Innlent

Fimmta heimsmetið

Bestur Daníel Jónsson þakkar fyrir sig þar sem hann ríður síðasta sprettinn á Stála frá Kjarri sem hlaut hæstu einkunn sem um getur í kynbótadómi, 8,76.
Bestur Daníel Jónsson þakkar fyrir sig þar sem hann ríður síðasta sprettinn á Stála frá Kjarri sem hlaut hæstu einkunn sem um getur í kynbótadómi, 8,76. MYND/Valli

Daníel Jónsson stekkur sveittur af baki eftir að hafa sýnt stóðhestinn Stála frá Kjarri sem hlaut hæstu einkunn sem um getur í kynbótadómi. Daníel hefur sýnt alls 27 hross á landsmótinu og mörg þeirra oftar en einu sinni. Stáli hlaut 8,76 í aðaleinkunn og sló þar með met Þórodds frá Þóroddsstöðum frá síðasta landsmóti 8,74.

Daníel var einnig knapi Þórodds þá og er þetta í fimmta sinn á fimm árum sem Daníel slær einkunnamet í kynbótadómi.

Hestarnir eru allir á sinn hátt í uppáhaldi. Þóroddur var yngstur þegar hann sló sitt met þannig að maður horfir svolítið til hans, en annars geri ég ekki upp á milli þeirra, segir Daníel glaðbeittur, nýkominn úr myndatöku með bikarinn góða.

Daníel þakkar góðan árangur því að hann leggi allt í sölurnar. Þá hafi hann einnig gott fólk með sér og einhugur ríki um að gera sitt besta.

Þessar tölur Þórodds og Stála verða seint slegnar, heldur Daníel fram og gerir ekki ráð fyrir að bæta við heimsmeti í bráð. Svo verður maður ekki í þessu til dauðadags þannig að ég þakka fyrir hverja stund, segir hann glaðlega.

Daníel segir það frábæra tilfinningu að ríða á landsmóti á besta hestinum þar sem áhorfendur fagna vel. Hann gerir þó lítið úr sínu framlagi. Það er hesturinn sem nær brekkunni með sér, segir Daníel en viðurkennir þó að það þurfi nokkra tilburði knapans til. Ég hef haft það fyrir sið að þakka fyrir mig, segir Daníel sem er þekktur fyrir að veifa til fjöldans á síðasta sprettinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×