Einherjar í víking í Hljómskálagarðinum 10. maí 2013 06:00 Hingað til hafa víkingahátíðir verið haldnar í Hafnarfirði, en ekki er talið að hátíð í Reykjavík myndi hafa áhrif á hana. fréttablaðið/ernir
Allt útlit er fyrir að ný víkingahátíð, Ingólfshátíð, verði haldin í Hljómskálagarðinum dagana 13. og 14. júlí í sumar. Nafnið vísar til landnámsmannsins Ingólfs Arnarsonar, en fyrsta hátíðin verður tileinkuð ljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni, sem lést úr hvítblæði í apríl. Borgarráð á eftir að taka málið fyrir en Höfuðborgarstofa, menningar- og ferðamálasvið og umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar hafa tekið vel í hugmyndina. Á hátíðinni verða sett upp sjö víkingatjöld og í þeim verður sýnt handverk og annað sem tilheyrir víkingum og landnámsöld. Ýmsar íþróttar verða sýndar, til að mynda kraftakeppni, glíma, bogfimi og eldsmíði. Sex sérþjálfaðir hestar munu sýna listir sínar ásamt þjálfurum sínum og ætlunin er að hafa veitingasölu í garðinum. Hátíðin verður öllum opin. „Við höfum staðfasta trú á því að hátíð þessi sé tækifæri fyrir Reykjavík og ekki síst fyrir ferðaþjónustuna í landnámi Ingólfs Arnarsonar. Sá víkingur gaf í raun borginni nafn og skjaldarmerki borgarinnar er hannað út frá landnámi hans,“ segir í tillögu víkingafélagsins Einherja um málið. Félagar í Einherja hafa sótt víkingahátíðir í öðrum löndum undanfarin ár og kynnt sér hvernig þessum málum er háttað þar. Þá segja þeir að á hátíðina í Reykjavík hafi boðað komu sína ýmsir erlendir víkingar, með mikla reynslu í uppsetningu víkingahátíða.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira