Innlent

Harma viðbrögð ráðherra

Lyfjafræðingar Lyfja og heilsu hafa sent bréf til heilbrigðisráðherra þar sem þeir segjast telja ráðherrann hafa vegið alvarlega að starfsheiðri þeirra með yfirlýsingum um lyfjaverð og þjónustu lyfjafræðinga síðustu daga og harma viðbrögð ráðherra.

Lyfjafræðingar Lyfja og heilsu "eru hluti af heilbrigðisstarfsfólki landsins og það er einsdæmi að heilbrigðisráðherra kjósi að draga í efa fagleg vinnubrögð ákveðinnar heilbrigðisstéttar," segir meðal annars í bréfinu.

Gagnrýni ráðherra kom í kjölfar könnunar ASÍ á verði lyfja og hverjir buðu samheitalyf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×