Innlent

Gagnrýni á skilgreiningu

 Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna lýsti í fyrra yfir áhyggjum sínum yfir því hversu óljós og víðtæk skilgreining á hryðjuverkum væri í íslenskum lögum. Í lokaathugasemdum mannréttindanefndarinnar kom fram að skilgreiningin gæti náð til lögmæts athæfis í lýðræðisþjóðfélagi og stefnt því í hættu, einkum þátttöku í opinberum mótmælum. Sérstaklega er vísað í 2. og 21. greinar mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem snúa að almennt viðurkenndum réttindum borgara og réttinum til að koma friðsamlega saman.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×