Innlent

Vill aðgang að gögnum

Ragnar Aðalsteinsson
Ragnar Aðalsteinsson

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður krefst þess að Björn Bjarnason víki sæti sem dómsmálaráðherra þegar ósk hans um aðgang að gögnum um hleranir ýmissa Íslendinga á tímum kalda stríðsins, verður tekin til úrskurðar. Beiðninni hefur tvívegis verið hafnað.

Ég hef ekki fengið nein lagaleg rök fyrir því hvers vegna beiðni minni var synjað. Fyrst og fremst vil ég fá að sjá þau rök.

Ragnar krefst þess að aðgangur að þessum gögnum verði veittur en óskin kemur í kjölfar rannsókna Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings, sem leiddu í ljós að um tíma voru símar þingmanna hleraðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×