Innlent

Gleymdi lyklum og sparkaði í húsið sitt

Lögreglumenn á Twitter-vaktinni í dag.
Lögreglumenn á Twitter-vaktinni í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegu tíst-maraþoni í gærkvöld og nótt, og tístaði frá kl. 18 í gær til kl. 6 í morgun.

Nóg var um að vera á vaktinni og fjölmörg mál komu á borð lögreglu. Þar af voru allnokkur fíkniefnamál og að vanda voru margar tilkynningar vegna hávaða í heimahúsum þegar fór að líða á nóttina. Sextán voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á þessum hálfa sólarhring, og það verður það að teljast ansi mikið.

Lesa mátti um tugi verkefna á twitter-síðu lögreglunnar í gærkvöld og nótt. Hún sendi út rúmlega 150 tíst á tímabilinu, en allmörg þeirra voru svör við ummælum þeirra sem voru að fylgjast með. Þeim sem fylgjast með lögreglunni á Twitter fjölgaði annars nokkuð við maraþon-tístið, en tæplega 5.000 manns fylgjast nú með störfum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Twitter.

Að tístinu stóðu hinir sömu og halda úti fésbókarsíðu embættisins, en tilgangurinn með þessu er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglunnar og hversu  fjölbreytt verkefni hún fæst við. Þess má geta að um 300 lögreglulið víðsvegar í heiminum tóku þátt í þessu alþjóðlega tísti, og er það um helmingsfjölgun lögregluliða frá því að samskonar tíst var haldið í mars á þessu ári.

„Oftar en ekki kom ölvun eða fíkniefnaneysla við sögu í málum næturinnar. Hvort það átti við um konuna sem lögreglan aðstoðaði í austurborginni í nótt skal hins vegar ósagt látið. Hún var að sparka í hús þegar lögreglan kom á vettvang, en eftirgrennslan leiddi í ljós að konan átti sannarlega heima í umræddu húsi.

Hún vildi eðlilega komast inn til sín, en fann ekki húslykilinn og ákvað því að sparka í húsið. Það skilaði auðvitað engum árangri og varð aðeins til þess að pirra nágrannana. Við hjálpuðum henni að finna húslykilinn á augabragði og allt fór vel, en hætt er við að konunni verði illt í fætinum þegar hún vaknar í dag,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×