Fleiri
Kláruðu 20 þúsund pylsur 2.7.2006 07:00 Fimmta heimsmetið Daníel Jónsson stekkur sveittur af baki eftir að hafa sýnt stóðhestinn Stála frá Kjarri sem hlaut hæstu einkunn sem um getur í kynbótadómi. Daníel hefur sýnt alls 27 hross á landsmótinu og mörg þeirra oftar en einu sinni. Stáli hlaut 8,76 í aðaleinkunn og sló þar með met Þórodds frá Þóroddsstöðum frá síðasta landsmóti 8,74. 2.7.2006 07:00 Til aðstoðar ferðamönnum Alls munu fjórar björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða staðsettar á hálendi Íslands frá og með deginum í gær og fram til 18. ágúst í þeim tilgangi að aðstoða ferðamenn og fækka slysum. 2.7.2006 06:45 Segja hryðjuverk skilgreind of vítt Skýrsla um hryðjuverkavarnir á Íslandi mætir talsverðri gagnrýni. Hægt að fella nánast hvað sem er undir hryðjuverk vegna of víðtækrar skilgreiningar; þrengt yrði að mannréttindum á Íslandi, segir hæstaréttarlögmaður. 2.7.2006 06:45 Fá bætur í allt að þrjá mánuði Í gær tóku gildi ný lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. 2.7.2006 06:45 Gagnrýni á skilgreiningu 2.7.2006 06:15 Yfir hundrað milljarðar í framkvæmdir á næstunni Ekkert bólar enn á nákvæmri útlistun á því hvaða framkvæmdum ríkisstjórnin ætlar að fresta á næsta ári í viðleitni sinni við að draga úr þenslu. Hins vegar má lesa út úr langtímaáætlun í ríkisfjármálum, að ríkið ætlar nota hátt á annað hundrað milljarða króna í framkvæmdir næstu misseri. 1.7.2006 18:42 Lyfjafyrirtæki gagnrýnd harðlega fyrir skaðlegt markaðsstarf Grunur leikur á að markaðssetning stinningarlyfjanna Viagra og Cialis hér á landi, sé ólögleg. Neytendasamtökin hafa kallað Lyfjastofnun til aðstoðar. 1.7.2006 16:11 Fimm teknir fyrir hrað akstur Fimm teknir fyrir ofhraðan akstur af Lögreglunni á Keflavíkurvelli. Einn grunaður um ölvun við akstur. 1.7.2006 15:34 Gremst ítrekaðar lágflugsæfingar Varnarliðsins Landeigendur og ferðamenn á Rauðasandi á Barðaströnd eru gramir yfir ítrekuðum lágflugsæfingum Varnarliðsins á Breiðafirði. Um miðja síðustu viku flugu tvær F-15 orrustuþotur afar nærri Látrabjargi og í þar síðustu viku gerðist slíkt hið sama. 1.7.2006 15:27 Einleikjahátíð á Ísafirði Hin árlega leiklistarhátíð Act Alone stendur nú yfir á Ísafirði og lýkur á morgun. Fullt var á opnunar sýningu hátíðarinnar og er hátíðin almennt mjög vel sótt. 1.7.2006 14:59 Rólegt á Landsmóti hestamanna í nótt Allt var með ró og spekt á Landsmóti hestamanna í Skagafirði í nótt. Nokkrir voru þó teknir fyrir ölvunar akstur innan svæðis undir morgun. Lögreglan á Sauðárkróki segir að það sé óvenju gott ástand á svæðinu, miðað við fólksfjölda, en hátt í níu þúsund manns voru komnir á mótið í gærkvöldi. Mikill fjöldi fólks streymdi inn á svæðið í gær til að eyða þar helginni. Umferð var því að vonum þung og undir kvöldið hafði um 10 km löng bílaröð myndast frá mótsvæði til Varmahlíðar. 1.7.2006 13:30 Um 10.000 manns á Landsmóti Nóttin var með rólegasta móti á Landsmóti hestamanna að Vindheimamelum. Nálægt tíu þúsund manns eru nú á svæðinu en mótinu líkur á morgun. Einhver væta féll á gesti í nótt en í morgun braust sólin fram og að sögn Huldu G. Geirsdóttur fjölmiðlafulltrúa mótsins fer vel um fólkið, þótt töluvert sé farið að þéttast á svæðinu. 1.7.2006 13:30 Landhelgisgæslan áttatíu ára Landhelgisgæslan fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í dag og boðið var til veislu í varðskipinu Óðni. Einnig var verið að fagna nýjum lögum um Landhelgisgæsluna sem taka gildi á morgun. Tvö varðskip sigldu inn höfnina fánum prýdd, skipslúðrar voru þeyttir og skotið var úr fallbyssum. Georg Lárusson, forstjóri 1.7.2006 13:11 Samfylkingin bretti upp ermar Samfylkingin þarf að bretta upp ermar ef ekki á illa að fara í næstu kosningum, segir varaþingmaður flokksins í norðausturkjördæmi. Ekki er hægt að kenna formanninum einum um hversu illa gengur. Samfylkingin mældist aðeins með rúmlega 24% prósenta fylgi í skoðanakönnun. Fréttablaðsins í gær. Fylgið er heilum 6%-stigum undir kjörfylgi í síðustu kosningum, -og hið minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum eftir kosningarnar 2003. Sjálfstæðisflokkurinn og minni flokkarnir vinna hins vegar á. 1.7.2006 12:54 Tæplega 10 þúsund manns komnir á Vindheimamela í Skagafirði Tæplega 10 þúsund manns eru komnir á Vindheimamela í Skagafirði til þess að fylgjast með Landsmóti hestamanna. Í gærkvöldi var haldinn stórdansleikur með Todmobil sem stóð fram eftir nóttu og að sögn lögreglu á svæðinu fór allt vel fram fyrir utan einstaka pústra. 1.7.2006 12:20 Íbúðalánasjóður hækkar húsnæðisvexti Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,1 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í fyrradag að því er fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands. 1.7.2006 11:45 Landsbjörg kemur útlendingum til bjargar Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu, sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í gær, biðu ekki lengi eftir fyrsta viðfangsefninu. Þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn verða á fjórum stöðum á hálendinu í sumar með það að markmiði að fækka slysum. 1.7.2006 11:45 Sjá næstu 50 fréttir
Sendir bandaríska sendiráðinu kvörtun Mannréttindamál Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur Alþjóðahúss hyggst senda kvörtun til bandaríska sendiráðsins vegna skýrslu sendiráðsins um mansal hér á landi þar sem trúnaðarupplýsingar frá Alþjóðahúsi koma fram. Ég er mjög ósátt við hvernig það sem ég sagði var tekið úr samhengi og að það skuli vera vísað í mig, því þó að ég sé ekki nafngreind þá er bara einn lögfræðingur í Alþjóðahúsi og augljóst við hvern er átt, segir Margrét. 3.7.2006 06:30
Vill aðgang að gögnum Ragnar Aðalsteinsson lögmaður krefst þess að Björn Bjarnason víki sæti sem dómsmálaráðherra þegar ósk hans um aðgang að gögnum um hleranir ýmissa Íslendinga á tímum kalda stríðsins, verður tekin til úrskurðar. Beiðninni hefur tvívegis verið hafnað. 3.7.2006 06:30
Stöðva þarf ólöglegar veiðar Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra lýsir fullum stuðningi við aðgerðir norsku strandgæslunnar gagnvart skipinu Joana sem fært var til hafnar í Noregi í gær vegna ólöglegra veiða fyrir norðan Noreg. 3.7.2006 06:15
Hundurinn gat varla gengið Fólk sem var á ferð um Ægisíðuna síðastliðinn fimmtudag gekk fram á hund í slæmu ástandi og gerði lögreglu viðvart vegna gruns um slæma meðferð á dýrum. 3.7.2006 06:15
Leit hætt að kajakræðara Hátt í fjörutíu manns leituðu í allan dag að erlendri konu á kajak í Seyðisfirði og fjörðunum þar í kring. Boð komu frá henni í morgun á neyðarrás fyrir skip og mátti skilja þau sem neyðarboð. Ísraelsk kona fannst á kajak í Norðfirði fyrr í dag en hún segir boðin ekki hafa komið frá sér. 2.7.2006 18:32
Hjón með börn hætt komin Hjón með tvö ung börn voru hætt komin í dag er bíll þeirra færðist með straumnum í á við Stöng í Þjórsárdal. Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðafólkið sem ekki varð meint af óhappinu. 2.7.2006 17:53
Víðtæk leit gerð að konu á kajak Fjörutíu til fimmtíu manns og í það minnsta sjö björgunarbátar leita að erlendri konu sem lenti í hafvillu á kajak á Seyðisfirði í morgun. Björgunarsveitirnar á Seyðisfirði og Neskaupstað voru kallaðar út rétt fyrir hádegi en leitin hefur enn engan árangur borið. Konan hafði samband við Landhelgisgæsluna á tólfta tímanum og bað um aðstoð við að komast í land vegna þoku. 2.7.2006 16:34
Forseti Íslands flytur aðalræðu á Heimsþingi Lions Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands mun á morgun, 3. júlí flytja aðalræðu á Heimsþingi Lions hreyfingarinnar sem haldin er í Boston. Alþjóðaforseti Lions hreyfingarinnar, Ashok Mehta frá Indlandi, bauð forseta Íslands að flytja aðalræðu heimsþingsins. 2.7.2006 15:07
Mikil ölvun á útihátíðum Mikil ölvun var á útihátíðum víðs vegar um land í nótt. Á Ólafsvík myndaðist biðröð við heilsugæslu bæjarins vegna pústra manna á milli. 2.7.2006 12:52
Goðsögn að leikskólakennarar hætti vegna lágra launa Það er goðsögn að starfsfólk leikskóla hætti vegna lágra launa, samkvæmt nýlegri rannsókn. Flestir virðast líta á leikskólana sem ,,vertíðarvinnustað'' og lykilatriði að breyta því svo betur haldist á starfsfólki, segir lektor við Háskólann í Reykjavík. 2.7.2006 12:33
Bílvelta milli Geysis og Gullfoss Bílvelta varð hjá bænum Múla milli Geysis og Gullfoss rétt fyrir klukkan sex í morgun. Tveir piltar og ein stúlka, öll á tvítugsaldri voru flutt á Landspítala- Háskólasjúkrahúss með minniháttar meiðsli. 2.7.2006 12:21
Banaslys í Skagafirði Stúlka um tvítugt lést í bílslysi við Varmahlíð í Skagafirði snemma í morgun. Tvær stúlkur til viðbótar eru í lífshættu á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Önnur þeirra ók bílnum. 2.7.2006 11:57
Kona á kajak lenti í hafvillu á Seyðisfirði Erlend kona lenti í hafvillu á Seyðisfirði á tólfta tímanum í dag. Björgunarsveitirnar á Seyðisfirði og Neskaupstað leita að konunni eins og er. Engin hætta er á ferðum en konan hafði samband við Landhelgisgæsluna um að aðstoða sig við að komast í land vegna þoku. 2.7.2006 11:41
Landsmót hestamanna Um 11 þúsund manns eru á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sem lýkur í dag. Papar léku á stórdansleik í gærkvöldi og að sögn fjölmiðlafulltrúa mótsins ætlaði allt um koll að keyra þegar þeir stigu á stokk. Dansleikurinn fór að sögn lögreglu vel fram en þegar líða tók á nóttina var nokkuð mikill erill hjá lögreglu vegna ölvunnar og minniháttar fíkniefnamála. Búast má við mikilli umferð frá mótsstað seinni part dags og er fólk hvatt til að fara varlega. 2.7.2006 10:11
Mikil ölvun á færeyskum dögum Mikil ölvun var í Ólafsvík í nótt og svo mikið var um líkamsárásir að biðröð myndaðist við heilusgæslu bæjarins. 2.7.2006 10:09
Alvarlegt bílslys Alvarlegt bílslys varð fyrir utan Varmahlíð í Skagafirði þegar bíll fór útaf vegi nú undir morgun. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki voru fimm í bílnum og voru tveir þeirra sendir með þyrlu til aðhlynningar á Lansdspítalann. Þangað komu þeir fyrir stundu. Enn hafa engar upplýsingar fengist um líðan þeirra. 2.7.2006 10:08
Stjórnin ætti að segja af sér Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi áminningu sem Landspítalinn veitti Stefáni Matthíassyni ólögmæta.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi áminningu sem Landspítalinn veitti Stefáni Matthíassyni ólögmæta. 2.7.2006 08:30
Vörur varnarliðsins dýrari en fólk hélt Fjöldi fólks mætti í Sigtúnið í gær til að skoða muni varnarliðsins. Búið að losa tuttugu gáma af vörum og fleiri að bætast við enda varnarliðið á förum. 2.7.2006 08:15
Ekki færri ákærðir í Reykjavík síðan 1996 Samkvæmt ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík voru 856 einstaklingar ákærðir af embættinu á síðasta ári. Þetta er minnsti fjöldi ákærðra einstaklinga síðan 1996. Á síðasta ári voru karlar 87 prósent ákærðra. 2.7.2006 08:00
Vilja bætta heimaþjónustu Landsþing Kvenfélagasambands Íslands var haldið í 34. sinn um síðustu helgi, í Íþróttahöllinni á Akureyri. 2.7.2006 07:45
Blóðugt blaðastríð framundan David Montgomery, nýr eigandi fjölmiðlasamsteypunnar Orkla Media, er reiðubúinn undir blóðugt stríð á dagblaðamarkaði í Danmörku þegar útgáfa fríblaðs að hætti Fréttablaðsins hefst á helstu þéttbýlisstöðumí haust. 2.7.2006 07:45
Veruleg hætta skapaðist föstudagskvöld var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til Vestmannaeyja til þess að flytja sjúkling til Reykjavíkur vegna þess að sjúkraflugvélin var ekki til staðar. Samkvæmt samningi við Heilbrigðisráðuneytið ber fyrirtækinu skylda til þess að hafa vélina ávallt til taks í Vestmannaeyjum en Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir að það hafi ítrekað komið fyrir að vélin hafi ekki verið til staðar þegar þörf hefur verið á henni. Landsflug tók við sjúkrafluginu 1. janúar í ár en áður sinnti Flugfélag Vestmannaeyja því. 2.7.2006 07:45
Íbúðalánin dýrari Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti íbúðalána sjóðsins um 0,10 prósentustig og verða þeir 4,95 prósent. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25 punkta lægri vöxtum eða 4,70 prósent. 2.7.2006 07:30
Seldu líkama sambýliskvenna Sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi hefur kynnt árlega skýrslu um mansal hér á landi. Í kjölfar skýrslunnar gaf Alþjóðahús frá sér yfirlýsingu um að beinar rangfærslur væri að finna í skýrslunni þar sem vitnað er í lögfræðing Alþjóðahúss. Í yfirlýsingunni kemur fram að um sé að ræða trúnaðarupplýsingar sem áttu sér stað á milli lögfræðings Alþjóðahúss og skýrsluhöfundar með því fororði að þær mætti ekki rekja til upplýsingagjafa. 2.7.2006 07:30
Segja fólkið vera agndofa Byggðaráð Norðurþings og Langanesbyggðar á Norðausturlandi mótmæla áformum ríkisstjórnarinnar um frestun vegaframkvæmda í fjórðungnum harðlega og telja að framkvæmdir til að slá á þenslu í samfélaginu eigi ekki að koma til framkvæmda í landshlutum þar sem þensluáhrifa gætir ekki og hefur ekki gætt á undanförnum misserum. Þvert á móti hafi þar verið samdráttur og fólksfækkun á síðustu áratugum. 2.7.2006 07:30
Óskar eftir opinberri úttekt Elliði Vignisson bæjarstjóri Vestmannaeyja sendi á föstudag beiðni til Heilbrigðisráðuneytisins þar sem hann óskar eftir opinberri úttekt á stöðu sjúkraflugs til Vestmannaeyja. Beiðnina sendi hann vegna þess að það hefur ítrekað gerst að sjúkraflugvél er ekki til staðar í Vestmannaeyjum þegar þörf er á henni. 2.7.2006 07:15
Rokkað saman í ráðuneytinu Það var glatt á hjalla hjá ráðherrunum Sturlu Böðvarssyni og Magnúsi Stefánssyni þegar þeir tóku lagið saman í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu á dögunum. Þeir rifjuðu upp gömlu árin í poppbransanum en Magnús var um tíma landsþekktur poppari og Sturla vinsæll á sveitaböllum. 2.7.2006 07:00
Fimmta heimsmetið Daníel Jónsson stekkur sveittur af baki eftir að hafa sýnt stóðhestinn Stála frá Kjarri sem hlaut hæstu einkunn sem um getur í kynbótadómi. Daníel hefur sýnt alls 27 hross á landsmótinu og mörg þeirra oftar en einu sinni. Stáli hlaut 8,76 í aðaleinkunn og sló þar með met Þórodds frá Þóroddsstöðum frá síðasta landsmóti 8,74. 2.7.2006 07:00
Til aðstoðar ferðamönnum Alls munu fjórar björgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða staðsettar á hálendi Íslands frá og með deginum í gær og fram til 18. ágúst í þeim tilgangi að aðstoða ferðamenn og fækka slysum. 2.7.2006 06:45
Segja hryðjuverk skilgreind of vítt Skýrsla um hryðjuverkavarnir á Íslandi mætir talsverðri gagnrýni. Hægt að fella nánast hvað sem er undir hryðjuverk vegna of víðtækrar skilgreiningar; þrengt yrði að mannréttindum á Íslandi, segir hæstaréttarlögmaður. 2.7.2006 06:45
Fá bætur í allt að þrjá mánuði Í gær tóku gildi ný lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. 2.7.2006 06:45
Yfir hundrað milljarðar í framkvæmdir á næstunni Ekkert bólar enn á nákvæmri útlistun á því hvaða framkvæmdum ríkisstjórnin ætlar að fresta á næsta ári í viðleitni sinni við að draga úr þenslu. Hins vegar má lesa út úr langtímaáætlun í ríkisfjármálum, að ríkið ætlar nota hátt á annað hundrað milljarða króna í framkvæmdir næstu misseri. 1.7.2006 18:42
Lyfjafyrirtæki gagnrýnd harðlega fyrir skaðlegt markaðsstarf Grunur leikur á að markaðssetning stinningarlyfjanna Viagra og Cialis hér á landi, sé ólögleg. Neytendasamtökin hafa kallað Lyfjastofnun til aðstoðar. 1.7.2006 16:11
Fimm teknir fyrir hrað akstur Fimm teknir fyrir ofhraðan akstur af Lögreglunni á Keflavíkurvelli. Einn grunaður um ölvun við akstur. 1.7.2006 15:34
Gremst ítrekaðar lágflugsæfingar Varnarliðsins Landeigendur og ferðamenn á Rauðasandi á Barðaströnd eru gramir yfir ítrekuðum lágflugsæfingum Varnarliðsins á Breiðafirði. Um miðja síðustu viku flugu tvær F-15 orrustuþotur afar nærri Látrabjargi og í þar síðustu viku gerðist slíkt hið sama. 1.7.2006 15:27
Einleikjahátíð á Ísafirði Hin árlega leiklistarhátíð Act Alone stendur nú yfir á Ísafirði og lýkur á morgun. Fullt var á opnunar sýningu hátíðarinnar og er hátíðin almennt mjög vel sótt. 1.7.2006 14:59
Rólegt á Landsmóti hestamanna í nótt Allt var með ró og spekt á Landsmóti hestamanna í Skagafirði í nótt. Nokkrir voru þó teknir fyrir ölvunar akstur innan svæðis undir morgun. Lögreglan á Sauðárkróki segir að það sé óvenju gott ástand á svæðinu, miðað við fólksfjölda, en hátt í níu þúsund manns voru komnir á mótið í gærkvöldi. Mikill fjöldi fólks streymdi inn á svæðið í gær til að eyða þar helginni. Umferð var því að vonum þung og undir kvöldið hafði um 10 km löng bílaröð myndast frá mótsvæði til Varmahlíðar. 1.7.2006 13:30
Um 10.000 manns á Landsmóti Nóttin var með rólegasta móti á Landsmóti hestamanna að Vindheimamelum. Nálægt tíu þúsund manns eru nú á svæðinu en mótinu líkur á morgun. Einhver væta féll á gesti í nótt en í morgun braust sólin fram og að sögn Huldu G. Geirsdóttur fjölmiðlafulltrúa mótsins fer vel um fólkið, þótt töluvert sé farið að þéttast á svæðinu. 1.7.2006 13:30
Landhelgisgæslan áttatíu ára Landhelgisgæslan fagnaði áttatíu ára afmæli sínu í dag og boðið var til veislu í varðskipinu Óðni. Einnig var verið að fagna nýjum lögum um Landhelgisgæsluna sem taka gildi á morgun. Tvö varðskip sigldu inn höfnina fánum prýdd, skipslúðrar voru þeyttir og skotið var úr fallbyssum. Georg Lárusson, forstjóri 1.7.2006 13:11
Samfylkingin bretti upp ermar Samfylkingin þarf að bretta upp ermar ef ekki á illa að fara í næstu kosningum, segir varaþingmaður flokksins í norðausturkjördæmi. Ekki er hægt að kenna formanninum einum um hversu illa gengur. Samfylkingin mældist aðeins með rúmlega 24% prósenta fylgi í skoðanakönnun. Fréttablaðsins í gær. Fylgið er heilum 6%-stigum undir kjörfylgi í síðustu kosningum, -og hið minnsta sem flokkurinn hefur mælst með í könnunum eftir kosningarnar 2003. Sjálfstæðisflokkurinn og minni flokkarnir vinna hins vegar á. 1.7.2006 12:54
Tæplega 10 þúsund manns komnir á Vindheimamela í Skagafirði Tæplega 10 þúsund manns eru komnir á Vindheimamela í Skagafirði til þess að fylgjast með Landsmóti hestamanna. Í gærkvöldi var haldinn stórdansleikur með Todmobil sem stóð fram eftir nóttu og að sögn lögreglu á svæðinu fór allt vel fram fyrir utan einstaka pústra. 1.7.2006 12:20
Íbúðalánasjóður hækkar húsnæðisvexti Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,1 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í fyrradag að því er fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands. 1.7.2006 11:45
Landsbjörg kemur útlendingum til bjargar Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu, sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í gær, biðu ekki lengi eftir fyrsta viðfangsefninu. Þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn verða á fjórum stöðum á hálendinu í sumar með það að markmiði að fækka slysum. 1.7.2006 11:45
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent