Fleiri fréttir

Íslensk börn eiga auðvelt með að leita til feðra sinna

Íslenskir feður eru í öðru sæti þegar borið er saman hversu auðvelt börn eiga með að leita til feðra sinna með hvers lags umleitanir. Hvergi er minni munur á feðrum og mæðrum og á Íslandi í þessu samhengi. Þetta sýnir ný skýrsla UNICEF, Velferð barna í efnameiri ríkjum. Einungis börn í Hollandi eiga auðveldara með að leita til feðra sinna en á Íslandi. Á Íslandi segjast tæplega 90% barna eiga auðvelt með að ræða við móður sína og tæplega 80% segja það sama um föður sinn.

Foreldrar samkynhneigðra ekki boðað Jóhönnu á fund

Hvorki forsætisráðuneytinu né sendiráði Íslands í Kína hefur borist erindi um að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra eigi fund með Samtökum samkynhneigðra foreldra í opinberri heimsókn hennar sem hefst í Peking á mánudag. Fréttavefurinn Pink News segir að foreldrasamtökin hafi mikinn áhuga á að hitta Jóhönnu, fyrsta opinberlega samkynhneigða forsætisráðherrann í heiminum.

Árni Páll ítrekar áskorun sína til Sigmundar

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, ítrekar áskorun sína til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, um kappræður þeirra í milli. Sigmundur Davíð og Framsóknarmenn hafa lagt fram hugmyndir um niðurfærslu skulda heimila á kostnað kröfuhafa föllnu bankanna.

Rúmlega fjögur þúsund hafa kosið í íbúakosningum í Reykjavík

Nú þegar rúmur sólarhringur er þar til rafrænum íbúakosningum í Reykjavík lýkur hafa rúmlega fjögur þúsund manns kosið samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. Íbúakosningarnar hafa staðið yfir frá 4. apríl en kosningakerfið verður opið fram yfir miðnætti á morgun, fimmtudaginn 11. apríl.

"Þeir eru að lítilsvirða réttinn“

Verjendur í al-Thani málinu sem sögðu sig frá málinu í fyrradag gætu átt yfir höfði sér réttarfarssekt mæti þeir ekki í aðalmeðferð á morgun samkvæmt dagskrá dómsins. Fjallað er um málið í 223 grein sakamálalaga. Ákveða má sekt á hendur ákæranda, verjanda eða réttargæslumanni, meðal annars fyrir, að valda af ásetningi óþörfum drætti á máli.

Fríða Björk nýr rektor Listaháskólans

Fríða Björk Ingvarsdóttir hefur verið ráðin nýr rektor Listaháskóla Íslands. Hún tekur við embættinu 1. ágúst næstkomandi af Hjálmari H. Ragnarssyni sem hefur verið rektor frá stofnun og leitt fimmtán ára uppbyggingarferli æðri listmenntunar undir merkjum LHÍ.

Stjórnarskipti eru í kortunum

Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn fengju samtals 87 þingsæti og hreinan meirihluta á norska þinginu ef gengið yrði til kosninga nú. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir TV 2.

Stakk fjórtán með hnífi

Rúmlega tvítugur maður stakk fjórtán manns með hnífi í háskóla nálægt Houston í Texas í gærkvöldi.

Íbúum fjölgaði um 0,7% í fyrra

Íbúar landsins voru 321.857 í byrjun ársins, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Fjölgunin frá fyrra ári nemur 0,7 prósentum, eða 2.282 einstaklingum.

Tollamörk á verðmæti stakra hluta tekin út

Tollfrelsismörk eru ekki lengur miðuð við sérstakt hámark á verðmæti staks hlutar sem ferðamenn kaupa erlendis og taka með sér heim. Þetta var staðfest með breytingu á tollalögum í síðasta mánuði.

Vekur ótta að maðurinn sé laus

Rúmlega áttræðum bónda af Snæfellsnesi, sem grunaður er um að hafa níðst kynferðislega á þroskaskertri stjúpdóttur sinni í fjóra áratugi, var sleppt úr gæsluvarðhaldi í gær.

Sprengja út prófatímann hjá Háskólanum

„Auðvitað hefði verið æskilegt að þetta væri ekki beint í prófatíma,“ segir Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, um áhrif fyrirhugaðra sprenginga í grunni Húss íslenskra fræða.

Tryggja þarf snurðulaust samstarf við heri

Tryggja þarf að borgaralegar stofnanir hér á landi geti unnið snurðulaust með erlendum herjum að björgunarstörfum eða til að takast á við náttúruhamfarir þar sem slík mál eru almennt á höndum herja nágrannaríkjanna.

Arnarpar reynir varp að nýju

Skemmdarverk á arnarhreiðri í eyju á sunnanverðum Breiðafirði virðist ekki ætla að hindra arnarparið í að reyna varp aftur á sama stað. Það hefur nú byggt upp nýjan hreiðurlaup. Vegna skemmdarverksins verður hreiðrið vaktað úr landi og af sjó, segir í frétt Náttúrustofu Vesturlands.

Húsavíkurprestur á fund biskups

„Ég er búin að boða fund á morgun [í dag] á Húsavík með sóknarnefndinni og sóknarprestinum þar,“ segir Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, um mál Guðnýjar Jónu Kristjánsdóttur, sem sagði sögu sína af nauðgun í Kastljósi.

Boða útvarpsstjóra til sín vegna leifturljósa

"Þetta er eins og að vera með sterk, blikkandi diskóljós í andlitinu nánast allan sólarhringinn," segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, sem vill útvarpsstjóra á fund vegna bilaðra öryggisljósa í langbylgjumastrinu á Eiðum.

Meira brottfall og fleiri þunganir hér

Fleiri unglingsstúlkur verða þungaðar hér á landi en í flestum öðrum Vestur-Evrópuríkjum og brottfall unglinga úr skólum er einnig hátt. Ísland mælist samt í þriðja sæti þegar kemur að velferð barna, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF.

Friðlýstar minjar að tapast víða um land

Fornminjar eru að tapast víða um land án þess að þær hafi verið rannsakaðar. Uppblástur og sjávarrof eru helstu skaðvaldarnir. Við bæinn Akbraut í Rangárvallasýslu er kirkjugarður frá 13. öld að tapast endanlega vegna uppblásturs.

Mál Gunnars gegn Krosskonum þingfest á morgun

Gunnar Þorsteinsson, oftast kenndur við Krossinn, hefur stefnt talskonum Krosskvenna þeim Ástu Knútsdóttur og Sesselju Engilráð Barðdal vegna umfjöllunar um ásakanir kvennana um kynferðisofbeldi.

Beinagrind mammúts fannst í Mexíkóborg

Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa uppgötvað beinagrind mammúts sem hneig niður og drapst fyrir tugþúsundum ára þar sem íbúðahverfið Milpa Alta í Mexíkóborg stendur nú.

Lumar þú á forngrip? Þjóðminjasafnið vill skoða hann

Það verður haldinn greiningadagur í Þjóðminjasafninu næsta sunnudag, 14. apríl, frá klukkan 14-16. Þá er almenningi boðið að koma með eigin gripi í greiningu til sérfræðinga ÞJóðminjasafnsins. Safnið leggur sérstaka áherslu á silfurgripi að þessu sinni.

Framsókn styrkir stöðu sína

Enn styrkir Framsóknarflokkurinn stöðu sína, samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.

Meðallaunin voru 400 þúsund

Laun fullvinnandi launamanna á íslenskum vinnumarkaði voru 402 þúsund krónur að meðaltali í fyrra. Algengast var að laun væru á bilinu 300-350 þúsund krónur og voru 18% launamanna með laun á því bili. Þá voru um 65% launamanna með laun undir 400 þúsund krónum á mánuði. Laun fullvinnandi karla voru 436 þúsund krónur að meðaltali á mánuði en kvenna 367 þúsund krónur.

Játaði morð á Reddit

Notendur samskiptasíðunnar Reddit hafa leitað til bandarísku Alríkislögreglunnar eftir að kollegi þeirra játaði á sig morð í spjallþræði þar sem notendur voru hvattir til að játa syndir sínar.

Velferð barna einna mest á Íslandi

Óvíða mælist velferð barna meiri en hér á landi. Samkvæmt alþjóðlegri skýrslu UNICEF sem kemur út í dag er Ísland í þriðja sæti hvað velferð barna varðar, á eftir Hollandi og Noregi. Skýrslan er hluti af Report Card-rannsóknarritröð UNICEF sem mælir velferð barna í efnameiri ríkjum heims.

Fjölgar í flota WOW Air

Flugfélagið WOW air er að taka í notkun tvær nýlegar Airbus farþegaþotur, sem leysa eldri þotur af hólmi.

Skaut leikfélaga sinn

Fjögurra ára gamall piltur skaut og drap sex ára gamlan leikfélaga sinn í Toms River í New Jersey í nótt.

Reyndi að stinga 14 til bana

Nemendur í Texas yfirbugðu nítján ára gamlan mann sem særði fjórtán manns í háskóla nálægt Houston í nótt.

Hætta skapaðist á Hellisheiði

Hætta skapaðist á Hellisheiði seint í gærkvöldi, þegar vörubretti fóru að falla af dráttarvagni flutningabíls og dreifast um veginn.

Sjá næstu 50 fréttir