Fleiri fréttir

Dæmdur í 17 ára fangelsi

Karlmaður úr úthverfi borgarinnar Detroit í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í að minnsta kosti sautján ára fangelsi fyrir að skjóta til bana óvopnaða nítján ára konu á veröndinni sinni.

Þrjú handtekin í Danmörku

Lögreglan í Danmörku hefur handtekið einn karlmann og tvær konur sem eru grunuð um stuðning við Íslamska ríkið og þar með brot á lögum um hryðjuverkastarfsemi.

Fengu að hitta veikan son sinn

Foreldrar enska drengsins Ashya King fengu að hitta son sinn á sjúkrahúsi á Spáni þar sem hann hefur verið undir læknishöndum, samkvæmt BBC.

Skorað á ráðherra vegna sýslumanns í fjársvelti

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs segist hafa þungar áhyggjur af stöðu mála vegna breytinga á embættum sýslumanna og lögreglustjóra á Austurlandi eftir að því bárust upplýsingar frá sýslumanninum á Seyðisfirði.

Dregur úr óróa á gosstað

Stærsti skjálfti næturinnar mældist 4,8 stig að stærð og reið hann yfir rétt fyrir klukkan fjögur nyrst í Bárðarbunguöskju.

Vantar úrræði fyrir karla og konur sem beita ofbeldi

Lögregluna skortir samræmdar reglur um hvernig taka eigi á ofbeldismálum. Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir með höppum og glöppum hvaða þjónustu fólk sem beitt er ofbeldi fær. Alla yfirsýn skorti.

Fimm ára með áhyggjur af líkamsmynd sinni

Börn þurfa að öðlast virðingu fyrir fjölbreytileika líkamsvaxtar, segir Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur. Ekkert bendi til að jákvætt viðhorf til líkamans stuðli að óheilbrigði, hvorki meðal grannra né feitra.

Mörg dæmi um að upprunamerkingar vanti á matjurtir

Yfirgripsmikil rannsókn Matvælastofnunnar leiddi í ljós að upplýsingar um upprunaland vantaði á 16 prósent þeirra vara sem innihalda eina tegund en á um fjórðung vara sem innihalda blöndu matjurta.

Svona lítur sigdalurinn út

Jarðvísindastofnun hefur unnið radarmyndir af sigdalnum sem myndast hefur framan og undir Dyngjujökli.

Sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra munu sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn verður í Wales 4.-5. september nk.

Bláberin bregðast á Vestfjörðum í ár

Aðalbláber eru á undanhaldi í vestfirsku berjalyngi í ár. Hinn landlægi birkifeti er líklegast farinn að dreifa sér um Vestfirði. Brúnar og uppétnar brekkur við Djúpið og á Suðurfjörðum. Við Inndjúpið hefur næturfrost síðan leikið berin illa.

Aðeins ein kona formaður

Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýnir að aðeins ein kona gegni í formennsku í fimm af stærstu ráðum Reykjavíkurborgar.

Grunaður um að hafa neytt átta ára dreng til munnmaka

Maður sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í annað sinn í Hæstarétti, grunaður um að hafa tælt tvo drengi heim til sín og rassskellt þá, er einnig sakaður um að hafa sett kynfæri sín upp í munn annars drengsins.

Sjá næstu 50 fréttir