Sætta sig ekki við að formaðurinn standi eftir atvinnulaus Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. ágúst 2013 14:55 Geislafræðingar standa með formanninum „
Geislafræðingum finnst vera brotið gegn réttlætiskennd þeirra,“ segir Harpa Dís Birgisdóttir, geislafræðingur og varaformaður félags geislafræðinga. „Við getum ekki sætt okkur við að formaðurinn standi eftir atvinnulaus eftir að við höfum staðið saman í þessum viðræðum sem hafa verið undanfarna mánuði.“ Formanni félags geislafræðinga var sagt upp störfum í vor þegar staða hennar var lögð niður. „Við skiljum ekki af hverju hennar var ekki boðin staða sem geislafræðingur þegar það var verið að auglýsa eftir geislafræðing á sama tíma. Katrín hafði sinnt starfi kerfisgeislafræðings en vann jafnframt hefðbundin störf geislafræðings.“ Eins og fram hefur komið í fréttum Vísis náðist samkomulag í deilunni milli geislafræðinga og Landspítalans 31. júlí síðastliðinn og fengu geislafræðingar allt að 15% launahækkun. 40 geislafræðingar höfðu sagt upp starfssamningum við Landspítalann og nú hafa 23 geislafræðingar dregið uppsögn sína til baka. Hinir sautján vilja ekki hefja störf fyrr en að Katrín fær endurráðningu. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans sagði í viðtali við Morgunblaðið að Katrínu hefði verið bent á aðrar leiðir til þess að fá vinnu hjá spítalanum. „Ég veit ekki hvað hann er að tala um og Katrín kannast ekki við þetta heldur. Það sem við viljum er að henni verði boðin staða aftur sem geislafræðingur hjá spítalanum.“
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira