Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sérfræðingur Microsoft í öryggismálum staddur hér á landi Jesper Johansson, einn þekktasti sérfræðingur Microsoft í öryggismálum, er staddur hér á landi. Hann hefur skorað á hólm margar viðteknar venjur og aðferðir í öryggismálum varðandi upplýsingatækni. 27.3.2006 13:29
Laugalækjarskóli rýmdur vegna reyks Slökkviliðið var kallað að Laugalækjarskóla í Reykjavík um tólfleytið í dag. Pappír var settur í örbylgjuofn í kjallara skólans. 27.3.2006 13:26
Framkvæmdir stöðvaðar við gamla Hlaðvarpann Framkvæmdir við ris gamla Hlaðvarpans hafa verið stöðvaðar á meðan verið er að rannsaka hvort þær standist deiliskipulag. Grunur leikur á að hæð rissins sé of mikil. 27.3.2006 12:45
Búið að opna Ólafsfjarðarmúla eftir snjóflóð í morgun Snjóflóð féll á veginn um Ólafsfjarðarmúla um klukkan hálfellefu í morgun. Búið er að opna veginn aftur og er hann nú greiðfær. Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Ófært er á Lágheiði. 27.3.2006 11:58
Nýr formaður SFR Árni Stefán Jónsson var kjörinn formaður SFR, stéttarfélags i almannaþjónustu á aðalfundi félagsins síðastliðinn laugardag. Árni Stefán hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 16 ár. 27.3.2006 10:56
Maður lést í sprengingu á Kárahnjúkasvæðinu Karlmaður á tuttugasta og sjöunda aldursári lést í sprengingu á Kárahnjúkasvæðinu snemma í morgun. Engin slys urðu á öðru fólki. 27.3.2006 10:55
Aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar Forráðamenn stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í efnahagslífinu almennt góðar. Þetta kemur fram í nýrri könnun IMG Gallup um stöðu og horfur stærstu fyrirtækja á Íslandi. 75 prósent aðspurðra telja aðstæðurnar góðar en um 11 prósent telja þær slæmar. 27.3.2006 10:36
Harður árekstur varð rétt ofan við Höfðabakka og Gullinbrú Harður árekstur varð rétt ofan við gatnamótin á Höfðabakka og Gullinbrú rétt fyrir klukkan níu í morgun. Bifreið var ekið aftan á aðra með þeim afleiðingum að sú tókst á loft, lenti á tré og þaðan á kyrrstæðan bíl sem var lagt á bílastæði ofan við götuna. Bifreiðin endaði síðan fór sína á grjótgarði sem aðskilur bílastæðið og götuna. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka en tveir bílanna eru ónýtir. 27.3.2006 09:54
Ófært á Norðurlandi Veðurstofan tilkynninr að greiðfært sé um Suður- og Vesturland en éljagangur er á Holtavörðuheiði. Á Vestfjörðum er búið að moka Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði, Klettsháls og Steingrímsfjarðarheiði en þar er hálkublettir og skafrenningur. 27.3.2006 09:47
Albert Jónsson næsti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum? Albert Jónsson, sem var ráðgjafi Davíðs Oddssonar um árabil, einkum í öryggismálum, og Davíð skipaði sendiherra undir lok utanríkisráðherratíðar sinnar, verður að öllum líkindum næsti sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. 27.3.2006 07:55
Skrölti af vettvangi með aðeins þrjú hjól undir bílnum Maður sem olli hörðum árekstri í Keflavík í fyrrinótt, en tókst að skrölta af vettvangi þó aðeins þrjú hjól væru eftir undir bílnum, gaf sig fram við lögregluna í gærkvöldi. 27.3.2006 07:17
Um tuttugu tegundir á hundasýningu Íshunds Það var líf og fjör á alþjóðlegri hundasýningu hjá hundaræktunarfélaginu Íshundi nú um helgina. Þær voru ekki ófáar fyrirsæturnar og þær kunna svo sannarlega að meta athyglina. 26.3.2006 18:45
Æfingu lokið Bergrisanum 2006 lauk kl. 15.30 í dag. Á milli 1400 og 1500 manns; íbúar, stjórnendur og viðbragðsaðilar tóku þátt í æfingunni um helgina. Á næstunni munu viðbragðsaðilar og stjórnendur rýna æfinguna og nýta niðurstöður þeirra vinnu til endurbóta á neyðarskipulagi vegna eldgosa í Mýrdalsjökli. 26.3.2006 18:00
Fjölmenni á stofnfundi AFA Fjölmenni var á stofnfundi AFA, Aðstandendafélags aldraðra í Hafnarfirði í dag. Heilbrigðisráðherra segir vitundarvakningu hafa orðið í málefnum aldraðra. 26.3.2006 17:53
Rótahátíð í Menntaskólanum á Ísafirði Rótahátíð var haldin í Menntaskólanum á Ísafirði í dag til að fagna fjölbreytileika í samfélaginu. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum alþingismaður, ráðherra og skólameistari MÍ setti hátíðina formlega í dag klukkan eitt. 26.3.2006 16:09
Áætlunarflug British Airways til Íslands er hafið. Þota félagsins, af gerðinni Boeing 737-400, lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun með 66 farþega og tók til baka með 78 manns til Gatwick-flugvallar í London. 26.3.2006 16:07
Sjálstæðismenn með vísan meirihluta Sjálfstæðismenn ættu næstan vísan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun sem Fréttablaðaðið birtir í dag. Samfylkingin fengi fimm borgarfulltrúa og Vinstri grænir einn. Framsóknarflokkurinn mælist minnstur flokka í Reykjavík, og nær ekki inn manni frekar en Frjálslyndir, sem þó bæta við sig fylgi. 26.3.2006 12:00
Flestar leiðir færar Skafrenningur og þæfingur er víða á vegum um landið en þó eru flestar leiðir færar. Á Vestfjörðum er þæfingur á Dynjandisheiði og jeppaslóð er yfir Hrafnseyararheiði. Skafrenningur er á heiðum á Vestfjörðum. Á Norðurlandi er víða éljagangur og skafrenningur en helstu leiðir eru færar. 26.3.2006 11:55
Par handtekið í nótt á rölti með eins árs gamalt barn sitt í vagni Lögreglan í Reykjavík handtók í nótt ölvað par á gangi með eins árs gamalt barn sitt í vagni, að sögn lögreglu var fólkið í mjög ölvað og verður það yfirheyrt þegar það verður búið að sofa úr sér. 26.3.2006 09:26
Stjórnvöldum ber að fara sér hægt Forstjóri Vinnumálastofnunar segir íslensk stjórnvöld eiga að fara sér hægt í að opna fyrir frjálsa för fólks frá hinum nýju aðildarríkjum Evrópusambandsins. Ráðamenn þurfa að taka ákvörðun fyrir 1. maí um það hvernig verði að málunum staðið. 25.3.2006 18:45
26.grein stjórnarskrárinnar þarf að endurskoða Fræðimenn eru ekki sammála um hvort halda skuli synjunarvaldi forsetans til haga í endurskoðaðri stjórnarskrá. Þeir virðast þó vera á einu máli, um að ef synjunarvaldið verði áfram til staðar, þá verði að eyða óvissu um hvernig því skuli beitt. Þetta kom fram á málþingi í dag um forsetaembættið og stjórnarskrána í sögulegu ljósi. 25.3.2006 18:19
Danske bank sökkti Færeyjum Danske Bank lék ekki einvörðungu stóra rullu í hruni hagkerfis Færeyinga 1990 heldur naut bankinn aðstoðar danskra stjórnmálamanna við að flýja landið þegar allt var að komast í kalda kol, segir Högni Hoydal, þingmaður Færeyja á danska þjóðþinginu.Bankinn kom þó ekki upplýsingum á framfæri sem kafsigldu hagkerfið eins og Halldór Ásgrímsson hélt fram í fréttum NFS í gærkveldi. 25.3.2006 18:16
Greiningardeild Glitnis spáir 6% verðbólgu í maí Verðbólgan mun mælast sex prósent í maí gangi spáin greinindardeildar Glitnis eftir. Verðbólgan verður þá nokkuð yfir efri þolmörkum Seðlabankans, sem eru fjögur prósent, og hvergi nærri verðbólgumarkmiði bankans sem er tvö komma fimm prósent. Litlar líkur eru taldar á að verðbólgan fari undir efri þolmörk Seðlabankans í bráð. 25.3.2006 16:02
Bankakreppulykt frá Íslandi segir Berlingske Hlutabréf í íslensku bönkunum eru á brunaútsölu og bankakreppulykt leggur frá Íslandi. Þannig lýsir danskur hagfræðiprófessor ástandinu hér á landi í danska dagblaðinu Berlinske Tidende í dag. Fjárfestar sjá rautt, segir í fyrirsögn fréttarinnar. 25.3.2006 12:33
Kynjafræði eigi erindi inn í kennaramenntun Taka ætti upp kynjafræði í kennaranám meðal annars til að takast á við jafnréttismálin og kynferðisofbeldi í samfélaginu, að mati lektors í uppeldis- og menntunarfræði við Kennaraháskóla Íslands. Könnun sýnir að kennaranemar sýna námsgreininni mikinn áhuga. 25.3.2006 12:30
Ráðamenn eiga að virða reglur rétt eins og stjórnsýslulög Virði ráðamenn ekki reglur sem þeir sjálfir hafa sett, eins og stjórnsýslulög og álit Umboðsmanns Alþingis, er eins gott að leggja embættið niður segir Ragnar Hall hæstaréttarlögmaður. Álit umboðsmanns Alþingis á vali fyrrum félagsmálaráðherra á ráðuneytsstjóra, er mjög harðort en samt ætlar núverandi félagsmálaráðherra ekkert að aðhafast. 25.3.2006 12:00
Lóan er komin Lóan er komin til landsins að kveða burt snjóinn. Fréttavefurinn Horn greinir frá því að tvær heiðlóur ársins hafi sést utan við Ósland á Höfn í Hornafirði um klukkan níu í morgun. 25.3.2006 11:04
Vilja endurskoðun á samgönguáætlun Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill að Alþingi og samgönguyfirvöld endurskoði nú þegar samgönguáætlun og veiti meira fé til verkefna á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórinn segir að binda verði enda á kílómetra langar raðir sem myndist á álagstímum á aðalæðum bæjarins. 25.3.2006 10:30
Breiðþota frá North Western fór í morgun Breiðþotu af tegundinni DC 10 frá flugfélaginu North Western var snúið til lendingar á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi vegna þess að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri í farangursrými. 25.3.2006 10:07
Skipulagsbreytingar hjá flugmálastjórn Flugmálastjórn verður skipt upp í ársbyrjun 2007. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra segir breytingarnar muni gera flugmálastjórn mun samkeppnishæfari í baráttu við önnur flugumferðarsvæði. 25.3.2006 10:06
Gott skíðafæri í Skagafirði Skíðasvæði í Tindastól í Skagafirði er opið í dag. Mikið hefur snjóað síðustu 4 daga í Sakagafirði og er færi í brekkunum frábært eins og viðmælandi NFS sagði. Þar er 9 stiga frost og logn. Svæðir verður opið frá 10- 17 í dag. 25.3.2006 10:04
Rússar uppljóstruðu um herflutninga Bandaríkjamanna Rússar gáfu Saddam Hússein upplýsingar um herflutninga Bandaríkjamanna í Írak, í byrjun Íraksstríðsins árið 2003. Þetta kemur fram í nýrri 210 síðna skýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um innrásina í Írak. 25.3.2006 10:01
Hlíðarfjall opið í dag Hlíðarfjall verður opið í dag til klukkan fimm. Flestar lyftur og skíðleiðir verða opnaren skíðafæri er mjög gott, púðursnjór og troðinn púðursnjór. Göngubrautin er einnig troðin. Aðstæður líta því vel út fyrir páska og Andrésar andarleikana sem verða í lok apríl. 25.3.2006 09:47
Tvenn fíkniefnamál á Akranesi Lögreglan á Akranesi fann 15 grömm af amfetamíni á manni við venjubundið eftirlit í gærdag. Maðurinn var handtekinn og í framhaldi var gerð húsleit í húsi á Akranesi þar sem tveir menn voru handteknir. Fíkniefni fundust á öðrum þeirra og einnig tæki til neyslu fíkniefna sem gerð voru upptæk. Mönnunum var öllum sleppt að loknum yfirheyrslum og málið telst upplýst. 25.3.2006 09:33
Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna meints elds í flugvél Viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli í kvöld eftir að flugmaður flugvélar frá bandaríska flugfélaginu North West sem var með 277 manns innanborðs tilkynnti um að ljós hefði kviknað í vélinn sem gæfi til kynna að eldur væri í farangursrými. 24.3.2006 23:40
Segja ummæli Dags um Sundabraut óásættanleg B-listinn í Reykjavík gagnrýnir harðlega yfirlýsingu Dags. B. Eggertssonar um að betra væri að leggja Sundabraut alla í einum áfanga en hafa hana einfalda og segja óásættanlegt að formaður skipulagsráðs skuli leggja slíkt til. 24.3.2006 21:57
Salerni fatlaðra eru ekki geymslur! Nokkuð hefur borið á því að salerni fyrir fatlaða á veitingastöðum og kaffihúsum hafa verið læst og notuð sem vörugeymslur. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Klifurs, fréttablaði Sjálfsbjargar. Þetta er óásættanleg framkoma og móðgun við fatlaða, að mati Sjálfsbjargar. 24.3.2006 21:49
Aldinn höfðingi allur Ein elsta risaskjaldbaka í heimi lést í dýragarðinum í Kalkútta á Indlandi í gær. Skjaldbakan var gæludýr breska hershöfðingjans Roberts Clives sem bjó á Indlandi um miðja átjándu öldina og því óhætt að ætla að aldur hennar hafi verið um 250 ár. 24.3.2006 21:01
Allir í verkfall Enginn árangur varð af fundi Dominiques de Villepins, forsætisráðherra Frakka með verkalýðsleiðtogum, ráðherrann neitar enn staðfastlega að draga lögin til baka og því stefnir allt í allsherjarverkföll í Frakklandi í næstu viku. Verkalýðsfélögin hafa lýst því yfir að ekki verði hætt við verkföllin nema að uppfylltu því skilyrði að lögin taki ekki gildi. 24.3.2006 19:50
Eldur í potti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað upp í Breiðholt upp um sex-leytið. Þar hafði kviknað í út frá potti sem gleymst hafði að slökkva undir. Heimilisfólkið náði þó að slökkva eldinn en slökkviliðið ræsti út reykinn sem hafði fyllt íbúðina. 24.3.2006 19:19
Bílvelta og árekstur við Smáralind Sendiferðabíll valt út af Reykjanesbraut, til móts við Smáralind, rétt upp úr fimm í dag. Bíllinn fór út af veginum, valt og rúllaði svo aftur á veginn þar sem ökumaður fólksbíls náði ekki að stöðva bifreið sína og keyrði á sendferðabílinn. 24.3.2006 19:07
Krummar krunka í Reykjavík Krummum hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Ástæða þess er kuldakastið sem gengið hefur yfir en þá leita þeir til byggða eftir einhverju ætilegu. Krummar geta verið boðberar válegra tíðinda. Og líka góðra tíðinda ef svo ber undir. 24.3.2006 19:06
Lítill varnarviðbúnaður undanfarin ár Undanfarin tvö ár hafa engir landgönguliðar verið til staðar í herstöðinni í Keflavík, eingöngu herlögregla með lágmarksþjálfun, auk orrustuþotuflugmanna sem skiptast á vöktum á nokkurra vikna fresti. Varnir landsins hafa því ekki verið öflugar undanfarin tvö ár. 24.3.2006 19:02
Búast við verðbólgubombu Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir verulegri aukningu á verðbólgu bráðlega. Í Vegvísinum er gert ráð fyrir að verðbólga á seinnihluta ársins geti orðið 7-8% ef gengisvísitalan helst á svipuðu róli. 24.3.2006 17:58
Frambjóðendur fyrir svörum Borgarstjórnarframbjóðendur sitja fyrir svörum á þingi Íþróttabandalags Reykjavíkur í fyrramálið. Meðal umræðuefna verða uppbygging íþróttamannvirkja og skólalóða, hlutverk íþrótta sem forvarnarstarfs og rekstrarstyrkir vegna barna og unglingastarfs. 24.3.2006 17:48