„Það tekur sinn tíma að fara í gegnum öll lögin“ Boði Logason skrifar 18. október 2013 13:59 Gréta Salóme og Jónsi sigruðu undankeppnina hér heima í fyrra, og kepptu fyrir hönd Íslands í Eurovision. Mynd/afp „
Það tekur sinn tíma að fara í gegnum öll lögin, það þarf að hlusta á þau oftar en einu sinni,“ segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri söngvakeppni sjónvarpsins, sem fer fram eftir áramót. Aldrei hafa fleiri lög borist inn í keppnina eins og í ár eða 297 lög, og nemur aukningin um 25 prósent á milli ára. Árið 2011 voru lögin rétt rúmlega 200. Reglum keppninnar var breytt í ár og nú máttu höfundar einungis senda inn tvö lög en ekki þrjú. „Það var algjört met í fyrra en þá voru um 240 lög,“ segir Hera. Spurð hvers vegna þessi mikli áhugi sé á keppninni í ár segir hún að mikil áhersla hafi verið lögð á að ná til sem flesta. „Líka til þeirra sem eru á fullu í tónlist. Þau lög sem hafa unnið síðustu ár eru svolítið nýtískuleg, það getur vel verið að það spili inn í og kveiki kannski í einhverjum af yngri kynslóðinni,“ segir hún. Í næstu viku mun valnefnd koma saman og byrja að hlusta á öll lögin. Ekki er gefið upp hverjir eiga sæti í valnefndinni, að sögn Heru, vegna smæðar landsins og þeirrar staðreyndar hversu lítill bransinn á Íslandi er. Sjö manns eiga sæti í nefndinni. Félag tónskálda og textahöfunda og Félag íslenskra hljómlistarmanna skipa tvö fulltrúa í nefndina. Ríkisútvarpið skipar einnig 2 fulltrúar og svo er einn óháður, sem RÚV velur. Það er ekki enn búið að ákveða hvernig fyrirkomulagið verður þegar undankeppnin hefst eftir áramót. „Það verða nokkur undanúrslit og svo lokakvöld. Það á eftir að koma í ljós hversu mörg lög verða í undanúrslitunum, það verður tilkynnt bráðlega,“ segir Hera að lokum. Sigurvegarinn á lokakvöldinu hér heima keppir svo fyrir hönd Íslands í Eurovision í Danmörku í maí.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira