Erlent

Rússneskir íþróttamenn útilokaðir frá keppnum?

Atli Ísleifsson skrifar
Í tillögum ESB er einnig minnst á annars konar möguleika til að þrýsta á Rússa, þar sem efnahagslegar þvinganir hafi ekki skilað tilætluðum árangri.
Í tillögum ESB er einnig minnst á annars konar möguleika til að þrýsta á Rússa, þar sem efnahagslegar þvinganir hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Vísir/AFP
Tillögur að nýjum viðskiptaþvingunum Evrópusambandsins gegn Rússum gera meðal annars ráð fyrir að erfiða alþjóðleg viðskipti fyrir rússnesk olíufyrirtæki. Ekki er minnst á rússnesk gasfyrirtæki í tillögunum.

Hluti tillagnanna hafa þegar lekið út til fjölmiðla en ríkisstjórnir aðildarríkja ESB munu nú leggjast yfir þær áður en næstu skref verða ákveðin.

Í frétt Svenska dagblader segir að ekki nóg með að ESB vilji herða efnahagslegar þvinganir þá stendur líka vilji til að útskúfa Rússa á alþjóðavettvangi, til dæmis með því að neita rússneskum íþróttamönnum um þátttökurétt á stórmótum.

Um helgina tilkynntu fulltrúar aðildarríkja ESB að Vladimír Pútín Rússlandsforseti skyldi annað hvort samþykkja friðaráætlun til að binda endi á deiluna í austurhluta Úkraínu, ellegar skyldu Rússar sæta enn frekari þvingunum.

ESB-ríkin hafa þegar neitað Rússum aðgengi að evrópskri tækni og útbúnaði sem þarf við vinnslu olíu og gass, auk þess að takmarka aðgengi rússneskra banka að fjármálamörkuðum. Þá er einnig búið að takmarka útflutning til Rússlands á ýmsum varningi sem ýmist má nota í borgaralegum eða hernaðarlegum tilgangi, svo sem radarbúnað og fleira.

Í tillögunum er einnig minnst á annars konar möguleika til að þrýsta á Rússa, þar sem efnahagslegar þvinganir hafi ekki skilað tilætluðum árangri.

Í tillögunum er þeirri hugmynd meðal annars varpað fram að þrýsta eigi á skipuleggjendur alþjóðlegra íþróttastórmóta að útiloka þátttöku rússneskra keppenda, svo sem  Formúlu 1 og keppnum á vegum Knattspyrnusambands Evrópu. Einnig er minnst á heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer einmitt fram í Rússlandi árið 2018.

Fulltrúar nokkurra aðildarríkja ESB hafa þó þegar sagt að þau vilji ekki taka HM í knattspyrnu frá Rússum. Þýsk stjórnvöld segja til að mynda slíkt vera í höndum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA og benda á að mótið sé ekki fyrr en eftir fjögur ár. Margt geti gerst á þeim tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×