Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jökulfell: Veðrið óvenju slæmt Sjópróf fóru fram í Færeyjum í gær vegna sjóslyssins þegar Jökulfell sökk aðfaranótt síðastliðins þriðjudags. Í þeim kom fram að veðrið á þessum slóðum hefði verið mun verra en áður var talið og ölduhæð meiri. 12.2.2005 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæði Ísfirðinga verður opið til klukkan fimm í dag. Þar er nógur snjór og gott færi og allar lyftur opnar. Göngubrautir verða tilbúnar klukkan tólf. Á Ísafirði er logn og léttskýjað og níu stiga frost. 12.2.2005 00:01
Eftirlitið samkvæmt reglum Jóel undir Lætinum, umboðsmaður Samskipa sem fylgdist með sjóprófum á ástæðum þess að Jökulfell sökk, segir að eftirlit skipverja með farminum, 2000 tonnum af stáli, hafi verið reglum samkvæmt. 12.2.2005 00:01
Vann prófmál gegn Skífunni Gunnlaugur Briem trommuleikari vann í gær dómsmál gegn Skífunni. Málið snýst um rétt Skífunnar til að gefa út hljóðfæraleik Gunnlaugs á alls kyns safnplötum, án þess að greiða Gunnlaugi sérstaklega fyrir. Þetta mál var prófmál og snérist um eina útgáfu geisladisks sem gefin var með pulsupökkum í stórmörkuðum. 12.2.2005 00:01
Amnesty óskar eftir andlitum Amnesty International á Íslandi hefur fengið 233 einstaklinga til að leggja andlit sitt við herferð fyrir alþjóðlegum vopnaviðskiptasáttmála. Stefnt er að því að fá 1000 Íslendinga til að styðja herferðina með því að setja andlit sitt á alþjóðlega vefsíðu átaksins. 12.2.2005 00:01
Töluverð ófærð í borginni Töluverð ófærð hefur verið í borginni í dag vegna ofankomu, og þá sérstaklega í Grafarvogi, og óskaði gatnamálatjóri eftir aðstoð lögreglu við koma þar skikki á málin. Bílar hafa verið að festast og sérstaklega í íbúðargötum. Fjórir árekstrar hafa átt sér stað í borginni sem rekja má til færðarinnar en engin slys hafa orðið á fólki. 12.2.2005 00:01
Lögreglubifreið stórskemmdist Ein bifreið lögreglunnar í Hafnarfirði embættisins er óökufær eftir gærkvöldið þar sem ökumaður annars fólksbíls keyrði þá inn í hlið hennar. Lögreglubíllinn var stórskemmdur að sjá, að sögn vegfaranda sem hafði samband við fréttastofuna, en lögreglumennirnir sem í bifreiðinni voru sluppu ómeiddir að sögn varðstjóra á vakt. 12.2.2005 00:01
Þjóðvegurinn styttist um 50 km Þjóðvegurinn milli Ísafjarðar og Reykjavíkur styttist um fimmtíu kílómetra á næstu átta árum samkvæmt stefnumörkun sem samgönguráðherra hefur kynnt. Þrír firðir á sunnanverðum Vestfjörðum verða brúaðir og göng grafin milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. 12.2.2005 00:01
Harður árekstur í Borgarnesi Harður árekstur varð við Fiskilæk í Leirársveit á föstudagskvöldið þegar tveir bílar skullu beint framan á hvorn annan. 12.2.2005 00:01
Beraði kynfæri sín Maður, sem talinn er vera á bilinu tuttugu til þrjátíu ára, beraði kynfæri sín á Austurvegi á Ísafirði síðdegis á fimmtudaginn. 12.2.2005 00:01
Skafrenningur, snjóblinda og hálka Færð var ekki sem best á höfuðborgarsvæðinu í gær. Færð í efri byggðunum í Grafarvogi var slæm og mikið fjúk. Íbúar áttu í vandræðum með akstur en lögreglan í Reykjavík veitti þeim hjálp sem þurftu. 12.2.2005 00:01
Lettar í vinnu án leyfa Vinnumálastofnun hefur kært fyrirtækið GT-verktakar til sýslumanns á Seyðisfirði. Fyrirtækið er með fjóra Letta í vinnu á Kárahnjúkum án dvalarleyfa eða atvinnuleyfa. Samkvæmt talsmanni GT-verktaka telur fyrirtækið sig vera réttum megin við lögin. 12.2.2005 00:01
Bílvelta við Hvammstanga Bifreið fór út af vegi og valt rétt fyrir þrjú í gærdag við Hvammstanga í Hrútafjarðarhálsi. 12.2.2005 00:01
Íslensk kona lést Íslensk kona lést í fyrradag eftir að ekið var á hana á Kanaríeyjum 12.2.2005 00:01
Bestu myndir ársins valdar Ljósmyndasýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands var opnuð í Gerðarsafni í dag. Um er að ræða nokkurs konar fréttaannál fyrir síðasta ár sem gerð eru skil á 200 ljósmyndum. Þetta er í tíunda sinn sem félagið stendur fyrir slíkri sýningu í Gerðarsafni en á henni eru jafnframt veitt verðlaun fyrir bestu myndir ársins. 12.2.2005 00:01
Fjöldi húsa við Laugaveg rifinn Borgarstjórn hefur samþykkt niðurrif á þriðja tug gamalla húsa við Laugaveg. Það er þó algerlega á huldu hvernig þær byggingar munu líta út sem fylla munu skörðin. 12.2.2005 00:01
2/3 vöruflutninga hjá Flugleiðum Tveir þriðju hlutar vöruflutninga í flugi milli Íslands og annarra landa eru nú í höndum Flugleiða eftir að félagið keypti flugfélagið Bláfugl í vikunni. 12.2.2005 00:01
Ódýrara að dópa en drekka Að mati áfengisheildsala ætti fjármálaráðherra að endurskoða álögur ríkisins á áfengi í stað þess að hvetja heildsala til að gera betur. Þá segir hann að nú sé orðið ódýrara að dópa en drekka á Íslandi. 12.2.2005 00:01
Hefur lifað þrjár aldir Jóhanna Þóra Jónsdóttir hefur lifað þrjár aldir. Hún fæddist á 19. öld, lifði alla 20. öldina og hélt í dag upp á 105 ára afmæli sitt á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. 12.2.2005 00:01
Í andlegum tengslum við hesta Þýskur „hestahvíslari“ hefur flust hingað til lands til að geta unnið með íslenska hestinn í upprunalandinu. Aðferðirnar felast meðal annars í því að tala við hestinn og ná góðum andlegum tengslum við hann. 12.2.2005 00:01
Verðlaunað fyrir umfjöllun um Ólaf Það voru þau Árni Þórarinsson, Kristinn Hrafnsson og Bergljót Baldursdóttir sem hlutu verðlaun Blaðamannafélags Íslands á Hótel Borg í gærkvöldi 12.2.2005 00:01
Röskva vann mann af Vöku Sú óvenjulega staða er komin upp í Stúdentaráði HÍ eftir kosningar í gær að enginn listi hefur hreinan meirihluta. Listi Vöku, sem gjarnan er kenndur við hægrimenn, tapaði manni til Röskvu, gjarnan kenndri við vinstri menn, þannig að báðir listar fengu fjóra menn. Háskólalistinn hélt sínum manni og er því kominn í oddaaðstöðu. 11.2.2005 00:01
Teknir á óskráðum vélsleðum Lögreglan á Ísafirði handsamaði tvo sextán ára unglingspilta í gær þegar þeir voru að aka um bæinn á vélsleðum. Þeir voru hins vegar of ungir til að aka slíkum tækjum og auk þess þarf bílpróf á vélsleða, en það höfðu þeir auðvitað ekki. Þá er bannað að aka vélsleðum innanbæjar og loks voru sleðarnir óskráðir. 11.2.2005 00:01
Handtekinn með mikið magn vopna Riffill, öxi og hnífar voru meðal vopna sem lögreglan í Reykjavík fann í bíl manns sem er grunaður um að hafa framið tvö vopnuð rán í borginni í gær og þrjú sjoppurán fyrr í vikunni. 11.2.2005 00:01
Sýslumaður fær á baukinn Sýslumaðurinn í Hafnarfirði fær alvarlega á baukinn vegna slælegra vinnubragða í dómi Ólafar Pétursdóttur héraðsdómara yfir tveimur smákrimmum í morgun. Strákarnir, sem báðir voru 17 ára þegar brotin voru framin í nóvember árið 2003, brutust inn í félagsmiðstöð í Hafnarfirði og stálu þaðan skjávarpa, auk þess sem annar þeirra ók drukkinn. 11.2.2005 00:01
Sekur kynferðisbrotamaður sýknaður Hæstiréttur klofnaði í gær í afstöðu sinni til þess hvort dómurinn geti endurmetið sönnunargildi munnlegs framburðar í héraðsdómi. Niðurstaðan er sú að karlmaður, sem þó er talinn sekur um kynferðisbrot gegn ungri stúlku, er sýknaður. 11.2.2005 00:01
Talstöðin talmeinastöð? Hin nýja útvarpsstöð, Talstöðin, sem tók til starfa í morgun er hvergi skráð með síma. Fyrirtæki með sama nafn er til húsa í Kópavogi. Þar starfa nokkrir talmeinafræðingar. 11.2.2005 00:01
Þjóðahátíð í Perlunni Þjóðahátíð Alþjóðahússins verður haldin í Perlunni þann 19. febrúar næstkomandi en markmiðið er að kynna fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi og auka skilning milli fólks af ólíkum uppruna. 11.2.2005 00:01
Dómur fyrir brot gegn stjúpdóttur Rúmlega fertugur karlmaður var í dag dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að ítrekuð og svívirðileg kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Hann var einnig ákærður fyrir kynferðisofbeldi gegn stjúpsyni sínum en eindregin neitun hans stóð gegn orðum drengsins. 11.2.2005 00:01
Landsþing hjá frjálslyndum Frjálslyndi flokkurinn hefur boðað til landsþings 4.-5. mars á Kaffi Reykjavík. Búist er við að núverandi stjórn flokksins, Guðjón A. Kristjánsson formaður, Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður og Margrét Sverrisdóttir ritari, verði öll endurkjörin. 11.2.2005 00:01
Skyndihjálp ætti að vera skyldufag "Ef ég hefði ekki tekið þetta skyndihjálparnámskeið hefði ég að líkindum frosið og ekki orðið að neinu gagni," segir Anton Gylfi Pálsson, sem hlaut nafnbótina Skyndihjálparmaður ársins við athöfn í Smáralind í gær. 11.2.2005 00:01
Aldrei fleiri erlendir blaðamenn Rúmlega 60 erlendir blaðamenn hafa tilkynnt komu sína hingað til lands vegna matarhátíðarinnar Food and fun hér á landi en hátíðin hefst þann 16. febrúar og stendur í fjóra daga. 11.2.2005 00:01
Greiði SÍF 1,5 milljón Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði var í dag dæmd til að greiða SÍF alls rúmlega 1,5 milljón króna í bætur vegna málningarúða sem í tvígang barst frá vélsmiðjunni og lagðist yfir bifreiðar SÍF og starfsmanna fyrirtækisins. 11.2.2005 00:01
Eimskip annast millilandaflutninga Eimskip hefur tekið að sér að annast alla millilandaflutninga fyrir Samherja og var gengið frá samningi þess efnis í dag. Samherji er með starfsemi víða erlendis og rekur meðal annars útgerð í Þýskalandi, Bretlandi, Færeyjum og Póllandi. 11.2.2005 00:01
Forsetinn á Talstöðinni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var í gær gestur Sigurðar G. Tómassonar í morgunþættinum Góðan dag á Talstöðinni, nýrri útvarpsstöð í eigu 365 - ljósvakamiðla. Ólafur Ragnar sagði frá nýlegri Indlandsför sinni en hann flutti meðal annars setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu um loftslagsbreytingar og sjálfbæra þróun. 11.2.2005 00:01
Leigubílstjóri í 50 ár Eftir rúmar tvær vikur er hálf öld liðin síðan Svanur Halldórsson bílstjóri á Hreyfli hóf leigubílaakstur. Tvítugur settist hann undir stýri og hefur svo að segja verið þar síðan. Fyrir tólf árum keypti hann sér stóran bíl sem farþegar óttuðust. Þeir héldu að startgjaldið væri hærra. </font /></b /> 11.2.2005 00:01
Hornfirsk hljómsveit í útlöndum Sá einstæði atburður varð um helgina að Hornfirsk hljómsveit lék í útlöndum. Samkvæmt vefsíðunni horn.is er þetta í fyrsta sinn sem hljómsveit starfandi á Hornafirði er fengin til að spila erlendis. 11.2.2005 00:01
4 mánuðir fyrir stuld á DVD-diskum Þrítugur maður var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið þremur DVD-diskasöfnum í verslun Hagkaupa. Maðurinn á að baki mikinn sakaferil því frá árinu 1992 hefur hann alls þrettán sinnum verið dæmdur til refsingar. 11.2.2005 00:01
Starfsemi neyðarlínunnar í beinni Starfsemi neyðarlínunnar fer alla jafna fram fyrir luktum dyrum en nú bregður svo við að allir geta fylgst með því hvað er að gerast þarna innandyra í gegnum tölvuna sína í beinni vefútsendingu (siminn.is/112). Þess verður þó vel gætt að trúnaðarupplýsingar birtist ekki í útsendingunni. 11.2.2005 00:01
Sesar Arnar í tvær aðgerðir Sesar Arnar Sanchez, íslenski hermaðurinn sem særðist í Írak fyrr í vikunni, mun að líkindum þurfa að gangast undir tvær aðgerðir á næstunni. Móðir hans segir líkur á að hann verði skorinn upp á auga og fæti. 11.2.2005 00:01
Nýr vefur slær í gegn Níu hundruð manns skoðuðu auglýsingar um lóðir á vef Hafnarfjarðar á fimmtudag. Alls skoðuðu 1.400 manns vefinn þann dag. Nýtt útlit prýðir vefinn og er hann drifinn af ecWeb-umsjónarkerfinu. 11.2.2005 00:01
Sjötíu konur tilbúnar í stjórnir Um sextíu konur í stjórnunar- og áhrifastöðum á Suðurnesjum bjóða sig fram í stjórnir lífeyrissjóða. Þær krefjast þess að konum verði fjölgað í stjórnum þeirra í samræmi við fjölda kvenna í viðkomandi sjóðum. 11.2.2005 00:01
Háskólalistinn í oddastöðu Háskólalistinn komst í oddastöðu í stúdentaráði Háskóla Íslands í kosningum á fimmtudag. Vaka, sem fyrir kosningarnar var með meirihluta í stúdentaráði, tapaði einum manni og fékk fjóra kjörna. 11.2.2005 00:01
25 hús verði rifin Reykjavíkurborg hefur heimilað að 25 hús við Laugaveg, byggð fyrir 1918, verði rifin. Þetta kemur fram í svari skipulags- og byggingarsviðs við fyrirspurn Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa Frjálslynda flokksins. Þar af hefur eitt hús, byggt árið 1892, þegar verið rifið. Húsin sem heimilt er að rífa eru á svæðinu frá Laugavegi 4 að Laugavegi 73. 11.2.2005 00:01
Ráðherra líti sér nær Fjármálaráðherra segir vínbirgja ekki láta lækkandi gengi skila sér í vöruverð. Heildsalar vísa gagnrýninni á bug og segja fáar vörur greiddar í dollurum. Vegna skattastefnu ráðherrans sé innkaupsverð lítill hluti af verði vínflösku.</font /></b /> 11.2.2005 00:01