Fleiri fréttir

Skyrið rennur út

Hátt í fimm þúsund tonn af skyri verða seld á Norðurlöndunum á þessu ári sem er ríflega tvöfalt meiri neysla á skyri en er hér á landi. Forstjóri Mjólkursamsölunnar segir mikla eftirspurn vera eftir próteinríkum hollustuvörum bæði hér heima og erlendis.

"Hún var grimm og andstyggileg“

"Hún var grimm og andstyggileg, staðreyndin er sú að konur eru líka gerendur og karlar þolendur þegar kemur að heimilisofbeldi." Þetta segir þrítugur karlmaður í einlægu viðtali við Ísland í dag í gærkvöldi. Hann var kúgaður og niðurlægður á heimili sínu í yfir tvö ár og fær enn martraðir vegna þess.

Viðvörun vegna vatnavár

Við hlýindin undanfarna daga hefur snjó tekið upp á norðan- og austanverðu landinu ásamt Vestfjörðum og hluta af Suðurlandi samkvæmt viðvörun frá Veðurstofu Íslands. Síðastliðinn vetur var sá snjóþyngsti síðan 1995 með snjókomu fram undir lok maí.

Afhentu Bjarna 31 þúsund undirskriftir

Stjórn SÁÁ afhenti Bjarna Benediktssyni 31 þúsund undirskriftir í átakinu Betra líf í Fjármálaráðuneytinu í dag. Markmið Betra líf er að bæta lífsgæði illra staddra áfengis – og vímuefnasjúklinga og aðstandenda þeirra.

Samfylkingarmenn treysta Katrínu betur en Árna Páli

Almenningur ber mest traust til Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstri grænna, af stjórnmálamönnum landsins. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem MMR gerði á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum, en 62,5% þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni bera traust til hennar. Traust til Katrínar hefur aukist talsvert frá síðustu mælingu þegar það mældist 44,4%.

Hékk á annarri hendi í 76 metra hæð

Breski ofurhuginn James Kingston klifraði á dögunum upp 76 metra háan byggingakrana í Southamtpon í Bretlandi án öryggisbúnaðar. Hann lét ekki þar við sitja og tók upp á því að hanga niður af krananum á annarri hendi þegar upp var komið.

Afmælisútgáfa Porsche 911

Verður ekki sérlega breyttur frá nýjustu kynslóð bílsins, en fær þó 30 viðbótarhestöfl.

Laddi: "Hemma verður sárt saknað"

"Ég á eftir að sakna hans ótrúlega mikið. Þetta er algjört reiðarslag. Ég er ekki búinn að átta mig á þessu ennþá. Þetta er svo ótrúlegt," segir Þórhallur Sigurðsson leikari, betur þekktur sem Laddi, um fráfall Hermanns Gunnarssonar.

Matvælastofnun varar við banvænu megrunarefni

Inntaka lítils magns af megrunarefninu Dínítrófenol 2,4-dínítrófenól getur getur valdið eitrun sem leiðir til svitamyndunar, vöðvaverkja, öndunarerfiðleika og jafnvel dauða. Lyfið er ólöglegt á Íslandi en auðvelt er að panta það á netinu. Matvælastofnun varar við notkun fæðubótarefna sem innihalda efnið.

Eftirlit með geislavirkum efnum eflt

Tollstjóra barst nýverið góð viðbót við tækjabúnað embættisins. Þá afhentu fulltrúar frá Geislavörnum ríkisins embættinu til láns greiningartæki sem mæla geislavirkni í umhverfinu. Tækin verða í notkun tollvarða til reynslu í sex mánuði.

Náðu Qusair úr höndum uppreisnarmanna

Hersveitir Sýrlandsstjórnar hafa náð bænum Qusair úr höndum uppreisnarmanna en bærinn, sem er við landamæti Líbanons er talinn hernaðarlega mikilvægur.

Nýr Ford Kuga kominn

Er nú með 182 hestafla EcoBoost vél og fékk 5 stjörnur hjá Euro NCAP.

Hemmi fékk tíu ár aukalega

Fyrir um tíu árum fékk Hemmi Gunn hjartaáfall. Hann var í raun farinn yfir móðuna miklu en vaknaði aftur til lífsins.

Allir hressir í rigningunni í Reykjavík

Skólakrakkar og ferðamenn voru áberandi í borgarlandslaginu í slagviðrinu í gær. Ferðafólkið sagði regnið ekkert koma á óvart. Börnin héldu sínu striki kampakát.

Herjólfur

Fyrsta ferð Herjólfs sem fara átti frá Vestmannaeyjum klukkan hálf níu og frá Landeyjahöfn klukkan tíu fellur niður í dag.

Strandveiðibátar halda úr höfn

Um fimm hundruð strandveiðibátar voru farnir til veiða nú í morgunsárið en ófært hefur verið á mið strandveiðibáta að undanförnu vegna brælu.

Ógnaði fólki með hnífi

Klukkan eitt í nótt var lögreglu á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um mann sem ógnaði fólki með hníf fyrir utan skemmtistað í vesturbæ Reykjavíkur.

Varað við aurskriðum

Veðurstofan varar við hættu á skriðuföllum og krapaflóðum vegna leysinga og vatnavaxta, einkum á Norður- og Austurlandi.

Birgitta kveikti áhuga á Íslandsför

Sjónvarpsviðtal við Birgittu Jónsdóttur alþingismann vakti áhuga Roys Albrecht á Íslandi. Nú er hann hingað kominn frá Kanada og íhugar að fá að setjast hér að. Albrecht kveðst vilja tjá skoðanir sínar á ráðandi öflum án þess að sæta ofsóknum.

Amfetamín- og rítalínfaraldur

Tilbúin efni verða sífellt algengari á fíkniefnamarkaðnum í Evrópu. Sama þróun á sér stað hérlendis. Sum tilbúnu efnanna hafa ekki enn verið bönnuð. Borið hefur á metamfetamíni undanfarið. Rítalínið stórvandamál.

Ábyrgð foreldra mikil á netinu

Mikilvægt er að foreldrar fylgist vel með netnotkun barna sinna segir Þórir Ingvarsson rannsóknarlögreglumaður, en hann sérhæfir sig í netöryggi barna.

Spila með sorgarbönd gegn Slóveníu

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mun spila með sorgarbönd í leiknum gegn Slóveníu á Laugardalsvelli á föstudaginn kemur til að votta Hermanni Gunnarssyni virðingu sína.

Hemmi Gunn látinn

Fjölmiðlamaðurinn ástsæli, Hermann Gunnarsson, er látinn, 66 ára að aldri.

Laxeldi á Vestfjörðum eins og ígildi álvers

Uppbygging laxeldis stefnir í að hafa sambærileg og jafnvel meiri áhrif á sunnanverðum Vestfjörðum og stóriðjuframkvæmdirnar höfðu fyrir Austurland, segir bæjarstjóri Vesturbyggðar.

Hætt við að skima allar barnshafandi konur í kjölfar efnahagshrunsins

Lagt var til í október 2008 að allar barnshafandi konur hér á landi yrðu skimaðar fyrir Streptókokkum B. Hætt var við þau áform í kjölfar efnahagshrunsins. Yfirlæknir á fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, þar sem allar konur eru rannsakaðar, segir að efniskostnaður fyrir hverja skimun sé 360 krónur sem þýðir að árlegur kostnaður fyrir landið allt er rúmar sjö milljónir.

Segir útilokað að andlát megi rekja til ungbarnahristings

Breskur taugameinafræðingur og dómkvaddur sérfræðingur í máli manns sem dæmdur var í átján mánaða fangelsi fyrir að valda dauða 9 mánaða drengs með hristingi fyrir áratug, hefur í skýrslu sinni útilokað að dauða barnsins megi rekja til heilkennis ungbarnahristings. Lögmaður mannsins segir skýrsluna verða lagða fyrir endurupptökunefnd og farið verði fram á endurupptöku málsins.

Rússneskur maður myrtur vegna samkynhneigðar

39 ára rússneskur maður var myrtur á hrottafenginn hátt af þremur mönnum sem réðust á hann, spörkuðu í hann og stungu til bana. Þá settu þeir lík hans í bíl og kveiktu í.

Sjá næstu 50 fréttir