Innlent

Aldrei fleiri erlendir blaðamenn

Rúmlega 60 erlendir blaðamenn hafa tilkynnt komu sína hingað til lands vegna matarhátíðarinnar Food and fun hér á landi en hátíðin hefst þann 16. febrúar og stendur í fjóra daga. Food and fun er samstarfsverkefni Icelandair, íslensks landbúnaðar og verkefninu "Iceland Naturally" og er tilgangurinn að kynna kosti íslenskra matvæla sem víðast.

Flestir koma blaðamennirnir frá Bandaríkjunum en einnig fjöldi frá níu þjóðum Evrópu. Munu þeir fylgjast með heimsþekktum matreiðslumeisturum sýna snilli sína í eldhúsum veitingahúsa í Reykjavík en þeir munu svo taka þátt í alþjóðlegri keppni sem fram fer þann 19. febrúar í Listasafni Íslands og er þetta í fjórða sinn sem keppt er með þessum hætti og eingöngu notað íslenskt hráefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×