Innlent

Margir grunnskólar eiga eftir að ráða kennara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skólastarf hefst um miðjan ágúst.
Skólastarf hefst um miðjan ágúst. Mynd/ Hilli

Tuttugu og sjö grunnskólar í Reykjavík auglýstu eftir kennurum í Fréttablaðinu í gær, fyrir komandi skólaár sem hefst um miðjan ágúst. Skólastjórar sem Vísir talaði við segja að útlitið sé verra en í meðalári og sumir tala jafnvel um ófremdarástand. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, segir að ekki liggi fyrir nákvæmlega hversu margar stöður eigi eftir að manna. Málið skýrist í byrjun ágúst þegar sumarfríum ljúki.

Júlíus Vífill segir ljóst að staðan sé misjöfn eftir skólum. Sumir séu með allt fullmannað en annars staðar vanti fólk. Hann segir þennan mun einfaldlega skýrast af því að misjafnt orð fari af skólastjórum og því skólastarfi sem sé í gangi í hverjum skóla fyrir sig. Nú sé hins vegar farð að fylgjast með skólum, hvernig þeim sé stjórnað og hvernig starfsandinn sé. Haldið verði áfram með þetta á næsta skólaári og þannig verði hægt að aðstoða skólastjóra við að bæta starf skólanna. Júlíus segir að ábyrgð skólastjóra hafi aukist mikið á liðnum árum. Nú séu þeir ekki einungis ábyrgir fyrir faglegu starfi skólanna heldur einnig rekstrarþættinum. Starf skólastjóra sé því mjög vandasamt.

Skólastjórnendur segja að kennarar forðist launin og hverfi þess vegna til annarra starfa. Þá séu nýútskrifaðir kennarar ekki að skila sér inn í skólastarfið, Þeir fari frekar í framhaldsnám og endi í störfum sem séu óskyld grunnskólakennslu.

Skólastjórar segja einnig að samkennsla hafi mælst misjafnlega fyrir meðal kennara og sé jafnvel fráhrindandi fyrir suma þeirra. Samkennsla feli það í sér að fleiri en einum árgang sé kennt í einu. Þeir segja að verið sé að þróa þetta fyrirkomulag en ekki sé víst að hægt sé að fullyrða um að það sé orsök þess hversu illa gangi að ráða kennara. Einn skólastjórinn sagði að samkennslan tónaði vel við þær hugmyndir sem yrðu sífellt vinsælli um svokallað einstaklingsbundið nám.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×