Gistiskýlið sprungið vegna ásóknar útigangsmanna María Lilja Þrastardóttir skrifar 10. maí 2013 07:00 Einhver fjöldi fólks þarf frá að hverfa dag hvern við gistiskýlið á Þingholtsstræti. Vandi erlendra útigangsmanna hefur aukist. Fréttablaðið/Vilhelm
Gistiskýlið í Þingholtsstræti er sprungið og getur ekki sinnt þörfum allra sem þangað sækja. Þetta staðfestir Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða. Biðröð myndast iðulega fyrir utan við opnun skýlisins, sem rúmar 20. Nær undantekningalaust þurfa einhverjir frá að hverfa. Reykvíkingar eru í forgangi vegna þess að nærsveitarfélög hafa ekki sýnt vilja til að koma að rekstrinum. „Unnið er að því að finna nýtt húsnæði en slíkt tekur eðlilega tíma, þar sem húsnæðið þarf að uppfylla ákveðin skilyrði,“ segir Sigtryggur. Aðfaranótt mánudags gistu sjö sjálfviljugir fangageymslur lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Þeir höfðu ekki fengið inni hjá borginni. Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar, yfirvarðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var hluti mannanna af erlendu bergi brotinn. Hann segir jafnframt að fjöldi mannanna sem í fangaklefann leituðu beri þess glöggt vitni að um vaxandi vanda sé að ræða á meðal erlendra útigangsmanna. Blaðamaður gaf sig á tal við fjóra menn sem höfðust við í miðbænum. Allir komu þeir frá Póllandi og höfðu verið á Íslandi í mislangan tíma. Aðeins einn talaði íslensku. Sá hafði komið hingað til að vinna við Kárahnjúka og hefur verið á götunni í nokkur ár. Hinir höfðu verið hér skemur, tveir bara í nokkrar vikur. Allir voru í leit að betra lífi og vinnu. Sá sem hingað hafði komið til að vinna við Kárahnjúkavirkjun sagðist hafa verið allt of lengi hér á landi, en enn væri fastur í viðjum alkóhólsins. Til skýringar lést hann taka sopa úr flösku. Mennirnir tveir sem höfðu verið hér skemur ætluðu til Akureyrar. Þeir höfðu heyrt að þar væri auðveldara að finna vinnu. „Þessi hópur hefur stækkað umtalsvert frá hruni, á því leikur enginn vafi,“ segir Sigtryggur spurður um vanda heimilislausra útlendinga. „Við reynum að sjálfsögðu að þjónusta þá líka.“
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira