Ríkið yfirtekur ekki skuldir Sunnuhlíðar Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 20. desember 2013 11:15 Stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hefur samið við ríkið um að það yfirtaki rekstur heimilis frá frá áramótum. Við yfirtökuna er lögð áhersla á að ekki verði röskun á þjónustu við íbúana eða stöðu starfsmanna. Fréttablaðið/GVA „
Næsta skref verður að finna leiðir til að leysa skuldavandann. Sunnuhlíð á fasteignir sem duga fyrir skuldunum,“ segir Jóhann Árnason, framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar. Þar sem ríkið yfirtekur einungis reksturinn verða skuldirnar skildar eftir í gamla sjálfseignarfélaginu. Hjúkrunarheimilið skuldar lífeyrissjóðum og birgjum meðal annars vegna kaupa á mat og lyfjum um 260 milljónir króna. Heilbrigðisráðherra og stjórn Sunnuhlíðarsamtakanna hafa náð samkomulagi um að ríkið yfirtaki rekstur hjúkrunarheimilisins í Sunnuhlíð frá og með næstu áramótum. Stjórn Sunnuhlíðar hefur óskað eftir því að velferðarráðuneytið komi að viðræðum um leiðir til að takast á við uppsafnaðar skuldir vegna rekstrar hjúkrunarheimilisins og hefur ráðuneytið fallist á það. Ríkið ætlar ekki að reka Sunnuhlíð nema í skamman tíma og leitað verður að nýjum rekstraraðila til reka heimilið. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra verður það á ábyrgð þess sem tekur yfir reksturinn að ráða heimilinu nýjan framkvæmdastjóra. Jóhann segir því að yfirtakan leysi ekki allan vanda en hún tryggi þeim sem búa í Sunnuhlíð áframhaldandi vist og starfsmönnum áframhaldandi vinnu. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð er sjálfseignarstofnun sem var sett á fót 1979 af níu klúbbum og félögum í Kópavogi en heimilið tók til starfa 1982. Í Sunnuhlíð eru 73 hjúkrunarrými og 18 dagdvalarrými. Sunnuhlíðarsamtökin reka auk hjúkrunarheimilisins rúmlega 100 íbúðir fyrir aldraða. Rekstur íbúðanna er aðskilinn rekstri hjúkrunarheimilisins en íbúarnir hafa getað notið þjónustu á hjúkrunarheimilinu. Sú þjónusta verður áfram í boði eftir að ríkið tekur við rekstrinum.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira