Innlent

Yfir hundrað milljarðar í framkvæmdir á næstunni

Ríkisstórnin samþykkti í vikunni að taka ábyrg niðuskurðar- og aðhaldsskref í kjölfar samkomulags við aðila vinnumarkaðarins í þeim tilgangi að kveða niður verðbólgudrauginn illræmda.

 

Ríkisstjórnin ætlar að draga saman framkvæmdir á næsta ári um sem nemur tveimur til þremur milljörðum króna.

 

Ríkið ætlar hins vegar að fjárfesta fyrir um þrettán milljarða króna í ár, tæpa 23 milljarða næsta ár og nærri 30 milljarða 2008.

 

 

Að auki verður fljótlega farið að eyða símamilljörðunum 67. Fimm af þessum milljörðum byrja að streyma út úr sjóðum ríkisins strax eftir áramót og fara í varðskip, flugvélar, hátæknisjúkrahús, vegi, brýr og fleira smálegt.

 

En aftur nær í tíma. 23.000 fermetra Tónlistar- og ráðstefnumiðstöð við Reykjavíkurhöfn á að vera tilbúin eftir þrjú ár. Þetta framkvæmd upp á 12,5 milljarð króna og er samvinnuverkefni ríkis, borgar og einkaaðila, .

 

 

Við Austurhöfn munu einnig rísa íbúðir, hótel, verslanir og síðast en ekki síst nýjar höfuðstöðvar Landsbankans. Alls verða þetta um 80.000 fermetrar og heili pakkinn gæti kostað 50 til 60 milljarða króna sem læða sér í rólegheitum inn í hagkerfið á næstu árum.

 

En aftur að opinberum framkvæmdum. Eftir helgina hefjast framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng, en þau munu kosta eina sjö milljarða króna. Tvö til þrefaldur verðbólgu-draugs-niðurkvaðninga-sparnaðar ríkisstórnarinnar.

 

Á næsta ári fara hins vegar ekki nema litlar 200 milljónir í undirbúning að Hátæknisjúkrahúsi við Hringbraut, en síðan er reiknað með að skriður komist á málið undir forystu Alfreðs Þorsteinssonar. Heildarpakkinn verði upp á 35 til 40 milljaraða króna. Um það bil 15 til 20 sinnum það sem ríkisstjórnin ætlar að spara.

 

Þeir flokkar sem mynda meirihluta í Reykjavíkurborg hafa lofað Sundabraut, -og það heldur fyrr en seinna í anda framkvæmdastjórnmála. Pakki sem gæti kostað 15 milljarða. 5 til 7 sinnum það sem á að spara.

 

Fyrir utan það sem kalla má venjulegar framkvæmdir ríkisins upp á nokkra milljarðará ári, fara samanlagt um fjörtíu milljarðar í sérstakar framkvæmdir. Fyrir utan það sem sveitarfélaög og einkaaðilar gera.

 

Ríkið ætlar að draga úr framkvæmdum sem nemur 2 til 3 milljörðum á næsta ári. Þannig má drepa verðbólgudraugsa og veislan heldur áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×