Dæmdur perri játaði fyrir dómi Stígur Helgason skrifar 8. ágúst 2013 09:00 Jóhannes Páll játaði allt fyrir Héraðsdómi Reykjaness en sagðist ekki muna eftir neinu atvikanna.
Dæmdur kynferðisafbrotamaður, Jóhannes Páll Sigurðsson, gekkst við því fyrir dómi í síðustu viku að hafa brotið sér leið inn á þrjú heimili fyrr í sumar og í tveimur tilvikum haft uppi kynferðislega tilburði við ókunnugt kvenfólk. Þá reyndi hann að brjótast inn á tvö heimili til viðbótar. Jóhannes, sem áður hét Jóhann Sigurðarson, er 45 ára og hefur áður hlotið dóma fyrir sambærileg, en grófari, brot. Hann var handtekinn aftur um miðjan júní vegna málanna sem nú eru komin fyrir dóm og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Málin sem um ræðir eru fimm talsins og áttu sér mestmegnis stað á sama sólarhringnum í júní. Það grófasta var þegar hann braust inn á heimili til hjóna, afklæddist og fór nakinn inn í sturtu til konunnar, króaði hana af upp við vegg og nuddaði sér utan í hana. Maður hennar var þá heima. Í ákærunni er þetta talið varða við hegningarlagaákvæði um brot gegn blygðunarsemi. Í öðru tilviki var hann kominn á rúmgaflinn hjá sautján ára unglingsstúlku og byrjaður að strjúka á henni handarbakið þegar foreldrar stúlkunnar urðu hans varir og ráku hann á dyr. Maðurinn gekkst við því að strokurnar hefðu haft kynferðislegan tilgang og var hann ákærður fyrir kynferðislega áreitni gegn stúlkunni. Í þriðja skiptið var honum vísað út úr húsi þar sem hann var kominn snuðrandi inn í barnaherbergi, og í tvö skipti til viðbótar reyndi hann að ryðja sér leið inn á ókunnug heimili en húsráðendur, kona í öðru tilvikinu og ung stúlka í öðru, gátu haldið honum úti með því að leggjast á hurðina. Jóhannes játaði sem áður segir öll brotin sem honum voru gefin að sök, þrjú húsbrot, tvær tilraunir til húsbrots, blygðunarsemisbrot og kynferðislega áreitni. Hann sagðist hins vegar hafa verið í annarlegu ástandi og ekkert muna eftir atvikunum. Brotin voru framin örfáum dögum eftir að hann hafði staðist skilorð reynslulausnar fyrri dóma, sem meðal annars fól í sér að hann mætti ekki neyta áfengis. Dómur í málinu verður kveðinn upp 13. ágúst.
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira