Innlent

Hundurinn gat varla gengið

Fólk sem var á ferð um Ægisíðuna síðastliðinn fimmtudag gekk fram á hund í slæmu ástandi og gerði lögreglu viðvart vegna gruns um slæma meðferð á dýrum.

Sjónarvottur sá hundinn ráfandi um á Ægisíðunni fyrir neðan Skildinganesið og sá að hann var í mjög slæmu ástandi. Hundinum blæddi og hann gat varla gengið, enda hárin á afturfótunum flækt og klesst saman svo hann gat varla notað afturfæturna. Hárið var kleprað og flækt og hann var greinilega gamall og illa farinn. Hálsól hundsins skarst inn í holdið, svo varla mátti greina hana. Sjónarvottur sagðist aldrei hafa séð annað eins á Íslandi.

Hundurinn ráfaði aftur að húsi umsjónarmanna sinna í hverfinu og þá sáu sjónarvottar að fleiri hundar voru þar í haldi. Þeir virtust þó ekki vera illa haldnir. Í kjölfarið hafði sjónarvottur samband við lögreglu.

Lögreglan segist hafa haft afskipti af málinu og beint þeim tilmælum til umsjónarmanna hundsins sem búa í þessu húsi í Skerjafirði, en eru ekki eigendur hundsins, að hafa ætti samráð við dýralækni. Að sögn lögreglu sögðu umsjónarmennirnir að hundurinn væri þungt haldinn af gigt og helst vildu þeir leyfa honum að deyja, en eigandi hans vilji ekki láta lóga honum. Engin kæra liggur fyrir vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×