Innlent

Vextir Íbúðalánasjóðs hækka upp í 4,95 prósent

MYND/Vilhelm

Íbúðalánasjóður hefur hækkað húsnæðisvexti sína um 0,10 prósent og eru þeir nú 4,95 prósent. Þetta er gert eftir útboð á íbúðabréfum sem haldið var í gær að því er kemur fram í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði til Kauphallar Íslands. Húsnæðisvextir Íbúðalánasjóðs eru nú hærri en allra þriggja stóru viðskiptabankanna og SPRON. Fjögurra komma níutíu prósenta vextir eru af íbúðalánum SPRON, Glitnis og Landsbankans en fjögurra komma sjötíu og fimm prósenta vextir af íbúðalánum KB banka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×