Innlent

Hefur áhrif á námsárangur

Gott loft er mikilvægt fyrir góðan námsárangur.
Gott loft er mikilvægt fyrir góðan námsárangur.

 Á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á dögunum um heilsusamlegar byggingar kom fram að loftgóðar skólastofur bæta námsárangur. Flestir eyða um 90 til 95 prósentum ævi sinnar innandyra og margir eyða innan við klukkutíma utanhúss á dag.

Rósa Magnúsdóttir hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar sótti ráðstefnuna en hún segir að of hátt hitastig og hár koltvísýringur í loftinu geti valdið lakari námsárangri vegna þess að við slíkar aðstæður minnkar einbeiting nemenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×