fara langt út fyrir öll mörk og varla sé mark takandi á henni.

Einhliða upptaka ekki sniðug

Einhliða upptaka evru nú gæti leitt til atvinnuleysis segir framkvæmdastjóri ASÍ. Hann telur skynsamlegast að Ísland gangi í Evrópusambandið í framtíðinni.

Hvetja fólk til að velja annan ferðatíma á morgnana

Ökumenn á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að velja annan ferðatíma á morgnana til vinnu eigi þeir þess kost til að draga úr umferðarþunga. Þetta kemur fram í frétt frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar. Aðstoðarsviðsstjóri segir ekki hægt að hanna gatnakerfi sem getur annað þeim umferðarþunga sem verður þegar allir leggja af stað á sama tíma.

Ráðherra hafði heimild til að veita rannsóknarleyfi

Formaður iðnarðarnefndar segir að Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi iðnaðarráðherra, hafi verið heimilt að veita Landsvirkjun rannsóknarleyfi við Gjástykki skömmu fyrir kosningar í vor. Hún telur samt að snyrtilegra hefði verið að leita aftur umsagnar hjá stofnunum, en Landsvirkjun sótti um leyfi til rannsókna á staðnum fyrir um þremur árum.

Ráðherrabílaflotinn metinn á 90 milljónir

Ráðuneyti Stjórnarráðsins hefur á að skipa fríðum flota bifreiða. Samkvæmt upplýsingum úr fjármálaráðuneytinu er bifreiðar í eigu ráðuneytana 26 talsins. Lauslega áætlað má ætla að bílarnir séu metnir á um 90 milljónir króna.

Landspítalinn hefur ekki efni á Morgunblaðinu

Landspítalinn hefur ekki efni á áskrift af Morgunblaðinu. Þetta leiddu eins og hálfs árs samningaviðræður Finns Thorlacius yfirmanns dreifingardeildar Morgunblaðsins við heilbrigðisráðuneytið og stjórnendur Landspítalans í ljós. Finnur segir að Morgunblaðið hafi af miklu örlæti gefið spítalanum blaðið í mörg ár.

Rússaflug ógnar farþegaflugi

Rússnesku sprengjuflugvélarnar sem nú sveima í vaxandi mæli yfir Norður-Atlantshafi tilkynna aldrei um ferðir sínar og skapa því vissa hættu fyrir borgaralegt flug. Flugumferðarstjórar senda farþegavélum þær upplýsingar sem þeir hafa um Rússana og breyta stefnu og flughæð farþegavélanna ef þörf krefur. Rússar eru þeir einu sem senda herflugvélar af stað án þess að tilkynna um þær.

Náfrændi Björgólfs ekki ráðinn til Eimskips í gegnum klíku

Eimskip réð Guðmund Davíðsson forstjóra yfir starfsemi félagsins á Íslandi. Guðmundur er bróðursonur Björgólfs Guðmundssonar, en félag í hans eigu á 33,15% í Eimskip. Hann neitar því að hafa verið ráðinn í gegnum klíku. Ásgeir Friðgeirsson talsmaður Björgólfs segir Guðmund njóta stuðnings meirihluta eigenda Eimskips.

Sjá næstu 50 fréttir