Innlent

Banaslys á Suðurlandsvegi

Banaslys varð á Suðurlandsvegi skammt frá Þingborg á sjötta tímanum í dag þegar sendibifreið og vörubifreið, sem komu úr gagnstæðum áttum, rákust á.

Ökumaður sendibifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en var úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna þangað.

Ökumaður vörubifreiðarinnar var fluttur á sjúkrahús á Selfossi en er ekki alvarlega slasaður.

Suðurlandsvegur er lokaður vegna þessa og verður um tíma áfram.

Umferð var beint um Villingaholtsveg og Urriðafossveg en vandamál sköpuðust vegna þess hve Urriðafossvegur er þröngur.

Nú er verið að greiða úr þeim vandamálum.

Örugg leið fyrir þá sem nauðsynlega þurfa að komast er um Skeiðaveg og Skálholtsveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×