Fleiri fréttir

Áherslan á efnahags- og skuldamál

Viðræður formanna Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks halda áfram í Reykjavík í dag. Svanhildur Hólm, aðstoðarkona Bjarna Benediktssonar, gerir ráð fyrir því að formennirnir muni setja efnahags- og skuldamál á oddinn í viðræðum sínum.

Svikahrappar hringja í grunlaust fólk

Nokkrir höfðu samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og tilkynntu um að hafa fengið grunsamleg símtöl frá Indlandi í gær, þar sem boðist var til að laga tölvu viðkomandi. Svikahrapparnir sögðust vera frá Microsoft og séu að hringja vegna víruss í tölvu viðtakanda. Um er að ræða þekkt svindl og lögreglan segir á fésbókarsíðu sinni að mikilvægt sé að gera alls ekki eins og hrapparnir biðja um, enda hætta á að elstu og yngstu notendurnir falli fyrir slíku.

Á yfir höfði sér dauðarefsingu

Saksóknari í Ohio mun meðal annars sækja Ariel Castro til saka fyrir morð en sá rændi, sem kunnugt er, þremur táningsstúlkum í Cleaveland og hélt þeim föngnum í áratug. Castro starfaði sem skólabílstjóri. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðarefsingu. Castro er meðal annars talinn hafa barið eina stúlknanna ólétta þannig að hún missti fóstur átta sinnum.

Eitt stærsta bankarán sögunnar

Upp komst um eitt eitthvert stræsta bankarán sögunnar nýverið að sögn saksóknara í Bandaríkjunum, en um er að ræða alþjóðlegt tölvusvindl sem gengur út á að stela aðgangi að kreditkortum og draga út fé úr hraðbönkum í 27 löndum. Upphæðin nemur 45 milljónum bandaríkjadala sem er um 5,3 milljarðar íslenskra króna. Dómsmálaráðuneyti bandaríkjanna hefur kært átta menn fyrir verknaðinn en þeir tilheyrðu samtökum sem staðsett voru í New York. Sjö þeirra hafa verið handteknir en sá áttundi, sem er leiðtogi hópsins, er sagður hafa verið myrtur í Dómíníkanska lýðveldinu, 27. apríl.

Ekkert lát á skjálftum

Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni sem hófst fyrir rúmum sólarhring 30 kílómetrum suðvestan Reykjanestár. Hundruð skjálfta hafa mælst í hrinunni, sem flestir eru þó litlir. Tveir skjálftar, yfir fjórir á stærð mældust á öðrum tímanum í nótt og þrír í gær. Þeir hafa fundist á Suðurnesjum, á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel víðar. Ekki er hægt að útiloka að fleiri skjálftar muni verða, en jarðskjálftafræðingar Veðurstofunnar segja að jarðskjálftahrinur séu algengar á norðanverðum Reykjaneshrygg.

Fangi breytti sér í gleðikonu

Kólómbískum fanga tókst að flýja og til að dyljast fyrir lögreglu fór hann í brjóstaaðgerð og klæddi sig sem kona til að forðast fangelsisvist.

Bólusetja fátækustu stúlkurnar

Tvö fjölþjóðleg lyfjafyrirtæki í félagi við alþjóðasamtök á heilbrigðissviði taka þátt í verkefni sem miðar að því að auka vernd milljóna stúlkna í fátækum löndum gegn leghálskrabbameini.

Nýgiftur lést eftir árás hákarls

Þrjátíu og sex ára gamall Frakki í brúðkaupsferð lét lífið í hákarlaárás á frönsku eyjunni Reunion í Indlandshafi síðdegis á miðvikudag. Maðurinn hafði verið við leik á brimbretti undan strönd Brisants de Saint-Gilles meðan eiginkona hans sólaði sig á ströndinni.

Páfi kopta sækir Vatíkanið heim

Tawadros annar, páfi Koptísku kirkjunnar í Egyptalandi, er lagður af stað í opinbera heimsókn til Vatíkansins, að sögn starfsmanna kirkjunnar. 40 ár eru liðin síðan páfi kopta heimsótti síðast Vatíkanið.

Öryggisskoðun leiksvæða barna er víðast í skötulíki

Framkvæmd var aðalskoðun á aðeins tíu prósentum leiksvæða allra leik- og grunnskóla landsins í fyrra. Aðalskoðun á öllum leiksvæðum á að framkvæma einu sinni á ári af faggiltum aðila til að staðfesta öryggi tækja og umhverfis.

Ísraelskar landnemabyggðir rísa á ný á Vesturbakkanum

Ísraelsk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á að hafnar verði framkvæmdir við næstum 300 íbúðarhús í landnemabyggð á Vesturbakkanum. Palestínumenn hafa mótmælt áformunum harðlega og þá er talið að þau geti flækst fyrir tilraunum Bandaríkjamanna til að hefja á ný friðarviðræður milli þjóðanna.

Gistiskýlið sprungið vegna ásóknar útigangsmanna

Gistiskýlið í Þingholtsstræti er sprungið og getur ekki sinnt þörfum allra sem þangað sækja. Þetta staðfestir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða.

Fyrsta hrefna veiðiársins skotin

"Við höfum átt nóg með að sinna innanlandsmarkaðinum miðað við þá veiði sem við höfum verið að ná undanfarin þrjú ár."

Gerðu hálmdyngju fyrir álftir

„Dóttir mín var á leið til Dalvíkur að morgni dags og sá álft liggja í snjó uppi á skör við lítinn poll. Álftin var eitthvað að velta sér og þá veitti dóttir mín því eftirtekt að hún var með egg milli fótanna,“ segir Gunnsteinn Þorgilsson, bóndi að Sökku í Svarfaðardal, sem vann á dögunum lítið góðverk við annan mann, Baldur Þórarinsson frá Bakka.

Framkvæmdum við Klettaskóla frestað

Tafir hafa orðið á framkvæmdum við fyrirhugaða viðbyggingu við Klettaskóla í Öskjuhlíð. Íbúar í nágrenni skólans hafa gert fjölmargar athugasemdir við bygginguna en til stóð að hefja framkvæmdir á þessu ári.

Einherjar í víking í Hljómskálagarðinum

Allt útlit er fyrir að ný víkingahátíð, Ingólfshátíð, verði haldin í Hljómskálagarðinum dagana 13. og 14. júlí í sumar. Nafnið vísar til landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar, en fyrsta hátíðin verður tileinkuð ljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni, sem lést úr hvítblæði í apríl. Borgarráð á eftir að taka málið fyrir en Höfuðborgarstofa, menningar- og ferðamálasvið og umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar hafa tekið vel í hugmyndina.

Skjálftahrinan heldur áfram

Þrír skjálftar, um og yfir 4 að stærð, hafa orðið við Fuglaskerin á Reykjaneshrygg, um 30 kílómetra suðvestan við Reykjanestá, á þessum sólarhring.

Fóru aftur saman í bústað

Formenn væntanlegra ríkisstjórnaflokka funduðu í sumarbústað í Biskupstungum í dag og stendur fundur enn yfir. Ekki hefur verið ákveðið hvenær eða hvort viðræðunefndir verði skipaðar fyrir hönd flokkanna.

Meintur banamaður neitar að tjá sig um sakarefnið

Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið tæplega sextugum karlmanni að bana á Egilsstöðum í vikunni neitar að tjá sig um sakarefnið og verður því ekki yfirheyrður aftur fyrr en gagnaöflun og rannsókn lögreglu er lokið. Krufning hefur leitt í ljós að hinum látna blæddi út af völdum áverka sem hann hlaut.

Þúsund manns komu saman á Barnahátíð SÁÁ

Áætlað er að um þúsund manns á öllum aldri hafi komið saman og glaðst þegar Barnahjálp SÁÁ var stofnuð á Barnahátíð SÁÁ í dag. Barnahjálpin mun hafa það hlutverk að aðstoða börn alkóhólista. Hljómsveitin Pollapönk hélt uppi stuðinu, Mikki refur og Lilli klifurmús skemmtu og íþróttaálfurinn kom blóðinu af stað hjá áhorfendum.

Halda spilunum þétt að sér

Formenn væntanlegra stjórnarflokka halda spilunum enn fast að sér og hleypa öðrum þingmönnum flokkanna ekki að stjórnarmyndunarviðræðunum. Fimm dagar eru frá því að forseti fékk formanni Framsóknar umboð til stjórnarmyndunar.

Tugir eftirskjálfta

Á sjötta tug eftirskjálfta hafa orðið á Reykjaneshryggnum frá því að skjálfti sem mældist 4,1 varð þar laust fyrir klukkan ellefu í morgun.

Hittast í dag til að ræða stjórnarmyndun

Formenn væntanlegra ríkisstjórnaflokka ætla funda í dag en síðustu dagar hafa verið notaðir til að afla gagna og upplýsinga til að halda viðræðum áfram. Ekki er stefnt að því að blanda fleirum inn í viðræðunnar að sinni.

Háskólinn á Bifröst opinn almenningi

Háskólinn á Bifröst verður með opinn í dag milli 14.00 - 17.00 en skólinn fagnar 95 ára afmæli sínu um þessar mundir. Á opna deginum verður námsleiðir skólans kynntar og boðið verður upp á glæsilega fjölskylduskemmtun á sama tíma.

Skjálfti á Reykjanesi

Skjálfti að stærðinni 3,1 varð á Reykjaneshrygg rétt fyrir klukkan ellefu. Nokkrir litlir eftirskjálftar hafa síðan orðið. Skjálftinn mun hafa fundist á nokkrum stöðum á Suðurnesjum.

Nýfætt stúlkubarn skilið eftir í plastpoka

Nýfætt stúlkubarn fannst í plastpoka í skógi í bænum Farum í Danmörku í morgun. Hún var ekki í lífshættu þegar hún fannst en mjög köld. Hún var flutt á bráðadeild Ríkisspítalans.

Of margir skólar starfandi á Íslandi

Mikil tækifæri eru til að hagræða og bæta skólakerfið á Íslandi, að mati verkefnastjórnar Samráðsvettvangs um aukna hagsæld. Verkefnastjórnin fundaði í gær og kynnti eftir það tillögur. Þar segir að þrátt fyrir há fjárframlög til menntamála standi Íslendingar höllum fæti gagnvart nágrannalöndum á lykilmælikvörðum. Íslendingar verji til dæmis mest Norðurlandanna til menntamála miðað við landsframleiðslu en hlutfall þeirra sem útskrifast úr framhaldsskóla með minna en tveggja ára töf er aftur á móti lægst.

Ölvuð hestakona beit lögreglumann

Óhætt er að segja að erill hafi verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var óskað eftir aðstoð lögreglu við verslun Olís við Suðurlandsveg í Norðlingaholti. Þar voru ölvaðar hestakonur á ferð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ein konan einnig undir áhrifum lyfja og því ekki í ástandi til að vera á hestbaki. Þá mun hún hafa brugðist afar illa við afskiptum lögreglu og beit og sparkaði í lögreglumann. Hún var á endanum handtekin og vistuð í fangageymslu lögreglu. Hún verður yfirheyrð í dag þegar af henni verður runnið.

Bréf TM hækkuðu um þriðjung frá útboði

Hlutabréf Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) enduðu í 26,70 krónum á hlut í lok fyrsta viðskiptadags með bréfin í Kauphöll Íslands í gær. Hækkunin frá útboðsgengi, sem var 20,10 krónur, nemur rétt tæpum þriðjungi.

Tjarnarstiklur varhugaverðar

Tillögu um uppsetningu umhverfisverks í Reykjavíkurtjörn var í gær hafnað í borgarráði. Listaverkið átti að felast í lágreistum stiklum úr kuðungslaga boga út að útsýnispalli í Tjörninni.

Greinir hjartagalla í börnum

María Dís Gunnarsdóttir, fjögurra ára stúlka, var fyrsta barnið sem var skoðað með Hirti, nýja hjartaómskoðunartækinu sem var tekið í formlega notkun á Barnaspítala Hringsins í gær.

Sópa og þvo götur og gangstéttar

„Við tökum eitt hverfi á dag. Þetta er fyrst grófhreinsað og svo komum við og þvoum yfir þetta á eftir, “ segir Hinrik Pálmason, starfsmaður hjá Hreinsitækni, sem ekur um á vatnsbíl og þvær götur borgarinnar þessa daga.

Tvær kvennanna komnar til síns heima

Tvær kvennanna þriggja sem var haldið föngnum í húsi í Cleveland í áratug sneru heim til sín í gær. Sú þriðja er sögð við góða líkamlega heilsu á spítala í borginni.

Staðfestu dóm yfir Berlusconi

Fjögurra ára fangelsisdómur yfir Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, var staðfestur í áfrýjunarrétti í gær. Dómurinn er vegna skattalagabrota.

Krefst 18 mánaða fangelsis yfir Lýði

Sérstakur saksóknari segir að sé einhvern tíma ástæða til að nýta refsiheimild hlutafélagalaga til fullnustu sé það í Exista-málinu gegn Lýði Guðmundssyni.

Gat enga mótspyrnu veitt við ofsafenginni morðárás

Stór eldhúshnífur sem ungur maður er talinn hafa notað til að bana nágranna sínum á Egilsstöðum fannst á vettvangi morðsins. Heima hjá honum fundust blóðug föt. Svo virðist sem nágranninn hafi hleypt honum inn.

Efnahagslífið verði tekið í gegn

Verkefnisstjórn Samráðsvettvangs um aukna hagsæld á Íslandi kynnti í gær mjög víðtækar tillögur sem stuðla eiga að hagvexti á Íslandi.

Útséð með kornrækt í Svarfaðardal í sumar

Trausti Þórisson, bóndi á Hofsá í Svarfaðardal, segir málið einfalt spurður um aðstæður í Svarfaðardal. „Það er glórulaust að stefna að því að sá korni hér. Miðað við hvernig staðan er í dag þá yrði það ekki fyrr en í júní í fyrsta lagi. Og það er einfaldlega of seint,“ segir Trausti.

Mengun við þolmörk á Grundartanga

Bændur beggja vegna Hvalfjarðar segja að gera þurfi miklu fleiri rannsóknir á brennisteins- og flúormengun vegna stóriðjunnar á Grundartanga en gerðar hafi verið, en nýleg úttekt Faxaflóahafna sé fyrsta skrefið.

Sjá næstu 50 fréttir