Fleiri fréttir

Helmingur styður sitjandi ríkisstjórn

Tæplega 51 prósent segist styðja núverandi ríkisstjórn undir forsæti Geirs H. Haarde sem er heldur minna en samanlagt fylgi ríkistjórnarflokkanna. Meirihluti íbúa á höfuðborgar­svæðinu styður ekki ríkisstjórnina. Mun meiri stuðningur utan höfuðborgarsvæðið.

Sýnir ógöngur málsins

"Þessi niðurstaða sýnir í hvers konar ógöngum saksóknari er með málið og niðurstaðan er auðvitað jákvæðar fréttir," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, um niðurstöðu héraðsdóms í Baugsmálinu í gær.

Skemmtiferðaskipin full af Þjóðverjum

Þau verða tæp áttatíu, skemmtiferðaskipin sem koma til Reykjavíkur í sumar. Þjóðverjar eru fjölmennastir í hópi farþega sem koma sjóleiðis til Íslands.

Lækka um 50 milljónir á ári

Fóðurtollar verða afnumdir á hráefni til fóðurgerðar og tollur á fullbúnar fóðurblöndur lækkar um helming samkvæmt nýrri reglugerð landbúnaðarráðuneytisins. Breytingin tekur gildi 1. júlí.

Hefur áhrif á námsárangur

Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á dögunum um heilsusamlegar byggingar kom fram að loftgóðar skólastofur bæta námsárangur. Flestir eyða um 90 til 95 prósentum ævi sinnar innandyra og margir eyða innan við klukkutíma utanhúss á dag.

Mætti strax aftur til vinnu

Sundlaugin á Eskifirði var opnuð aftur í gær eftir að hafa verið tæmd og hreinsuð vandlega vegna klórgasmengunarinnar frá því á þriðjudaginn. Margir lögðu leið sína í laugina yfir daginn og enginn beygur var í fólki vegna slyssins að sögn Andra Bergmanns Þórhallssonar sundlaugarvarðar.

Bæturnar verða tekjutengdar

Ný lög um atvinnuleysisbætur taka gildi í dag. Samkvæmt þeim eiga einstaklingar nú rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum fyrstu þrjá mánuði atvinnuleysis, sem nema 70 prósent af heildarlaunum viðkomandi, en þó aldrei hærri fjárhæð en 185.400 krónum á mánuði.

Fannst hann vera snuðaður og reiddist

Kópavogsbúi keypti Voltaren Rapid hjá Lyfjum og heilsu áður en verðkönnun ASÍ var gerð. Honum var ekki bent á samheitalyf. Hefði hann farið í Garðs Apótek, þar sem vísað er á samheitalyf, hefði hann sparað sér 1.500 krónur.

Ósammála rökstuðningnum

Það er engin hoppandi gleði hjá okkur yfir úrskurðinum. Mér finnst þetta þunnur rökstuðningur og rangur, ég er ósammála honum og tel að hann standist ekki, segir Brynjar Níelsson, lögmaður Jóns Geralds Sullenberger.

Adrenalín flæddi á vellinum

Hestamennska er sport fyrir alla fjölskylduna. Það lýsir sér kannski best í þeirri breidd sem er á aldri keppenda á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum. Þar er yngsti keppandinn rétt um níu ára en sá elsti 76 ára.

Samfylkingin tapar fylgi

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup mælist Samfylkingin nú með 25 prósent fylgi og tapar fjórum prósentum frá síðasta mánuði. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í gær.

Harma viðbrögð ráðherra

Lyfjafræðingar Lyfja og heilsu hafa sent bréf til heilbrigðisráðherra þar sem þeir segjast telja ráðherrann hafa vegið alvarlega að starfsheiðri þeirra með yfirlýsingum um lyfjaverð og þjónustu lyfjafræðinga síðustu daga og harma viðbrögð ráðherra.

Rúmlega 8.000 á síðasta ári

Hér á landi voru notuð 8.065 dýr við leyfisskyldar dýratilraunir í fyrra, samkvæmt ársskýrslu Yfirdýralæknis.

Yngsta áhöfnin vann

Fyrsta skútan í siglingarkeppninni „Skippers d'Islande“ kom í höfn klukkan hálf átta í morgun. Skipstjórinn var yngsti þátttakandi keppninnar, hin 25 ára gamla Servane Escoffier frá Frakklandi.

Komu ferðamönnum til aðstoðar

Björgunarsveitarmenn í Landsbjörgu sem hleyptu af stokki nýju slysavarnaverkefni á hálendinu í dag þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta viðfangsefninu því þeir komu útlendum ferðamönnum til aðstoðar í kvöld.

Hreyfli veitt undanþága fyrir samræmda gjaldskrá

Leigubílastöðin Hreyfill hefur fengið leyfi hjá Samkeppniseftirlitinu til að hafa samræmda gjaldskrá fyrir bíla sína eftir að hámarksökutaxti leigubifreiða verður afnuminn á morgun.

Nærri 4,8 milljarða tap á 2. ársfjórðungi hjá Avion

Nærri 4,8 milljarða króna tap varð af rekstri Avion Group á öðrum ársfjórðungi fyrirtækisins, sem miðast við 1. febrúar til 30. apríl. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að tapið megi að miklu leyti rekja til gengistaps af erlendum skuldum.

Risaútsala á eignum varnarliðsins í hálft ár

Risaútsala á eigum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefst í gamla Blómavalshúsinu á morgun klukkan tíu. Þar geta áhugasamir keypt ýmsa eigulega muni, þar á meðal stóla úr offiseraklúbbnum og poppkornsvél úr Andrews Theater.

Breytingar bitni á þeim sem minnst mega sín

Breytingar á hámarkslánum og lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs eiga eftir að koma verst við þá sem minnst mega sín, að mati Elnu Sigrúnar Sigurðardóttur hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Hún segir að aðrar leiðir séu þó vandfundnar til að slá á þensluna á húsnæðismarkaði.

Bréf Straums lækkuðu mest í dag

Bréf Straums-Burðaráss lækkuðu mest allra bréfa í Kauphöllinni í dag. Lífeyrissjóður Verslunarmanna vill selja hlut sinn í bankanum.

Vextir Íbúðalánasjóðs hækka upp í 4,95 prósent

Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,10 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í gær að því er kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands.

Telja að hætta beri við Norðlingaölduveitu

Þingflokkur Samfylkingarinnar telur að hætta beri við Norðlingaölduveitu í kjölfar úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur um framkvæmdina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

31 hefur sagt upp vegna kjaradeilna BHM

Þrjátíu og einn starfsmaður hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra sagði upp störfum í dag vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Þeir segja grunnlaun þroskaþjálfa getað hækkað um þrjátíu þúsund krónur með því að flytja sig yfir til sveitarfélaganna.

Átak gegn mansali

Jafnaðarmenn lögðu fram á þingi Norðurlandaráðs í Færeyjum í vikunni, tillögu þess efnis, að sameiginlegri áætlun gegn mansali yrði komið á fót. Árlega verða um 800.000 konur og börn fórnarlömb mansals í heiminum.

Forseta Túnis afhent trúnaðarbréf

Sendiherra Íslands í Túnis, Svavar Gestsson, afhenti forseta lýðveldisins Túnis, Zine El Abidine Ben Ali, trúnaðarbréf þann 29. júní s.l. Ræddi sendiherran við Túníska ráðamenn og var meðal annars rætt um undirbúning að framboði Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og fríverslunarsamning Túnis og EFTA.

Alþjóðleg leiklistarhátíð Döff-leikhúsa

Á Akureyri er í uppsiglingu alþjóðleg leiklistarhátíð leikhúsa sem sérhæfa sig í leikhúsi fyrir heyrnarlausa, svo kölluð Döff-leikhús. Hátíðin sem haldin er í samvinnu við norræna menningarhátíð heyrnarlausra, ber nafnið Draumar 2006 og verður dagana 10.-16. júlí á sama tíma og Listasumar á Akureyri.

Forseti Grikklands á leið til Íslands

Forseti Grikklands, Karolos Papoulias og kona hans May Papoulis, munu koma í opinbera heimsókn til Íslands 5.-7. júlí næstkomandi í boði forseta Íslands. George W. Bush, Bandaríkaforseti, mun þá einnig vera á landinu, í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar en hann kemur til landsins 4. júlí.

Rannsókn ekki lokið á klórgasslysinu

Lögreglan á Eskifirði hefur ekki lokið rannsókn sinni á klórgasslysinu sem varð á Eskifirði á þriðjudag. Ekki er búist við að rannsókninni ljúki fyrr en eftir helgi. Um þrjátíu mans voru fluttir á sjúkrahús eftir að edeksýru var blandað saman við klór í tanki sundlaugarinnar á Eskifirði.

Fellur úr gildi á miðnætti

Samkeppniseftirlitið álítur að samkeppni geti þrifist á leigubílamarkaði. Verðlagning eigi ekki að vera verkefni stofnunarinnar. Leigubílstjórar eru þó ósáttir við afnám hámarksökutaxta sem tekur gildi á morgun.

Íslandspóstur veitir launahækkun

Félagsmenn Póstmannafélags Íslands munu frá og með 1. ágúst fá 15.000 kr. launahækkun. Íslandspóstur gaf út yfirlýsingu í dag þess efnis að laun allra starfsmanna sem taka laun samkvæmt launatöxtum í kjarasamningi Póstmannafélagsins og Íslandspósts muni hækka sem að þessu nemur. Íslandspóstur segist með þessari hækkun vera að framfylgja þeirri stefnu fyrirtækisins að hækka laun þeirra er lægst eru launaðir hjá fyrirtækinu. Fulltrúar Póstmannafélagsins voru að vonum ánægðir með þessa ákvörðun.

Samfylkingin tapar miklu fylgi

Samfylkingin tapar miklu fylgi og mælist með aðeins rúm tuttugu og fjögur prósent, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins, en Sjálfstæðisflokkurinn og minni flokkarnir vinna á.

Eldur kviknar í spilhúsi

Eldur kviknaði í svonefndu spilhúsi í Slippnum við Reykjavíkurhöfn á tíunda tímanum í morgun, en þar eru dráttarspil til að draga skip upp í slippinn. Slökkviliðið sendi liðsafla á vettvang þar sem málningargeymsla er skammt frá spilhúsinu, full af eldfimum efnum. Greiðlega gekk hinsvegar að slökkva eldinn í spilhúsinu og var hættan þar með úr sögunni. Eldsupptök eru ókunn.

Fráskilin hjón dæmd fyrir ofbeldi hvort gegn öðru

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt fráskilin hjón í fimm og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi hvort gegn öðru, karlinn fyrir að hafa gengið í skrokk á konunni og konuna fyrir að hafa stungið karlinn með hnífi. Við rannsókn málsins fundust hátt í 200 kannabisplöntur í fórum þeirra, 280 grömm af marijúana og fimm lítrar af kannabisblönduðum vökva.

20 höfðu sagt upp á hádegi

Fjöldi starfsmanna hjá Svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra ætlar að segja upp störfum í dag vegna óánægju með hægagang í kjaraviðræðum BHM við ríkið. Starfsmenn Svæðisskrifstofu Reykjaness byrjuðu að skila inn uppsagnarbréfum klukkan 11 í morgun og höfðu um tuttugu manns sagt upp skömmu fyrir hádegi.

Menntamálaráðherra skipar í stjórn Rannsóknasjóðs

Menntamálaráðherra hefur skipað stjórn Rannsóknasjóðs, með Guðrúnu Nordal sem formann. Hlutverk sjóðsins er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi svo sem skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnanir og fyrirtæki. Stjórn Rannsóknasjóðs er heimilt, að tillögu vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, að veita viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í vísindarannsóknum af ráðstöfunarfé Rannsóknasjóðs. Stjórn Rannsóknasjóðs fer einnig með stjórn Tækjasjóðs.

Einum lið af 19 vísað frá

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag fyrsta ákærulið af 19 í Baugsmálinu frá dómi. Sá ákæruliður snýr að sölu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Vöruveltunni til Baugs. Dómurinn hafnaði hins vegar kröfu verjenda um að vísa hinum átján ákæruliðunum frá dómi.

Mikill lax slæðist í veiðarfæri á sjó úti

Í nýlegri könnun IMG Gallup kemur fram að fjöldi laxa í sjó sem slæðast með í veiðarfæri sjómanna eru 3200 til 7000 laxar á vertíð. Gallup sendi út spurningar til sjómanna í landinu og niðurstaðan er mikið hærri fjöldi laxa en talið hafði verið. Þetta magn jafnast á við tvöfalda heildarveiði úr fengsælustu laxveiðiám landsins þegar sem best lætur. Þetta kemur fram á vef Skessuhornsins.

Umræðufundur um þjónustuskipun ESB

BSRB hefur boðað til umræðufundar, fimmtudaginn 6. júlí, um þjónustuskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur Evrópu. Gestir funarins eru forystumenn Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu (PSI), þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI.

Þingmaður VG vill fund þingmanna Norðvesturkjördæmis

Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna í Noðrvesturkjördæmi, hefur óskað eftir því að fyrsti þingmaður kjördæmisins, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, kalli saman þingmenn kjördæmisins og stjórnendur Vegagerðarinnar til að fjalla um niðurskurð á vegaframvæmdum í fjórðungnum.

Nýr aðstoðamaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur verið ráðinn.

Arnar Þór Sævarsson, héraðsdómslögmaður,hefur verið ráðinn aðstoðarmaður iðnaðar-og viðskiptaráðherra frá og með 1. júlí næst komandi. Arnar Þór er 34 ára og hefur áður starfað hjá Fjármálaeftirlitinu og þar á eftir Símanum. Hann er útskrifaður frá Háskóla Íslands árið 1999 en öðlaðist hérðasdómslögmannaréttindi árið 2000 og lauk prófi í verðbéfaviðskiptum árið 2001.

Ísland tekur þátt í Feneyjar tvíæringnum

Ísland mun í ár, í fyrsta sinn, taka þátt í Feneyja tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag er haldin verður í Feneyjum 10. september til 19. nóvember. Framlag Íslendinga mun vera kynning á tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við Austurhöfn í Reykjavík ásamt skipulagi og uppbyggingu í miðborginni. Hönnun hússins verður í brennidepli en ásamt því verður lögð áhersla á að kynna Reykjavík sem menningar og ráðstefnuborg.

Markaðsdagur í Bolungarvík

Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík er á morgun, 1. júlí. Fjölbreytt dagskrá verður yfir daginn og fjölmargir sölubásar verða á staðnum. Skemmtuninni lýkur svo um kvöldið með stórdansleik.

Sjá næstu 50 fréttir