Innlent

Landsbjörg kemur útlendingum til bjargar

Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu, sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í gær, biðu ekki lengi eftir fyrsta viðfangsefninu. Þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í gærkvöld. Björgunarsveitarmenn verða á fjórum stöðum á hálendinu í sumar með það að markmiði að fækka slysum. Björgunarsveitarmenn í Strákum á Siglufirði voru beðnir um að kanna lokaðan veg á Sprengisandsleið sem liggur inni í Eyjafjörð. Þar óku þeir fram á mannlausan bílaleigubíl sem var fastur. Frá honum lágu spor og ráku mennirnir þau að skálanum í Laugafelli skammt frá. Þar voru ferðamennirnir og fengu þeir aðstoð við að komast með bílinn á opna slóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×