Meira brottfall og fleiri þunganir hér Þórunn Elísabet Bogadóttir skrifar 10. apríl 2013 12:00 Mjög fáir íslenskir unglingar undir sextán ára reykja eða drekka. Nordicphotos/Getty
Samfélagsmál Fleiri unglingsstúlkur verða þungaðar hér á landi en í flestum öðrum Vestur-Evrópuríkjum. Aðeins verða fleiri stúlkur þungaðar í Bretlandi og á Írlandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um velferð barna í efnameiri ríkjum heimsins. Skýrslan verður kynnt í dag. Einnig kemur fram í skýrslunni að hlutfallslega færri ungmenni á aldrinum 15 til 19 ára stunda nám á framhaldsskólastigi hér á landi en í nágrannaríkjunum. Um 85 prósent ungmenna eru í framhaldsskóla hér á landi en flest ungmenni eru í framhaldsmenntun í Belgíu, um 94 prósent. Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri hjá UNICEF á Íslandi, segir bæði þunganirnar og brottfallið dæmi um það sem skoða þurfi betur hér á landi. Þegar litið er á heildina er Ísland í þriðja sæti yfir þau lönd sem best standa sig í að tryggja velferð barna. Holland er í fyrsta sæti og Noregur í öðru sæti. Íslensk börn eru þau næstánægðustu með líf sitt. Tvö prósent þeirra líða skort þegar kemur að efnislegum þáttum eins og sérherbergi, tölvueign á heimili og ferðalögum, en 6,5 prósent teljast hlutfallslega fátæk. Börn sem lenda undir fátæktarmörkum hér á landi virðast lenda lengra undir mörkunum en í flestum nágrannaríkjum okkar. UNICEF telur að það þurfi einnig að rannsaka nánar. „Skýrslan sýnir að drykkja unglinga og reykingar eru mun minni hér á landi en annars staðar og mikill árangur hefur náðst á þessum sviðum,“ segir Bergsteinn. Í þeim 29 ríkjum sem tóku þátt í rannsókninni höfðu fæst börn, frá 11 til 16 ára, reykt á Íslandi, um þrjú prósent, og um sex prósent þeirra höfðu orðið drukkin. Aðeins í Bandaríkjunum drukku færri börn. Hins vegar höfðu um sjö prósent íslenskra barna neytt kannabisefna. „Segja má að skýrslan sýni hversu mikilvægt það er að fylgjast grannt með velferð barna. Börn eru viðkvæmasti þjóðfélagshópurinn,“ segir Bergsteinn. Velferð allra barna sé fjárfesting til framtíðar sem samfélagið hafi ekki efni á að vanrækja.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira