Sér ekki fyrir endann á verkefnum björgunarsveita 21. desember 2006 18:50
Allt innanlandsflug lá niðri eftir hádegi í dag og miklar tafir voru á Keflavíkurflugvelli vegna hvassviðris. Björgunarsveitir á Suðvesturhorninu hafa farið í fjölmörg óveðursútköll í dag og sér ekki fyrir endann á verkefnunum. Það er til marks um rokið á Keflavíkurflugvelli í eftirmiðdaginn að 400 tonna fraktvél snerist á staðnum, um einar 35 gráður á vellinum um fjögurleytið í dag. Ekki er nú hægt að nota landganga flugstöðvarinnar þar sem í vindhviðum slær upp fyrir 30 metra á sekúndu og hafa því orðið talsverðar tafir á millilandaflugi. Þá leist flugstjóra British Airways ekki meira en svo á blikuna að hann lenti flugvél frá Lundúnum á Egilsstöðum og bíður átekta þar. Lundúnaflug á Heathrow og Gatwick flugvöllum hefur þar að auki orðið fyrir töfum vegna þykkrar þoku í Lundúnum annan daginn í röð og hefur allt innanlandsflug í Bretlandi verið fellt niður fyrir daginn í dag og morgundaginn. Einnig hefur verið fellt niður allt flug á styttri vegalengdum innan Evrópu. Flugvélar frá Íslandi hafa hins vegar getað lent í London þó einhverjar tafir hafi orðið. Björgunarsveitir standa í ströngu víða á suðvesturhorninu þessa stundina og er ekki útlit fyrir að lægi þar fyrr en með morgninum. Stærsta verkefnið hingað til hefur verið í Keflavík, þar sem allt tiltækt lið Björgunarsveitarinnar Suðurnesja var kallað að stórri skemmu sem verið er að byggja í iðnaðarhverfinu. Þá var Björgunarsveitin Mannbjörg frá Þorlákshöfn kölluð út til að festa þakplötur á Fiskimjölsverksmiðju við höfnina í Þorlákshöfn. Björgunarsveitir hafa einnig verið kallaðar út á höfuðborgarsvæðinu og hafa þær fengið allt frá hefðbundnum þakplötuverkefnum að jólatrjám á ferð og flugi. Allt innanlandsflug hefur legið niðri eftir hádegi og morguninn fór að miklu leyti í að vinna upp flugtafir gærdagsins. Því má búast við að örtröð verði á flugvöllum á morgun þegar lægir, enda margir sem vilja komast heim um jólin eða burt í jólafrí.
Mest lesið Kvikuhlaup á Sundhnúksgígaröðinni Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup á Sundhnúksgígaröðinni Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira