Innlent

Samfylkingin tapar fylgi

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup mælist Samfylkingin nú með 25 prósent fylgi og tapar fjórum prósentum frá síðasta mánuði. Þetta kom fram í fréttum Sjónvarpsins í gær.

Er þetta svipað fylgi og Samfylkingin fékk í könnun Fréttablaðsin sem birtist í gær, en þar mædist hún með 24,2 prósent fylgi, sem er það minnsta sem flokkurinn hefur mælst með frá síðustu alþingiskosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 43 prósent fylgi samkvæmt Gallup og Vinstri græn með 19 prósent og bæta báðir töluvert við sig. Framsókn mælist með 9 prósent og Frjálslyndir með 7 prósent fylgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×