Þjóðvegurinn styttist um 50 km 12. febrúar 2005 00:01
Þjóðvegurinn milli Ísafjarðar og Reykjavíkur styttist um fimmtíu kílómetra á næstu átta árum samkvæmt stefnumörkun sem samgönguráðherra hefur kynnt. Þrír firðir á sunnanverðum Vestfjörðum verða brúaðir og göng grafin milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar. Þetta þýðir að þjóðleiðin til Ísafjarðar gæti í framtíðinni legið á ný um suðurfirðina en ekki Djúpið. Þjóðvegurinn milli Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar liggur nú yfir tvo erfiða hálsa, Ódrjúgsháls og Hjallaháls, en mun á næstu árum færast niður á láglendi. Á stjórnmálafundi sjálfstæðismanna á Patreksfirði í vikunni brugðust fundarmenn við með dynjandi lófataki þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kynnti þá ákvörðun að stefna að því að firðirnir þrír verði brúaðir. Í vegstyttingu munar mestu um þverun Þorskafjarðar en það er hins vegar valkostur sem búist er við að farið verði í eftir að búið verður að þvera Gufufjörð og Djúpafjörð. Verkefnið á hins vegar eftir að fara í gegnum umhverfismat en vegarstæðið liggur meðal annars yfir skerjagarð og um mesta skóglendi Vestfjarða í utanverðum Þorskafirði. Sturla Böðvarsson kvaðst í samtali við Stöð 2 í dag þó vonast til að framkvæmdir við þverun fjarðanna gætu hafist innan tveggja ára. Önnur bylting í samgöngumálum Vestfirðinga er komin á dagskrá, jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, en Sturla ítrekaði á Patreksfjarðarfundinum þá stefnu að þau kæmu í kjölfar Héðinsfjarðarganga. Ráðherrann kveðst vonast til þess að menn geti farið að bora þarna á milli árið 2011. Þegar menn skoða vegakerfið á Vestfjörðum má glöggt sjá að þessar tvær ákvarðanir gætu haft víðtæk áhrif. Fyrir þrjátíu árum mörkuðu þingmenn fjórðungsins þá stefnu að þjóðleiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur yrði um Djúp og Steingrímsfjarðarheiði en hún er 496 kílómetra löng. Menn fara þó frekar Þorskafjarðarheiði þegar hún er fær á sumrin og spara sér þannig 55 kílómetra akstur. Gamla Vestfjarðaleiðin sem áður var farin, um aðalleiðina til Ísafjarðar, er 457 kílómetra löng. Með 22 kílómetra styttingu á suðurfjörðum fer þessi leið niður í 435 kílómetra og með jarðgöngum milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar má ná 27 kílómetra styttingu. Þar með verður suðurleiðin til Ísafjarðar orðin 408 kílómetra löng og spurning hvort hún verði á ný aðalleiðin í framtíðinni. Brúun Mjóafjarðar í Djúpi og vegur um Arnkötludal á Ströndum munu þó styrkja leiðina um Djúp.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira