Fleiri
Öngþveiti á Heathrow vegna þoku 21.12.2006 10:20 Bílvelta á Sandskeiði Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum. 21.12.2006 10:03 Sjá næstu 50 fréttir
Viðbúnaðarástandi aflétt í Árnessýslu Almannavarnarnefndir í Árnessýslu hafa aflétt viðbúnaðarástandi í sýslunni vegna flóðahættu. Nefndirnar komu saman til fundar klukkan tíu í morgun. 22.12.2006 10:44
Byrjað að fljúga til Akureyrar Búið er að staðfesta að tvær flugvélar fara til Akureyrar frá Reykjavíkurflugvelli fyrir hádegi, önnur klukkan 11:15 og hin klukkan 11:45. Ófært var í morgun fyrir allt innanlandsflug nema til Egilsstaða en áfangastaðirnir hafa verið að opnast einn af öðrum. Enn er ófært til Ísafjarðar og Grænlands. 22.12.2006 10:34
Áfram reynt að bjarga hrossum í Skagafirði Björgunarsveitarmenn reyna ásamt bændum að bjarga hrossum sem urðu innlyksa í gær þegar Héraðsvötnin í Skagafirði stífluðust. Ekki náðist að reka hrossin á örugga staði í gær þar sem þau voru föst á eylendi Skagafjarðar. 22.12.2006 10:28
Þakplötur á ferð og flugi um land allt Björgunarsveitir víða um land hafa verið ansi uppteknar í kvöld en veðurofsinn hefur verið mikill. Þakplötur hafa víða tekist á loft sem og fótboltamörk í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Akranesi er enn með vakt við höfnina en smábátar hafa losnað upp en þá tókst þó að festa aftur. 21.12.2006 23:32
Ingunn AK komin að landi á ný Landfestar togarans Ingunn AK gáfu sig í óveðrinu í kvöld og rak hann um höfnina um tíma. Rakst hann meðal annars í löndunarkrana hjá fiskimjölsverksmiðjunni og skemmdi hann en dansaði framhjá togaranum Bjarna Ólafssyni AK. 21.12.2006 22:04
Vatnsmagn í Ölfusá minnkar Lögreglan á Selfossi sagði í kvöld að flóðið í Ölfusá væri að minnka samkvæmt mælum í ánni og er búist við því að það taki vatnsmagnið um sólarhring að fara niður fyrir varúðarmörk. Einnig hefur gengið mjög vel að dæla upp úr húsum sem flæddi inn í svæðinu. 21.12.2006 21:44
Öxnadalsheiði lokuð vegna veðurs Lögreglan á Akureyri var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu um að vegurinn á Öxnadalsheiði hefði lokast. Starfsmenn vegagerðarinnar eru að störfum við að aðstoða bíla sem fastir eru en einn flutningabíla er fastur þversum á veginum. 21.12.2006 21:04
Bílslys í Hafnarfirði Árekstur varð á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar, eða Engidalnum, um klukkan hálf átta í kvöld. Skemmdust báðir bílar það mikið að þurfti að draga þá af vettvangi. Ökumaður annars bílsins þurfti að fara á slysadeild til skoðunar en enginn meiddist alvarlega í slysinu. 21.12.2006 20:50
Ung kona vitnar um kynferðissamband við Guðmund í Byrginu Tuttugu og fjögurra ára kona, sem var skjólstæðingur Guðmundar Jónssonar forstöðumanns Byrgisins, vitnar um það, í viðtali í Íslandi í dag á eftir, að hún átti í kynferðissambandi við hann í nærri tvö ár. Hún hefur sett sig í samband við lögreglu og mun leggja fram formlega kæru í fyrramálið. 21.12.2006 19:26
Kviknaði í út frá aðventukransi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúð á Reynimelnum fyrir stundu eftir að það kviknaði í. Aðventukrans hafði brunnið niður og við það kviknað í. Búið er að slökkva eldinn og slökkviliðsmenn eru nú að reykræsta íbúðina. 21.12.2006 19:15
Sér ekki fyrir endann á verkefnum björgunarsveita Allt innanlandsflug lá niðri eftir hádegi í dag og miklar tafir voru á Keflavíkurflugvelli vegna hvassviðris. Björgunarsveitir á Suðvesturhorninu hafa farið í fjölmörg óveðursútköll í dag og sér ekki fyrir endann á verkefnunum. 21.12.2006 18:50
Skagafjörður eins og hafsjór yfir að líta Skagafjörður er nú eins og hafsjór yfir að líta en Héraðsvötnin eru stífluð á tveimur stöðum. Hópar björgunarsveitarmanna hafa í dag reynt, við erfiðar aðstæður, að bjarga hrossum sem orðið hafa innlyksa. 21.12.2006 18:40
Sjálfstæðisflokkur samþykkir framboðslista í Reykjavíkurkjördæmum Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og norður voru samþykktir á fundi í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, verður í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, verður í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík norður í alþingiskosningunum í maí á næsta ári. 21.12.2006 18:32
Níðstöng veldur vandræðum Bóndinn í Otradal við Bíldudal hefur reist manni í plássinu níðstöng með áfestum kálfshausi og ósk um útlegð eða dauða. Þetta er gert til að hefna hvolps sem varð fyrir átta tonna dráttarvél fyrir ári síðan og drapst. Sá sem varð fyrir níðinu varð hefur kært málið til lögreglu sem morðhótun. 21.12.2006 18:28
Skriðuhætta ekki enn liðin hjá Talið er að skriðuhætta sé ekki enn liðin hjá í innanverðum Eyjafirði og þá sérstaklega við bæinn Grænuhlíð. Í ljósi þess er lagt til að fólk hafist ekki við á þeim bæjum sem í mestri hættu eru taldir, það er á svæðinu frá Æsustöðum að Arnarfelli, að báðum bæjum meðtöldum. 21.12.2006 18:21
Ekkert ferðaveður á Holtavörðuheiði Vegagerðin hefur sent frá sér viðvörun og segir að ekkert ferðaveður sé á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði vegna mikillar hálku og stórhríðar. 21.12.2006 18:13
Selfosslögreglan fær nætursjónauka Fulltrúar Suðurlandsvegar ehf, sem stefnir að bættum vegasamgöngum á Suðvesturhorni landsins, afhentu lögreglunni á Selfossi í hádeginu í dag, dimmasta degi ársins, nætursjónauka til eftirlitsstarfa. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður, tekur við sjónaukanum, sem á að auðvelda lögreglunni eftirlitsstörf, en allir vegir utan þéttbýlis á Suðurlandi, eru ólýstir. 21.12.2006 17:40
Ríkissaksóknari telur ekki ástæðu til að rannsaka hleranir frekar Ríkissaksóknari sér ekki ástæðu til að halda áfram rannsókn á ætluðum hlerunum á síma Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra, og starfsmönnum á meðan þeir gengdu störfum í utanríkisráðuneytinu. Ríkissaksóknari fól lögreglustjóranum á Akranesi að rannsaka hvort um hleranir hefði verið að ræða. Að lokinni rannsókn telur lögreglustjórinn ekki ástæðu til að rannsaka málið frekar. 21.12.2006 16:39
400 tonna flugvél snerist á staðnum 400 tonna fraktflugvél snerist um 35 gráður á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir fjögur-leytið í dag. Flughált er á vellinum og slær hátt í 30m/s í verstu hviðunum. Búið er að raða kubbum við hjól vélarinnar og raða slökkvilbílum við vélina til að taka af henni mesta vindinn. 21.12.2006 16:38
Landsbankinn hækkar vexti Landsbankinn ætlar að hækka óverðtryggða inn- og útlána um allt að 0,25 prósentustig frá og með 1. janúar 2007. Í tilkynningu frá bankanum segir að hækkunin sé í beinu framhaldi af hækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands í morgun. 21.12.2006 16:21
Björgunarsveitarmenn önnum kafnir á suðvesturhorninu Björgunarsveitarmenn Landsbjargar eru nú í nokkrum óveðursútköllum á suðvesturhorninu. Í Þorlákshöfn voru þakplötur farnar að fjúka af fiskimjölsverksmiðju. Þá er stór skemma í byggingu í Keflavík en sú nýbygging er að liðast í sundur og er allt tiltækt lið frá Björgunarsveitinni Suðurnes að vinna í því verkefni. 21.12.2006 16:07
Björguðu um 70 hrossum á Skeiðum Björgunarfélag Árborgar hefur staðið í ströngu í dag vegna vatnavaxtanna í Hvítá og Ölfusá á Suðurlandi. Fyrr í dag komu þær yfir 70 hrossum til bjargar við bæinn Vorsabæ I á Skeiðum og voru hrossin rekin á sund með þremur eða fjórum bátum. Öll sluppu þau lifandi. 21.12.2006 16:07
Reynt að bjarga hrossum í Skagafirði Björgunarsveitarmenn í Skagafirði hafa síðan á hádegi reynt að bjarga hrossum sem hafa orðið innlyksa vegna flóðs í Héraðsvötnum. Nokkrir hópar björgunarsveitamanna eru nú á bátum og reyna að ná hrossunum á þurrt. 21.12.2006 15:55
Ekki hægt að nota landganga í Leifsstöð Vindur er nú orðinn það mikill í Leifsstöð að ekki er hægt að nota landganga flugstöðvarinnar og því mikil seinkun á flugi. Í sterkustu vindhviðunum slær upp í 55 hnúta, eða rúmlega 28 m/s á vellinum. Seinkun á flugi frá vellinum er nú allt upp í fjóra og hálfan tíma. 21.12.2006 15:38
Saka landlækni um dylgjur Ritstjórar tímaritsins Ísafoldar saka Matthías Halldórsson, landlækni, um að vera með dylgjur um það að í nýjasta hefti tímaritsins sé að finna ósannsögli og rangfærslur í grein um elliheimilið Grund. Ritstjórar blaðsins ætla að kanna hver lagaleg staða tímaritsins er vegna umæla landlæknis. 21.12.2006 15:32
Flugvél British Airways þurfti að lenda á Egilsstaðaflugvelli Flugvél frá British Airways þurfti að lenda á Egilsstaðaflugvelli þar sem ekki reyndist unt að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Vélin sem er Boeing 737 var að koma frá London en hundrað og þrjátíu farþegar eru um borð. Flugstjórar vélarinnar eru nú að velta fyrir sér næstu skrefum. Allt innanlandsflug liggur nú niðri. Ætlunin er að athuga með flug aftur kl 17 síðdegis. 21.12.2006 15:03
Mikil seinkun á flugi British Airways Fjögurra og hálfs tíma seinkun er nú á flugi British Airways frá Keflavík til Gatwick-flugvallar í Lundúnum vegna þykkrar þoku sem legið hefur yfir flugvöllum í Lundúnum. Flug Iceland Express til Stanstead er hins vegar á áætlun enda er Stanstead nokkuð lengra frá Lundúnum en bæði Heathrow og Gatwick. 21.12.2006 14:53
Vinnuslys við Reykjanesbraut Vinnuslys varð við gatnamót Reykjanesbrautar og Vífilstaðavegar skömmu fyrir klukkan tvö. Verið var að loka sliskju á flutningavagni, eða skábraut, eftir að ýta hafði verið sett upp á vagninn en hún féll þá ofan á karlmann. 21.12.2006 14:32
Fær sex milljónir greiddar vegna læknamistaka Íslenska ríkið og læknir voru í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða manni hátt í sex milljónir króna í bætur, vegna læknamistaka, sem talið er að hafi orðið til þess að taka varð af vinstri fót mannsins fyrir ofan hné. 21.12.2006 14:18
Engum datt í hug að fjármálafyrirtæki gætu talið fram í evrum Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, telur þá ákvörðun Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka, að telja fram í evrum í stað krónu óheppilega. Þetta kom fram á Fréttamannafundi vegna stýrivaxtahækkunar Seðlabankans í morgun. Davíð sagði að þegar lögin hafi verið sett um að fyrirtæki gætu gert upp í evrum, þá hafi ekki verið gert ráð fyrir að fjármálafyrirtæki nýttu sér þá heimild. Þau hafi ekki formlega verið undanþegin í lögunum, en engum hafi heldur dottið það í hug að þetta gæti gengið til þeirra. Sérfræðingar óttast að fleiri bankar kunni að fylgja fordæmi Straums, sem gæti veikt stöðu krónunnar. 21.12.2006 14:15
Malbikað umhverfis Snæfellsjökul Berglín ehf. í Stykkishólmi átti lægsta tilboð í gerð 17 kílómetra langs vegar með bundnu slitlagi á utanverðu Snæfellsnesi. Með vegagerðinni lýkur malbikun vegarins milli Arnarstapa og Ólafsvíkur og verður þá unnt að aka hring um Snæfellsnes á bundnu slitlagi með því að fara Vatnaleið en malarvegur er enn um Fróðárheiði. 21.12.2006 14:10
Varað við fölskum atvinnutilboðum í netpósti Ríkislögreglustjóri varar netnotendur við atvinnutilboðum erlendis frá sem þeir fá send á netföng sín. Fram kemur í tilkynningu frá Ríkislögreglsutjóra að í flestum tilfellum sé um sölu- og markaðsstörf að ræða og þykjast fyrirtækin sem kynnt eru til sögunnar vera leiðandi á því sviði á Netinu en flestum tilfellum er um hreina svikastarfsemi að ræða. 21.12.2006 14:06
Vatnsborð Hálslóns hækkar mikið vegna asahláku Vatnsborð Hálslóns hefur hækkað um 60 sentímetra á síðasta sólarhring sem er tífalt meira en að jafnaði í síðustu viku. Þetta kemur fram á vef Kárahnjúkavirkjunar. Þar segir að vatnsborðið sé nú komið í 562 metra yfir sjávarmáli og að skýringarinnar á þessari miklu hækkun sé að leita í asahlákunni á landinu öllu með tilheyrandi vatnavöxtum. 21.12.2006 13:53
Stýrivextir hafa sjaldan verið hærri Seðlabankinn hækkaði stýrivexti í dag um 0.25 prósent og hafa stýrivextir sjaldan verið hærri, en þeir eru nú 14.25 prósent. Þetta er sjöunda vaxtahækkun Seðlabankans á þessu ári og telur greiningardeild KB Banka ekki hafa verið ástæðu fyrir hækkuninni í dag. 21.12.2006 13:42
Hefur miklar áhyggjur af húsakosti Náttúrugripasafns Stjórn Félags Íslenskra safna og safnmanna lýsir yfir miklum áhyggjum vegna þeirrar ófullnægjandi aðstöðu sem íslensk stjórnvöld hafa um of langt skeið búið Náttúrgripasafni Ísland. Þetta kemur fram í ályktun frá félaginu. 21.12.2006 13:15
Ekki ástæða til aðgerða á Grund eftir umfjöllun Ísafoldar Landlæknir segir frásögn blaðamanns tímaritsins Ísafoldar af konu á elliheimilinu Grund sem beinbrotnaði ranga en tímaritið fullyrti að konan hefði verið látin liggja í meira en sólarhring áður en henni var komið á sjúkrahús. 21.12.2006 12:45
Nokkuð um þjófnaði úr verslunum Nokkuð hefur verið um þjófnaði úr verslunum í Reykjavík síðustu dagana. Tveir tólf ára piltar voru teknir fyrir þjófnað úr matvöruverslun í gær. Hringt var í foreldra þeirra sem sóttu þá. 21.12.2006 12:36
Tæpur helmingur olíunnar eftir í skipinu Sterkar líkur benda til að um 70 tonn af svartolíu séu þegar lekin úr botntönkum flutningaskipsins Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes. Sé það raunin eru aðeins 50 tonn eftir af svartolíu í hliðartönkum þess. Auk þess bendir margt til þess að um helmingur af rúmum þrettán tonnum af gasolíu í skipinu, sé líka lekinn út. 21.12.2006 12:10
Fengu samtals yfir tuttugu ára fangelsisdóm Fjórir karlmenn voru í dag dæmdir í samtals tuttugu og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum til landsins. Um er að ræða fjóra Íslendinga og einn Hollending sem ákærðir voru fyrir smygl á um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið til landsins. 21.12.2006 12:09
Eyjafjarðará skemmdi flugvallarsvæðið Skemmdir urðu hjá Flugmálastjórn á Akureyri í gær eftir að Eyjafjarðaráin ruddist inn á flugvallarsvæðið. Fólk í Eyjafjarðarsveit var flutt til vegna hættu á skriðuföllum en flóðin eru í rénun. 21.12.2006 12:07
Telur stýrivaxtahækkun í morgun þá síðustu í bili Greiningardeild Glitnis telur að stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands í morgun sé sú síðasta í þessu hækkunarferli en bankinn hækkaði stýrivextina um 0,25 prósentur. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis að greiningardeildin telji að næsta skref hans verði að lækka vexti og að það gerist um miðbik næsta árs. 21.12.2006 11:04
Slasaðist lítils háttar í bílveltu á Sandskeiði Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum. 21.12.2006 10:55
Vatnshæð stígur enn í Ölfusá Vatn er byrjað að flæða inn í kjallara Selfosskirkju enda hefur ekkert lækkað í Ölfusá og mælist rennslið nú 2.100 rúmmetrar á sekúndu. Að sögn Garðars Einarssonar kirkjuvarðar hefur aðeins flætt lítillega í kjallarann og hefur dæla sem komið var fyrir í kjallaranum undan að dæla vatninu. 21.12.2006 10:28
Bílvelta á Sandskeiði Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum. 21.12.2006 10:03