8 ára drengur fær ekki bætur fyrir alvarlegt slys á skólatíma Jóhannes Stefánsson skrifar 5. júní 2013 00:03 Spyrja má hvort niðurstaðan hefði verið önnur ef móðirin hefði ekki treyst drengnum til að labba heim úr skólanum.
VÍS var í vikunni sýknað af bótakröfu átta ára drengs sem hafði dottið ofan af vegg sem afmarkaði skólalóð Árbæjarskóla og lóð Árbæjarkirkju. Drengurinn hafði verið að leik í frímínútum í skólanum er hann prílaði upp á vegginn en hann datt svo af veggnum úr tveggja metra hæð með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka og í kjölfarið varanlega örorku. Foreldrar drengsins stefndu VÍS til greiðslu skaðabóta en þeir töldu skólann bera ábyrgð á tjóni drengsins. Foreldrarnir héldu því fram að skólanum hefið láðst að tryggja öryggi drengsins með því að setja ekki girðingu á vegginn og að ekki hefði verið haft nægt eftirlit með drengnum sem hefði leitt til þess að hann varð fyrir tjóninu og því væri skólinn ábyrgur fyrir tjóni drengsins. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þessa röksemdafærslu foreldranna.Ef foreldrarnir geta treyst barninu getur skólinn það líka Í niðurstöðu dómsins segir meðal annars að eftir því sem börn eldist minnki nauðsyn þess að fylgjast stöðugt með þeim og það gildi ekki síður um skólann, þar sem börnin eru gjarnan á daginn. Móðir drengsins upplýsti fyrir dóminum að drengurinn labbaði gjarnan sjálfur einn og án eftirlits heim á daginn eftir skóla. Dómurinn virðist byggja niðurstöðu sína á þessari staðreynd að einhverju leyti, en í niðurstöðu hans segir: „Stefnandi hafi [venjulega innsk. blm.] ekki verið sóttur í skólann heldur gengið einn heim eftir að skóla lauk klukkan rúmlega tvö og að öðru jöfnu þá verið einn heima þar til móðir hans hafi komið úr vinnu sinni sem lokið hafi um klukkan þrjú." Þá segir einnig: „Við mat á því hvort það verði talið starfsmönnum skólans til sakar að hafa ekki haft sérstakar gætur á stefnanda til að koma í veg fyrir að stefnandi og félagi hans færu að kirkjunni í frímínútum verður ekki litið fram hjá því sem fram kom fyrir dóminum af hálfu móður stefnanda um mat hennar á hæfi hans og þroska til að gæta sín sjálfur án eftirlits á þeim slóðum þar sem slysið varð." Niðurstaðan varð því sú að drengurinn var sjálfum gert að bera skaðann af tjóninu. Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Mest lesið Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira