Fleiri fréttir

Mikill erill hjá lögreglunni í nótt

Mikið um tilkynningar vegna hávaða, 18 fíkniefnamál og sex tilfelli af ölvun eða neyslu við akstur. Þá fannst bifreið sem stolið hafði verið alelda við Sandskeið.

Júlíus Vífill með mestan stuðning

Tvær vikur eru þar til prófkjör Sjálfstæðismanna í Reykjavík fer fram. Fjórir eru í slagnum um fyrsta sætið, þau Halldór Halldórsson, Hildur Sverrisdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.

Það er hægt að eyða Facebook síðum

Fyrir þá sem finnst þeir vera farnir að eyða of miklum tíma á internetinu gæti verið ágætis ráð að hætta að nota samfélagsmiðla á borð við Facebook, Twitter, Google+ og LinkedIn.

Árnar horfnar og eftir standa gagnslitlar brýr

Þrjár stórar brýr á Suðausturlandi hafa mætt þeim örlögum á undanförnum áratugum að verða gagnslitlar og jafnvel óþarfar vegna þess að árnar hurfu sem þær áttu að brúa.

Óhætt að sofa hjá Hiv-jákvæðum

Lyfjaþróun síðustu ára hefur gert það að verkum að HIV veiran smitar mun færri en verið hefur. Ótti við að stunda óvarið kynlíf með HIV smituðum einstaklingi er óþarfur, sé lyfjanna neitt samviskusamlega.

Enn logar í Fernanda

Varðskipið Þór er enn við slökkvistörf vestur af Faxaflóa, vegna elds um borð í flutningaskipinu Fernanda. Um borð í Þór eru sex slökkviliðsmenn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Illgerlegt að fjarlægja olíuna

Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til að dæla olíu úr flutningskipinu Fernöndu sem er nú staðsett vestur af Faxaflóa, en illgerlegt er að framkvæma slíkar aðgerðir á hafi úti. Enn logar í skipinu, en 100 tonn af olíu eru í tönkum þess.

Sóttu slasaðan mann á fjallið Melhól

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út rétt eftir klukkan fjögur í dag til að sækja slasaðan mann á fjallið Melhól. Maðurinn hafði velt yfir sig fjórhjóli og slasast við það á fæti.

Gleymum ekki smáfuglunum

"Það er ágætt að minna fólk á að gleyma ekki smáfuglunum þegar það fer að vetra,“ segir Ellen Magnúsdóttir fuglafræðingur. Hún segir þó nokkuð um það að fólk gefi smáfuglunum til að hjálpa þeim.

Súrrealískar pönnukökur með rabarbara á Bessastöðum

Aðeins hálfu ári eftir að ein mesta átakastjórn lýðveldissögunnar yfirgefur stjórnarráðið rúin trausti þjóðarinnar skrifar Össur Skarphéðinsson pólitískan þriller upp úr dagbókum sínum. Greinir frá átökum forseta og ráðherra í Ríkisráði.

Dó áfengisdauða við landganginn

Öryggisgæslan á Keflavíkurflugvelli gerði lögreglunni viðvart í vikunni, þar sem öldauður maður væri við hlið númer 11 í flugstöðinni.

Messi vill hjálpa öllum börnum

Í dag fagnar knattspyrnumaðurinn Lionel Messi árs afmæli Thiago, sonar síns og í samstarfi við UNICEF vill hann vekja athygli á þeim dauðsföllum barna sem hægt er að koma í veg fyrir.

Sprauta enn sjó á Fernanda

Varðskipið Þór er enn með flutningaskipið Fernanda á sömu slóðum og í gærkvöldi þ.e vestur af Faxaflóa en það svæði telst fjarri hrygningarstofnum og veiðisvæðum, samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknarstofnun.

Gleymdi lyklum og sparkaði í húsið sitt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegu tíst-maraþoni í gærkvöld og nótt, og tístaði frá kl. 18 í gær til kl. 6 í morgun.

Morgunblaðið 100 ára í dag

Morgunblaðið er 100 ára í dag, en fyrsta blaðið kom út 2. nóvember árið 1913. Fyrsti ritstjóri blaðsins var Vilhjálmur Finsen en alls hafa ritstjórarnir verið fimmtán á þessum hundrað árum.

Búa sig undir hefnd

Mikill viðbúnaður er nú í Pakistan en yfirvöld þar í landi búa sig undir hefndaraðgerðir Talibana eftir að leiðtogi þeirra, Hakimullah Mehsud, féll í loftárás Bandaríkjahers í gær.

Það er alvarlegur tónn í mér

María Ellingsen leikkona var að ljúka við leikverk um líf og ástir þriggja kvenna, leikur í nýrri sjónvarpsseríu og berst með Hraunavinum. Hún ætlar að vera í Afríku um áramótin og á Svalbarða um verslunarmannahelgina. Svo er hún móðir.

Sprenging í flugeldaverksmiðju

Kínverska lögreglan hefur handtekið lögfræðing og framkvæmdastjóra kínverskrar flugeldaverksmiðju en 11 manns létust og 17 særðust í sprengingu í verksmiðjunni, sem staðsett er í Guangxi, í gær.

Mörg fíkniefnamál í borginni

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og fjölmörg fíkniefnamál komu upp. Einstaklingur var handtekinn í Kópavogi, grunaður um framleiðslu og dreifingu fíkniefna. Lögreglan lagði hald á plöntur og fíkniefni í sölueiningum en slepptu manninum að lokinni skýrslutöku.

Fleiri vildu njósna og hlera

Gögn sem bandaríski njósnarinn Edward Snowden hafði undir höndum sýna að leyniþjónstur Þýskalands, Frakklands, Spánar og Svíþjóðar hafi síðastin fimm ár unnið að því að efla getu sína til símahlerana og netnjósna.

Flestir sjálfstæðismenn vilja Júlíus Vífil

Stærstur hluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins, um 40,5 prósent, vill að Júlíus Vífill Ingvarsson leiði lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Netflixvæðing skaðar ekki sjónvarpsáhorf

Áhorf á útsendingar hefur ekki dregist saman þrátt fyrir aukið framboð af afþreyingarefni í gegnum efnisveitur eins og Netflix að sögn talsmanna sjónvarpsstöðvanna. Sjónvarpsstjóri 365 segir afkomuna í ár stefna í að verða betri en í fyrra.

Skaðvöldum fjölgað um 27 tegundir

Skordýrum sem lifa á trjágróðri hefur fjölgað um 27 tegundir frá byrjun 20. aldar. Ein þeirra drap niður skógarfuru sem vart finnst hér lengur. Meindýr geta haft mikil áhrif á vaxandi skógarauðlindir landsins þegar til framtíðar er litið.

Æðstu ráðamenn Bretlands sýna sæstrengnum áhuga

Utanríkisráðherra Breta sýndi sæstreng milli Íslands og Bretlands mikinn áhuga á fundi með forsætisráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson þekkir til alþjóðlegra fjárfesta sem telja sæstreng mjög álitlegan fjárfestingarkost.

Geta varðskipsins Þórs nú öllum ljós

Stærsta verkefni varðskipsins Þórs síðan það kom nýtt til landsins í september 2011 er nú yfirstandandi. Aðgerðir við að slökkva elda um borð í farskipinu sýna glögglega getu skipsins í björgunarstarfi.

250.000 fengust fyrir fórn á hári

Hálf milljón króna safnaðist í góðgerðaviku Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi (FSu). Nemendur ákváðu að styðja starf Unicef í Sýrlandi.

Á að útrýma kynbundnum launamun

"Frumvarp um jafnlaunavottun er liður í því að útrýma kynbundnum launamun.“ segir Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra.

Veislan heldur áfram á Airwaves

Þriðja kvöld tónlistarhátíðarinnar leggst ekki síður í gestina en þau tvö sem liðin eru eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og myndskeiðum.

Með kannabis í nærbuxunum

Karlmaður á þrítusaldri reyndist vera með fjóra poka af kannabisefnum í nærbuxum sínum þegar lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af honum.

40 prósent Reykvíkinga ánægðir með ákvörðun Jóns Gnarr

Nærri fjörutíu prósent kjósenda í Reykjavík eru ánægðir með að Jón Gnarr ætli ekki að bjóða sig fram í næstu sveitastjórnarkosningum á meðan þriðjungur er ósáttur við ákvörðun borgarstjórans. Björt framtíð fengi svipað fylgi og Besti flokkurinn ef gengið yrði til kosninga nú.

Össur galopnar inn í bakherbegi stjórnmálanna

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra afhjúpar átök forseta Íslands við fyrrverandi ríkisstjórn á Ríkisráðsfundum í væntanlegri bók. Hann greinir m.a. frá því hvernig minnstu munaði að Jóhanna Sigurðardóttir neyddist til að segja af sér þegar hún skipti núverandi formanni Samfylkingarinnar út úr ríkisstjórn.

Sjá næstu 50 fréttir