Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hnýsni eða eðlilegasti hlutur? Næstu tvær vikurnar getur hver sem er skoðað upplýsingar um skattagreiðslur allra Íslendinga og þannig jafnframt fræðst um tekjur fólks. Sjálfsagt mál eða óþarfa afskiptasemi af einkamálum annarra? Þingmennirnir Ögmundur Jónasson og Pétur Blöndal settust hjá Sölva í Íslandi í dag. 31.7.2007 20:11
Sagnfræðingar ósammála um hlerunarskjal Prófessor í sagnfræði efast um að lögreglan hafi byggt ákvarðanir um símahleranir árið 1968 á nýframkominni lögregluskýrslu, með lýsingum kranabílstjóra á því að hann hafi heyrt menn undirbúa mótmæli. Annar sagnfræðingur telur nýja skjalið hinsvegar skýra mun betur en áður af hverju ákveðið var að leita úrskurðar til símahlerana. 31.7.2007 19:18
Aukið samstarf við Nýfundnaland og Labrador Geir H. Haarde forsætisráðherra og Danny Williams, forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador, vilja vinna að gerð sérstaks samkomulags um aukið samstarf þessara tveggja granna við Norður-Atlantshaf. Geir átt í dag fund með Williams í St. John's þar sem fjallað var um samskiptin við þetta norðvestlægasta fylki Kanada og hugsanlega eflingu á milli Íslands og fylkisins. 31.7.2007 19:03
Ál í bílum minnkar losun gróðurhúsalofttegunda Notkun áls minnkar heildarlosun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngutækjum, samkvæmt nýrri rannsókn. Samtökin Sól í Straumi telja álið þó ekki grænan málm. 31.7.2007 18:58
Slysum og tjónum fjölgar hjá erlendum ökumönnum Umferðarslysum hefur fækkað hjá Íslendingum en fjölgað meðal útlendinga. Erlendir ökumenn fara líka miklu hraðar um þjóðvegina en Íslendingar og gera sér litla grein fyrir slysahættu og háum sektarúrræðum. 31.7.2007 18:57
Myndar kríur og æðakollur Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður vinnur nú að gerð kvikmyndar um æðarvarpið í Norðurkoti við Sandgerði. Í fyrstu átti myndin aðeins að fjalla um kollurnar en það breyttist þegar hann byrjaði að taka. 31.7.2007 18:50
Arngrímur skattakóngur landsbyggðarinnar Skattaumdæmin á landinu eru níu talsins og í hverju umdæmi er gefinn út listi yfir skattakónga þeirra. Ef frá er talið suð-vesturhorn landsins þá er Arngrímur Jóhannsson, flugstjóri og fyrrum eigandi Atlanta ókrýndur skattakóngur landsbyggðarinnar. Í einu umdæmanna vermir kona efsta sætið. 31.7.2007 18:49
Heiðar Már skattakóngur Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings greiðir rúmar 400 milljónir króna í opinber gjöld og er þar með ókrýndur skattakóngur landsins. Fast á hæla hans kemur Hannes Þór Smárason, forstjóri FL Group með tæpar 377 milljónir króna. Ríkasti maður landsins, Björgólfur Thor Björgólfsson, er ekki meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda. 31.7.2007 18:48
Steingrímur vill fund í utanríkismálanefnd vegna lágflugs Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur farið fram á sérstakan fund í utanríkismálanefnd, til að ræða um nýtt varnarsamkomulag við NATO, og heræfingar hér á landi um miðjan ágúst. 31.7.2007 18:44
Atvinnuháttum og ferðaþjónustu er ógnað með nýjum Vestfjarðaveg Fulltrúi landeigenda í Þorskafirði segir að atvinnuháttum í Reykhólasveit verði ógnað með nýjum Vestfjarðavegi sem mun liggja út norðanverðan Þorskafjörð. Vegurinn setur einnig ferðaþjónustu á svæðinu í uppnám segir landeigandi. 31.7.2007 18:39
Reykingarbannið leiðir af sér drykkju utandyra Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nokkuð hafa borið á því eftir að reykingarbannið á veitingastöðum tók gildi 1. júní síðastliðinn að gestir taki með sér áfengi út og neyti utandyra. Lögreglan vill af þeim sökum vekja athygli á ákvæði 3. málsgreinar 19. greinar áfengislaga sem bannar með öllu að áfengi sem selt er á veitingastað sé borið þaðan út af gestum staðarins eða öðrum. 31.7.2007 18:11
Vegagerðin varar við hvassviðri Mjög hvasst er sumstaðar á Suðaustur- og Austurlandi. Sérstaklega er varað við sterkum vindi í Oddaskarði en einnig í Hvalnesskriðum og við Almannaskarð. 31.7.2007 17:56
Fangelsisvist Miriam lýkur væntanlega á morgun Miriam Rose, mótmælandinn sem talsmaður Græningja á Bretlandi hefur krafist að verði leyst úr haldi, situr af sér dóm vegna mótmæla í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Heimildir Vísis herma að stúlkan hafi þegar setið í fangelsinu í sjö daga en hún var dæmd fyrir mótmæli á álverslóð Bechtel á Reyðarfirði í ágúst í fyrra. 31.7.2007 15:50
Eiður Smári varð fyrir árás í miðborg Reykjavíkur Eiður Smári Guðjohnsen, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu og leikmaður Barcelona, varð fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur síðastliðið laugardagskvöld. Eiði var hrint og hann kýldur í andlitið. Hann slapp ómeiddur frá árásinni og ætlar ekki að kæra. 31.7.2007 15:07
Formaður Vinstri-Grænna vill fund í utanríkisnefnd Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd fer fram á fund í nefndinni við fyrsta tækifæri til að ræða stöðu öryggismála og hlutverk Nató í svokölluðum loftvörnum landsins. 31.7.2007 15:01
Breskir græningjar krefjast þess að mótmælanda verði sleppt úr haldi Talsmaður Græningja, flokks umhverfissinna á Bretlandi þar sem hann krefst þess að íslensk stjórnvöld sleppi mótmælanda úr haldi. Í fréttinni er fullyrt að Miriam Rose, sem sögð er meðlimur í samtökunum Saving Iceland, hafi verið handtekin í mótmælaaðgerðum og að hún sé enn í haldi. Lögregla kannast ekki við málið. 31.7.2007 14:50
Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Tryggingastofnunar ríkisins Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað fimm manna stjórn Tryggingastofnunar ríkisins. Stjórnina skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Karl V. Matthíasson, varaformaður, Margrét S. Einarsdóttir, Sigríður Jóhannesdóttir og Sigursteinn Másson. 31.7.2007 14:16
Umferð verður hæg um Mosfellsbæ um verslunarmannahelgina Umferð um Mosfellsbæ er nokkuð hægari þessa dagana en venja er. Þetta ástand mun vara fram yfir verslunarmannahelgi. Ástæðan er sú að unnið er við vegaframkvæmdir á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar. 31.7.2007 14:06
440 íslenskir skátar á alheimsmóti Nú stendur yfir á Englandi alheimsmót skáta og þar eru staddir 440 íslenskir skátar. Á alheimsmóti koma skátar saman til að endurnýja skátaheitin og fagna 100 ára afmæli skátahreyfingarinnar á morgun. Af því tilefni hyggjast Íslendingarnir baka 1000 pönnukökur fyrir gesti og gangandi. 31.7.2007 14:02
Snuðrurum boðið að skrifa í gestabók Skattayfirvöld leggja í dag fram upplýsingar um skattgreiðslur allra Íslendinga. Ungir sjálfstæðismenn mótmæla þessum görningi nú sem endranær og hafa lagt fram gestabók hjá tollstjóranum í Tryggvagötu „og bjóða þeim, sem telja sig hafa ástæðu til þess að snuðra í upplýsingum um samborgara sína, tækifæri til þess að skrá nafn sitt og upplýsingar um hvaða gögn þeir hafa skoðað," eins og það er orðað í tilkynningu frá þeim. "Þeir sem telja eðlilegt að mega skoða slík gögn um náungann hljóta að fagna því ef annað eins gagnsæi ríkir um þeirra eigin gjörðir." 31.7.2007 13:38
Greiðir 400 milljónir í opinber gjöld Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings er skattakóngur Íslands en opinber gjöld hans námu rúmum 400 milljónum króna fyrir árið 2006. Fast á hæla hans kemur Hannes Þór Smárason, forstjóri FL Group með tæpar 377 milljónir króna. Björgólfur Thor Björgólfsson, sem vermir lista Forbes yfir 500 tekjuhæstu menn heims er ekki meðal hæstu greiðendum opinberra gjalda. 31.7.2007 13:33
Utanríkisráðuneytið hefur dregið tilbaka umsókn um lágflug Utanríkisráðuneytið hefur dregið tilbaka umsókn um lágflug yfir hálendinu í tenglsum við heræfinguna Norður-víkingur um miðjan ágúst. Umsóknin var komin til samgönguráðuneytisins í gær. 31.7.2007 13:20
Símahleranir 1968 byggðar á yfirlýsingu kranabílstjóra Úrskurður um símahleranir í aðdraganda NATO fundar á Íslandi 1968, er byggður að miklu leyti á lögregluskýrslu frá sama ári, sem er nýlega komin fram. Skýrslan inniheldur yfirlýsingu kranabílstjóra um að hann hafi heyrt á tal manna um stúdentamótmæli í tengslum við fundinn. 31.7.2007 13:11
Tuttugu og þrír teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina Tuttugu og þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu voru stöðvaðir á föstudag, tíu á laugardag og fjórir á sunnudag. 31.7.2007 12:07
Ungmennum bannað að tjalda á Akureyri Einstaklingum á aldrinum 18 til 23 ára verður bannað að tjalda á Akureyri um verslunarmannahelgina. Í tilkynningu frá Akureyrarbæ kemur fram að fjölskyldufólk á „öllum aldri" verði í forgangi þegar kemur að því að tjalda á tjaldsvæðum bæjarins. 31.7.2007 12:00
Umferðaróhapp við Hádegismóa Umferðaróhapp varð á Suðurlandsvegi við Hádegismóa á tólfta tímanum í dag. Slysið varð með þeim hætti að kranabóma á vörubíl rakst upp í brú. Við það féll bóman ofan á framrúðu á bíl sem keyrði á eftir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var ökumaður bifreiðarinnar fluttur á bráðamóttöku Landspítala-Háskólasjúkrahúss með minniháttar höfuðáverka. 31.7.2007 11:39
Eiríkur K. Gissurarson er efsti nýliðinn á lista yfir hina ríku Eiríkur Kristján Gissurarson er í fjórða sæti yfir gjaldahæstu menn í Reykjavík. Hann hefur ekki verið á þessum lista áður. Eiríkur greiðir rúmar 106 milljónir króna í opinber gjöld. 31.7.2007 11:07
Björgólfur Thor ekki á meðal þeirra 20 tekjuhæstu Ríkasti Íslendingurinn, Björgólfur Thor Björgólfsson, er ekki á meðal hæstu greiðenda opinberra gjalda á Íslandi. Eignir Björgólfs eru metnar vel á þriðja hundruð milljarða íslenskra króna. 31.7.2007 10:45
Forstjóri Eimskips gjaldahæstur á Reykjanesi Baldur Örn Guðnason, forstjóri Eimskips, er sá einstaklingur á Reykjanesi sem greiðir hæstu opinberu gjöldin samkvæmt upplýsingum frá skattstjóranum í Reykjanesumdæmi, en Baldur greiðir rúma 121 milljón króna. Í öðru sæti er Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi stjórnarformaður Toyota, með rúmar 104 milljónir og Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis er í þriðja sæti. 31.7.2007 10:45
Jakob Valgeir Flosason greiðir hæstu gjöldin á Vestfjörðum Jakob Valgeir Flosason, útgerðarmaður í Bolungarvík, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjóra Vestfjarðaumdæmis samkvæmt álagningarskrá sem birt var í morgun. Jakob Valgeir greiðir rúmar 34,4 milljónir króna en Sigurður Guðjónsson, Þingeyri greiðir tæpar 28,4 milljónir króna. Einar Guðmundsson, Bolungarvík, greiðir rúmar 24 milljónir króna. 31.7.2007 10:17
Ást og afbrýði Þjóðin er harmi slegin eftir óhugnalegt morð um hádegisbilið í Reykjavík í gær. Það er algengara en fólk almennt telur að morðingi og fórnarlamb tengist - og eins að ástríða og afbrýðisemi valdi hörmulegum atburðum sem þessum. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur settist hjá Sölva í Íslandi í dag. 30.7.2007 20:14
17 fíkniefnahundar sinna fíkniefnaeftirliti um verslunarmannahelgina Aron, Týri og Asi eru meðal sautján fíkniefnahunda sem munu aðstoða lögregluna og tollgæsluna í sameiginlegu fíkniefnaeftirliti um Verslunarmannahelgina. Sighvatur Jónsson prófaði að fela á sér fíkniefni í nágrenni við hundana í dag - sjáðu hvernig það gekk, með því að spila innslagið. 30.7.2007 19:27
Dyraverðir sáu ekki árásina á Kaffi Sólon Árásin tengist staðnum ekki neitt, þar sem stúlkurnar voru ekki í biðröð inná Kaffi Sólon, segir yfirdyravörður skemmtistaðarins um hrottafengna líkamsárás aðfaranótt sunnudags, þar sem bútur af eyra var bitinn af konu. Móðir konunnar segir sjónarvott sem skakkaði leikinn hafa bjargað lífi dóttur sinnar. Lögregla hefur beðið aðstandendur afsökunar á seinagangi rannsóknar málsins. 30.7.2007 19:12
Hernaðarandstæðingar ósáttir við lágflug Samtök hernaðarandstæðinga eru ekki ánægð með að herþotur á vegum Atlantshafsbandalagsins fái að fljúga lágflug yfir hálendinu í tvær klukkustundir í senn dagana fjórtánda og fimmtánda ágúst. Framkvæmdastjóri Íshesta segir að litlu hafi mátt muna að stórslys yrði fyrir nokkrum árum vegna slíks flugs. Formleg umsókn vegna lágflugs hefur borist samgönguráðuneytinu. 30.7.2007 19:02
Sjóstöngin vinsæl fyrir vestan Ferðaþjónusta tengd sjóstangaveiði hefur stóraukist á Vestfjörðum og menn sjá mikla möguleika í skemmtisiglingum. Á annað þúsund manns hafa komið á sjóstöng á Flateyri og Suðureyri það sem af er sumri. Þetta er tvöfaldur íbúafjöldinn í þessum tveimur sjávarplássum. 30.7.2007 18:52
Það getur hent alla að lenda í aðstæðum sem þeir ráða ekki við Lögregla rannsakar aðdraganda voðaverkanna í gær þegar maður skaut annan til bana og svifti sig síðan lífi. Sérfræðingur í áfallahjálp segir að það geti hent alla á lífsleiðinni að lenda í aðstæðum sem þeir ráði ekki við, en þá sé mjög mikilvægt að þeim einstaklingum sé veitt aðstoð. 30.7.2007 18:40
Afleitt gsm samband skapar hættu í Dalabyggð Gunnólfur Lárusson, sveitastjóri Dalabyggð, segir að afleitt gsm-samband í Dölunum sé til skammar en sveitirnar í nágrenni Búðardals eru flestar utan slíkrar þjónustu. Sveitarstjórinn segir að fólk sem lendi í slysum á þjóðvegunum þar í sveit verði að treysta á guð og lukkuna. 30.7.2007 18:35
Lýst eftir vitnum að skemmdum á bensíndælu Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir vitnum að skemmdum sem urðu á bensíndælu hjá N1 í Grindavík aðfaranótt sunnudags. Óþekktur aðili var að dæla bensíni en ók á brott án þess að taka slöngu bensíndælunnar úr bensíntanki bifreiðarinnar. Af þessu hlutust nokkrar skemmdir. 30.7.2007 18:33
Ætluðu að stöðva óprúttna viðskiptavini en urðu fyrir líkamsárás Starfsmaður veitingahúss var sleginn í andlitið um helgina þegar hann hugðist stöðva viðskiptavini sem ætluðu að stinga af frá ógreiddum reikningi. Starfsmaður verslunar fékk svipaða útreið þegar hann ætlaði að koma í veg fyrir þjófnað. 30.7.2007 18:15
Bæjarstjóri vísar því á bug að minnihlutinn hafi ekki fengið að leggja fram bókanir Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi, vísar því til föðurhúsanna að minnihluti í bæjarstjórn hafi ekki fengið að bóka sitt álit á samkomulagi bæjarstjórnar við Kalmansvík ehf. Samkomulagið gefur Kalmansvík ehf. heimild til að útfæra allt að sjö hektara land við Kalmansvík þar sem fyrirhugað er að reisa allt að 450 íbúðir fyrir 50 ára og eldri. 30.7.2007 17:23
Heimildarmynd Sigur Rósar frumsýnd í haust Heimildamynd Sigur Rósar, Heima, verður frumsýnd í haust. Myndin sýnir tónleikaferðalag hljómsveitarinnar um Ísland á síðasta ári. Ferðalagið var endapunktur tónleikaferðar sveitarinnar um heiminn sem farin var í kjölfar útgáfu plötunnar Takk. 30.7.2007 17:23
Bílvelta á Biskupstungnabraut Bifreið valt á Biskupstungnabraut á fjórða tímanum í dag. Bifreiðin var á norðurleið og í nánd við afleggjarann að Þingvöllum fipaðist ökumaðurinn með þeim afleiðingum að bifreiðin valt. Konan sem var við stýrið var flutt á Selfoss til skoðunnar en meiðsl hennar eru ekki talin alvarleg. Bíllinn skemmdist nokkuð og var hann dreginn á brott með kranabíl. 30.7.2007 17:06
Íslensk stúlka í róðrarliði Oxford Íslensk stúlka, Margrét Helga Ögmundsdóttir doktorsnemi í lífefnafræði við Oxford háskóla hefur verið valin í úrvalslið skólans í róðri, aðeins hálfu ári eftir að hún hóf æfingar. Liðið mun yfirleitt vera skipað landsliðsmönnum og Ólympíuförum, en 150 ára hefð er fyrir róðrarkeppni Oxford og Cambridge. 30.7.2007 16:39
Margir grunnskólar eiga eftir að ráða kennara Tuttugu og sjö grunnskólar í Reykjavík auglýstu eftir kennurum í Fréttablaðinu í gær, fyrir komandi skólaár sem hefst um miðjan ágúst. Skólastjórar sem Vísir talaði við segja að útlitið sé verra en í meðalári og sumir tala jafnvel um ófremdarástand. 30.7.2007 15:51
Náttúrusamtök leggjast gegn nýrri veglínu þjóðvegar 1 Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðurlands legst gegn því að veglínu þjóðvegar 1 verði breytt þar sem hann liggur um Mýrdal en hreppsnefndin hefur tekið ákvörðun um breytingu á aðalskipulagstillögu þess efnis. Stjórn samtakanna telur ljóst að samþykkt sveitarstjórnar Mýrdalshrepps um veglínu muni valda verulegum óafturkræfum breytingum á svæðinu. 30.7.2007 15:39