Fleiri fréttir

"Mér líður rosalega illa"

Geislafræðingum hefur verið gefinn frestur til miðnættis í kvöld til að draga uppsagnir sínar til baka. Þeir höfðu áður sett endurráðningu formanns Félags geislafræðinga sem skilyrði fyrir því að snúa aftur til starfa, en henni var sagt upp störfum í vor.

Flakið flutt til Reykjavíkur í dag

Flugmaðurinn sem lifði af þegar flugvél brotlenti við Akureyri á mánudaginn hefur áður lent í flugslysi. Það slys bar upp sama mánaðardag, eða fimmta ágúst, árið 2001.

Nafn mannsins sem lést á Suðurlandsvegi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi skammt frá Þingborg í gær hét Leifur Ársæll Leifsson til heimilis að Smáragötu 5 í Vestmanneyjum. Leifur var fæddur 8. febrúar 1955 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn.

Fljúgandi lesbíur í Hörpu

"Þetta er búið að fara mjög vel af stað í vikunni og núna erum við að fara telja inn í hraðari gír,“ segir Gunnlaugur Bragi Björnsson, gjaldkeri Hinsegin daga árið 2013.

"Ríkisstjórnin eins og fíll í glervöruverslun"

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir á Facebook-síðu sinni í dag að ríkisstjórnin sé orðið stærsta efnahagsvandamálið og hún sé eins og fíll í glervöruverslun.

Europol handtekur glæpagengi

Fjórir menn, aðilar að skipulögðum glæpahóp, hafa verið handteknir grunaðir um að smygla gríðarlega miklu magni af efnum til fíkniefnaframleiðslu. Þessi efni eru notuð til ólöglegrar framleiðslu á amfetamíni og MDMA aðallega í Hollandi.

Lestarstjórinn var úthvíldur

Julio Gomez-Pomar, yfirmaður lestarfyrirtækisins, sem átti og rak lestina sem fór út af sporinu í norðurhluta Spánar í lok síðasta mánaðar, með þeim afleiðingum að 79 fórust og 170 slösuðust, segir að áhöfn lestarinnar hafi ekki tilkynnt um nein vandamál í lestinni fyrir slysið. Öll öryggisatriði lestarinnar hafi verið í lagi.

Höfrungur kemur í heiminn

Fæðing 18 kílóa höfrungs náðist á myndband í Brookfield-dýragarðinum í Illinois á dögunum.

Færeyjar vilja aðgang að innri markaði ESB

Stjórnvöld í Færeyjum stefna að því að verða hluti af innri markaði ESB. Markmiðið er að geta notið þeirra möguleika sem sterkt markaðssvæði eins og ESB býður uppá.

Dæmdur perri játaði fyrir dómi

Kynferðisafbrotamaðurinn Jóhannes Páll Sigurðsson, áður Jóhann Sigurðarson, játaði fyrir dómi að hafa brotist inn á þrjú heimili, farið nakinn inn í sturtu til ókunnugrar konu og strokið handarbak 17 ára stúlku. Reyndi tvö húsbrot í viðbót.

Sandgerðingar óvænt krafðir um lóðarleigu

Sandgerðisbær hefur tekið að sér að senda stórum hluta íbúa bréf fyrir hönd landeigenda þar sem þeir eru rukkaðir um tugþúsundir í lóðarleigu á ári. Leigan hefur ekki verið innheimt árum saman. Til stendur að blása til íbúafundar um málið.

Losa úrgang í sjóinn

Illa gengur að binda endi á áratuga hefð fyrir því að sturta slógi fram af bjargi við Þorlákshöfn. Búið er að steypa þröskuld við bjargbrúnina. Lögbrot sem ekki verður liðið segir bæjarstjóri. Allir sammála um að brýn þörf sé fyrir bræðslu á svæðinu.

300 tonn af geislavirku vatni leka á hverjum degi

Talið er að allt að þrjú hundruð tonn af geislavirku vatni leki nú á hverjum degi úr kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan sem varð illa úti eftir að jarðskjálfti reið yfir svæðið fyrir tveimur og hálfu ári síðan.

Læknadópið hækkað mest frá aldamótum

Lyf sem notuð eru til lækninga leika sífellt stærra hlutverk á vímuefnamarkaðnum hér á landi og hafa rítalín og morfín hækkað mest allra vímuefna á síðustu tólf árum. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun SÁÁ.

Banaslys á Suðurlandsvegi

Banaslys varð á Suðurlandsvegi skammt frá Þingborg á sjötta tímanum í dag þegar sendibifreið og vörubifreið, sem komu úr gagnstæðum áttum, rákust á.

Flugmaðurinn enn á sjúkrahúsi

Flugmaður Mýflugs sem lifði af flugslysið á Akureyri er enn til aðhlynningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri en er ekki í lífshættu. Áætlun liggur fyrir um útskrift hans af sjúkrahúsinu, að sögn eiginkonu hans.

Borgar á annan milljarð samtals fyrir afnot af Perlunni

Ríkissjóður þarf að borga 80 milljónir króna á ári í leigu fyrir afnot af Perlunni undir Náttúruminjasafn Íslands eða samtals vel á annan milljarð króna á samningstímanum. Samningurinn er til 15 ára og er óuppsaegjanlegur. Stjórnarþingmenn gagnrýna leiguna og segja hana óeðlilega háa.

"Þetta kom mér mjög mikið á óvart"

Tvær milljónir gesta hafa heimsótt Hörpuna frá því að húsið var opnað fyrir rúmum tveimur árum og náðist áfanginn þegar Sjöfn Friðriksdóttir mætti þangað seinni partinn í dag. Forstjóri Hörpunnar segir aðsókn að húsinu langt umfram væntingar.

Geislafræðingar ítreka afstöðu sína í bréfi til forstjóra LSH

19 af 40 geislafræðingum sem gengu út af Landspítalanum í síðustu viku, neita að snúa aftur til starfa nema formaður Félags geislafræðinga, sem sagt var upp störfum í vor, verði endurráðinn. Staðgengill forstjóra Landspítalans segir ekkert óeðlilegt við uppsögnina.

Unnið að úrbótum á matvælaöryggi á Íslandi

Ekki er hægt að skima fyrir öllum hættulegum aukaefnum í matvælum sem nauðsynlegt er, með þeim tækjakosti sem til er á landinu í dag. Verkefni á vegum Matís er ætlað að auka matvælaöryggi á Íslandi og vernda neytendur.

Umferðarslys við Þingborg

Umferðarslys varð rétt austan við Þingborg í Hrunagerðishreppi nú á sjötta tímanum. Í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi segir að Þjóðvegur 1 sé lokaður í báðar áttir vegna þessa. Ekki er ljóst hvenær vegurinn verður opnaður á nýjan leik.

Skylt að hylja andlit

"Við lögðum upp með og hefðum viljað hafa það þannig að við skyggðum þá sem um það bæðu. Frá því að við fórum af stað í þetta verkefni hafa viðtökurnar verið ofsalega jákvæðar. Fólk hefur verið að taka þátt með okkur og stilla sér upp og jafnvel sprella.

Ákærður fyrir manndráp

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Friðriki Brynjari Friðrikssyni, en hann er grunaður um að hafa orðið Karli Jónssyni að bana þann 7. maí.

Obama hættir við að hitta Pútín

Bandaríkjaforseti hefur aflýst leiðtogafundi sínum með Rússlandsforseta í næsta mánuði, vegna ákvörðunar Rússa um að veita Edward Snowden dvalarleyfi.

Sætta sig ekki við að formaðurinn standi eftir atvinnulaus

"Geislafræðingum finnst vera brotið gegn réttlætiskennd þeirra,“ segir Harpa Dís Birgisdóttir, geislafræðingur og varaformaður félags geislafræðinga. "Við getum ekki sætt okkur við að formaðurinn standi eftir atvinnulaus eftir að við höfum staðið saman í þessum viðræðum sem hafa verið undanfarna mánuði.“

Sjá næstu 50 fréttir