2/3 vöruflutninga hjá Flugleiðum 12. febrúar 2005 00:01
Tveir þriðju hlutar vöruflutninga í flugi milli Íslands og annarra landa eru nú í höndum Flugleiða eftir að félagið keypti flugfélagið Bláfugl í vikunni. Bláfugl er eitt þriggja flugfélöga sem stunda fraktflug til og frá Íslandi en hin eru Flugleiðir og Íslandsflug. Tölur um markaðshlutdeild þeirra liggja ekki á lausu en þó ber þeim sem vel þekkja til saman um að Flugleiðir séu þar stærstir, með um eða innan við helming flutninganna. Íslandsflug, sem flýgur fyrir DHL-hraðflutninga, er talið hafa sinnt um þriðjungi markaðarins og loks er yngsta félagið, Bláfugl, talið hafa haft um fimmtung. Nú í vikunni var tilkynnt um að Flugleiðir hefðu keypt Bláfugl ásamt flutningamiðlunarfyrirtækinu Flugflutningum fyrir samtals 3,8 milljarða króna. Með kaupunum er talið að markaðshlutdeild Flugleiða í frakflugi til og frá Íslandi fari í 60 til 70 prósent en kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda. Fraktflug er sú grein flugsins sem hvað örast hefur vaxið á undanförnum árum sem sést best á vexti Bláfugls. Ekki eru liðin nema fjögur ár frá því Bláfugl fékk sína fyrstu þotu en þær eru nú orðnar fimm og sú sjötta er væntanleg. Meginhluti starfsemi Bláfugls, eða um 80 prósent, fer hins vegar fram erlendis en starfsmenn félagsins eru um 50 talsins, þar af 30 flugmenn. Bláfugl var í eigu um áttatíu einstaklinga, aðallega Íslendinga, sem margir nefndust áður Cargolux í Lúxemborg. Helstu eigendur Bláfugls voru Þórarinn Kjartansson, framkvæmdastjóri félagsins, og Einar Ólafsson, sem var stjórnarformaður, en hann var lengi framkvæmdastjóri Cargolux.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Sjá meira