Fleiri fréttir

Góð loðnuveiði á Breiðafirði

All góð loðnuveiði var á Breiðafirði í gær úr svonefndri vestangöngu og er nú lítið orðið eftir óveitt af heildarkvótanum.

Láta pólitík eiga sig í skólanum

"Þetta er mjög óvenjulegt að tveir í svona litlum bekk eigi möguleika á að komast inn á þing hvor fyrir sinn flokkinn,“ segir Karl Garðarsson, laganemi við Háskólann í Reykjavík og frambjóðandi fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Ásakanir um efnavopnaárás

Stjórnarherinn og uppreisnarmenn í Sýrlandi skiptust í gær á ásökunum um efnavopnaárás, sem sögð var hafa átt sér stað í þorpi norðan til í landinu, skammt frá borginni Aleppo.

Uppreisnarmenn minna á sig

Að minnsta kosti 65 manns létu lífið á þriðjudagskvöld af völdum sprengjuárása í Írak, daginn áður en rétt tíu ár voru liðin frá því að innrás Bandaríkjamanna og fylgismanna þeirra hófst.

Þingið felldi innistæðuskattinn

Frumvarp um skatt á bankainnistæður var fellt í atkvæðagreiðslu á Kýpurþingi síðdegis í gær. Alls voru 36 þingmenn á móti, nítján sátu hjá en enginn studdi frumvarpið.

Erfitt að fá viðræður við ESB teknar upp

Verði aðildarviðræðum við Evrópusambandið slitið gæti orðið erfitt að fá viðræðurnar teknar upp aftur síðar. Þetta er skoðun Carls Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Hann segir mikilvægi Íslands mikið í tilliti til norðurslóðamála.

Segjast knúnir í þrot vegna ólöglegra lána

Unnið er að bótakröfum á hendur bönkum vegna krafna þeirra í bú gjaldþrota fyrirtækja sem byggja á ólögmætum útreikningi gengisbundinna lána. Lögmaður segir lífeyrissjóði og stærri kröfuhafa þurfa að skoða rétt sinn vegna þessa.

„Blekktu samfélagið í heild“

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og fimm öðrum fyrrverandi starfsmönnum bankans fyrir stórfellda markaðsmisnotkun og umboðssvik framin árið 2007 og 2008. Ákæran er sú fyrsta í hrunmáli tengdu Landsbankanum.

Vörur verði merktar Inspired by Iceland

Alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki telur að einfalda þurfi stjórnsýslu ferðaþjónustunnar. Setja þurfi skýr þolmörk varðandi fjölda ferðamanna. Vill sameina vörumerki fyrir Íslandskynningu í Inspired by Iceland og merkja jafnvel íslenskar vörur með því.

Götur í borginni rykbundnar vegna svifryksmengunnar

Vegna mikillar svifryksmengunar í borginni í gær og horfum á áframhaldandi þurrki, greip borgin til þess ráðs að rykbinda götur með saltpækli og hófst aðgerðin klukkan þrjú í nótt.

Víða ófært eftir óveðrið í nótt

Óveður var víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Norðausturlandi í gærkvöldi og fram á nótt og eru vegir víða þungfærir eða alveg ófærir.

Litlu munaði að nokkrir bílar lentu í snjóflóði í Ólafsfjarðarmúla

Minnstu munaði að nokkrir bílar lentu í snjóflóði, sem féll á þjóðveginn um Ólafsfjarðarmúla, um klukkan hálf átta í gærkvöldi, og ók einn bíll inn í flóðið í þann mund sem það var að stöðvast. Hann festist og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn við að losa hann.

Fullkomin óvissa á Kýpur, neyðarfundur boðaður í dag

Fullkomin óvissa ríkir í málefnum Kýpur eftir að þing eyjarinnar felldi í gærkvöldi samkomulag um neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Forseti landsins hefur boðað leiðtoga þingflokkanna til neyðarfundar í dag.

Ný stjórn mynduð á Grænlandi

Ný stjórn hefur verið mynduð á Grænlandi undir forystu Siumut flokksins. Aleqa Hammond formaður flokksins verður næsti formaður grænlensku heimastjórnarinnar.

Ákall um að útrýma ofbeldi

"Við trúum því að hægt sé að byggja upp samfélag virðingar og jafnréttis, þar sem ofbeldi fær ekki þrifist,“ segir í bæklingi sem borinn var út í hús landsmanna í gær um vitundarvakningu ríkisins um kynferðisofbeldi gegn börnum.

Vill kjósa um ESB samhliða alþingiskosningunum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, vill að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, samhliða alþingiskosningunum 27. apríl næstkomandi.

Bein leið milli Íslands og Kína um Norðurskautið

Ísland og Kína verða nágrannaríki á næstu fimm til tíu árum með opnun siglingaleiðarinnar yfir Norðurskautið, segir kínverskur sérfræðingur í alþjóðasamskiptum. Hann segir bæði Íslendinga og Kínverja hagnast á tækifærunum. Utanríkisráðherra Svía, Carl Bildt, sem situr í forsæti Norðurskautsráðsins, var meðal gesta á alþjóðlegri ráðstefnu í Reykjavík í dag undir yfirskriftinni Áskoranir og tækifæri á Norðurslóðum. Einna mesta athygli vakti erindi frá Kína en Dr. Jiang Ye, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Sjanghæ, lýsti viðhorfum Kínverja til málefna heimskautsins. Hann segir siglingu kínverska ísbrjótsins Snædrekans milli Sjanghæ og Reykjavíkur í fyrra marka tímamót og spáir því að eftir fimm til tíu ár verði skipafélög farin að nýta þessa nýju siglingaleið í ábataskyni. "Samband Kínverja og Íslendinga er mjög gott og þegar þessi siglingaleið opnast verðum við nágrannar;" segir Jiang Ye í samtali við Stöð 2. "Það verður bein leið frá Shanghai til Reykjavíkur og frá Reykjavík til Shanghai." Hann telur þessa tengingu bjóða upp á samstarf þjóðanna á mörgum sviðum, eins og viðskipta og siglinga. "Og síðast en ekki síst munum við hafa samvinnu á viðskiptasviðinu. Báðir aðilar munu græða, þetta verður hagur beggja landanna," segir Jiang Ye.

Snjóflóð á Ólafsfjarðarvegi

Lögreglan á Akureyri hefur lokað Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar vegna snjóflóðs sem þar féll í kvöld. Einnig hefur vegagerð hætt mokstri vegna veður á Svalbarðsströnd og í Vikurskarði. Að sögn lögreglu slasaðist enginn þegar flóðið féll en umferð var um veginn. Búist er við að vegurinn verður lokaður í kvöld og í nótt. Lögreglan er enn á vettvangi.

Þurfti að borga 75 þúsund í tryggingu til að fá hjólastól

Kona með taugasjúkdóm gagnrýnir að hún hafi þurft að gangast í 75 þúsund króna ábyrgð til að fá lánaðan hjólastól í Kringlunni. Ástæðan fyrir tryggingagjaldinu er að hjólastólum í Kringlunni hefur ítrekað verið stolið.

Þrír starfsmenn Arion í leyfi vegna ákæra

Þrír af þeim níu, sem sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur vegna Kaupþingsmálsins, starfa enn hjá Arion banka. Þeir hafa verið sendir í leyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Einn þessara manna er framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka. Allir þessi starfsmenn hafa farið í leyfi frá störfum sínum fyrir bankann.

Árásaralda í Bagdad

Að minnsta kosti 56 féllu og hundruðir særðust í röð sprengjuárása í Bagdad í dag, en tíu ár eru liðin frá innrás bandamanna í landið.

„Enginn búinn að leysa þetta enn“

Alþjóðlegi hamingjudagurinn verður haldinn í fyrsta sinn á morgun. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur fundið hamingjuna en kann ekki uppskriftina.

Meirihluti yfir hámarkshraða!

Hvað segir það okkur, er meirihluti Íslendinga brotamenn? Hvað ef 58% ökumanna aka yfir leyfilegum hámarkshraða?

Vilja rannsóknarnefnd sem rannsakar læknamistök

Sérstök rannsóknarnefnd á heilbrigðissviði verður stofnuð, verði frumvarp nokkurra þingmanna að lögum. Rannsóknarnefndin mun hafa það hlutverk að rannsaka óhappatilvik, mistök, vanrækslu eða önnur atvik sem verða við veitingu heilbrigðisþjónustu og hafa valdið sjúklingum tjóni eða kunna að hafa valdið sjúklingum tjóni. Samkvæmt hugmyndum um nefndina er gert ráð fyrir því að kvörtun verði borin fram við rannsóknarnefnd. Séu meira en tíu ár ler gert ráð fyrir að kvörtun verði vísað frá.

Handvalið frelsi og Hitlersæskan

Heimdallur stóð fyrir fundi í gær þar sem staða femínisma á Íslandi var rædd. Ljósmynd frá fundinum hefur vakið kátínu meðal netverja, en framsögumennirnir fjórir eru ánægðir með fundinn.

Leita glæstra fornbíla

Er dýrgripur inni í skúr eða skemmu hjá þér? Sendu þá upplýsingar um hann á fornbilar@verold.is

Ásakanir um skemmdarverk ganga á víxl

Ásakanir um skemmdarverk í stjórnarskrármálinu gengu á víxl milli þingmanna á Alþingi í dag og kallaði Þór Saari þingmaður hreyfingarinnar Árna Pál Árnason afturgenginn Davíð Oddsson fyrir að hafa lagt fram breytingartillögu ásamt formönnum Vinstri grænna og Bjartar framtíðar.

Framleiða 2.700 Audi bíla á dag

Unnið er allan sólarhringinn á þrískiptum vöktum -Til höfuðstöðvanna í Ingolstadt koma 250 kaupendur á dag að sækja nýja bíla sína.

Vöruflutningabíll valt á Reykjanesbraut

Vöruflutningabíll valt á Reykjanesbraut, milli Straumsvíkur og Hvaleyrarholts núna á tíunda tímanum. Ekki hafa borist fréttir af því hvort einhver hafi slasast né heldur er vitað hvað olli því að bíllinn valt.

Knár þó smár sé

Er framúrskarandi akstursbíll sem býðst með mörgum vélargerðum. Hefur verið framleiddur í 15 milljón eintökum.

Sjá næstu 50 fréttir