Fleiri fréttir

Er Keflavíkurflugvöllur að verða af milljörðum?

Ríkissjóður verður árlega af um milljarði króna í tekjur af farþegum Icelandair sem millilenda á Keflavíkurflugvelli en borga ekki gjöld fyrir afnot af flugvellinum. Íslenskir farþegar borga þessi sömu gjöld á erlendum flugvöllum. Talsmaður Isavia segir upphæðina ekki svo háa.

Ekki lengur ríkisfangslaus: "Við erum frjáls ferða okkar"

Írösk flóttakona, sem býr á Akranesi ásamt tveimur börnum sínum, hefur ekki getað hitt elstu dóttur sína í fimm ár og hefur aldrei séð barnabörnin sín. Ekki átti að veita henni ríkisborgararétt en ákveðið var í gær að fjölga þeim sem fengju ríkisfang á Íslandi og er því loforð um vegabréf loks í höfn fyrir Aydu.

Stokkað upp í ríkisstjórninni fljótlega

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að ekki verði stokkað upp í ríkisstjórninni um áramótin en unnið sé að samhæfingu ráðuneyta áður en ráðherrum verði fjölgað á næstunni.

Unglingspiltar söfnuðu jólamat fyrir heimilislausa

Það sitja ekki allir unglingsstrákar límdir fyrir framan tölvuna í jólafríinu. Nokkrir félagar í sjöunda og áttunda bekk í Valhúsaskóla tóku sig til og létu gott af sér leiða fyrir jólin.

Hross í Oss heldur áfram að slá í gegn erlendis

Benedikt Erlingsson heldur áfram að raða inn verðlaunum fyrir kvikmynd sína Hross í Oss en leikstjórinn birti í kvöld færslu á fésbókarsíðu sinni þar sem hann tilkynnir að kvikmyndin hafa fengið tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni Les Arc í Frakklandi.

Margra mánaða biðlistar í augnaðgerðir

Aðeins einn augnlæknir hefur hafið störf á Landspítalanum eftir sérfræðinám erlendis frá árinu 2006. Meðalaldur sérfræðilækna hér á landi hefur aldrei verið hærri og margra mánaða biðlistar eru í augnaðgerðir.

Lífstíðarfangelsi fyrir samkynhneigð í Úganda

Lögþing Úganda hefur samþykkt frumvarp sem herðir refsiramma fyrir samkynhneigð, svo mögulegt verði að setja samkynhneigða í lífstíðarfangelsi. Hver sá sem ekki tilkynnir samkynhneigða einstaklinga til lögreglu gæti einnig farið í fangelsi.

Opnað fyrir umferð á Hverfisgötu

Í dag verður opnað fyrir bílaumferð af Frakkastíg og niður Hverfisgötu. Á þeim kafla sem bílaumferð er leyfð eru góðar gönguleiðir beggja vegna götunnar.

Ólöglegur skattur á námsmenn

Alþingi felldi í dag tillögu um að falla frá hækkun skráningargjalda á námsmenn við opinbera háskóla úr 60 þúsund krónum í 75 þúsund krónur.

Mæddir minkabændur

Framleiðslukostnaður í heildina hefur hækkað um 70 prósent frá árinu 2009.

Óvissa í flugvallarmálinu: Björn Blöndal furðar sig á ákvörðun Alþingis

Björn Blöndal aðstoðarmaður borgarstjóra og oddviti Bjartrar framtíðar í borginni segir að það komi á óvart að fjárlaganefnd Alþingis hafi ekki afgreitt tillögu sem heimilar ráðherra að selja Reykjavíkurborg land í Vatnsmýrinni. Hann segir of snemmt að spá fyrir um hvort þetta muni hafa áhrif á fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu.

Klessti á kýr á fleygiferð

Ung kona frá Bandaríkjunum var á mikill ferð á löngu hjólabretti þegar hún lenti í árekstri við kýr sem hlupu fyrir hana.

Ríkið yfirtekur ekki skuldir Sunnuhlíðar

Samkomulag hefur tekist milli stjórnar hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar og heilbrigðisráðuneytisins um að ríkið taki yfir rekstur heimilisins um áramót. Sunnuhlíð skuldar 260 milljónir. Ekki er enn ljóst hvernig skuldirnar verða gerðar upp.

Svæfð eftir að kókaín fannst í leggöngum

Tuttugu og eins árs spænsk kona var dæmd í tólf mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins í byrjun október. Konan var stöðvuð á Keflavíkurflugvelli.

Sjötíu milljónir til listhópa

Einar Örn Benediktsson stjórnaði úthlutun Reykjavíkurborgar til menningarverkefna og fá 85 hópar fé til starfsemi.

Khodorkovsky látinn laus

Vladimír Pútín Rússlandsforseti náðaði í morgun auðkýfinginn fyrrverandi, Mikhail Khodorkovsky sem setið hefur í fangelsi síðustu ár. Forsetinn náðaði hann á grundvelli mannúðar en Khodorkovsky var fangelsaður fyrir skattsvik og þjófnað fyrir áratug síðan.

Hæstiréttir staðfestir synjun Útlendingastofnunar

Maðurinn kom til Íslands vorið 2012 og óskaði eftir hæli hér á landi en Útlendingastofnun ákvað að umsókn hans um hæli yrði ekki tekin til meðferðar hér á landi og hann skyldi sendur til Ítalíu.

Sjá næstu 50 fréttir