Ásakanir um skemmdarverk ganga á víxl Karen Kjartansdóttir skrifar 19. mars 2013 12:18 Magnús Orri Schram þingmaður Samfylkingarinnar, segir ekki hægt að samþykkja nýja stjórnarskrá sem breytingatillögu.
Ásakanir um skemmdarverk í stjórnarskrármálinu gengu á víxl milli þingmanna á Alþingi í dag og kallaði Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar Árna Pál Árnason afturgenginn Davíð Oddsson fyrir að hafa lagt fram breytingartillögu ásamt formönnum Vinstri grænna og Bjartar framtíðar. Í dag eru 40 dagskrármál á Alþingi, í óundirbúnum fyrirspurnum mátti heyra að stjórnarskrármálið nýtur helst athygli margra þingmanna en um það ríkir engin sátt. Sé stuttlega farið yfir sögu þá lögðu formennirnir þrír, þau Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, fram frumvarp til breytinga á stjórnskipunarlögum. Þau leggja til að á þessu þingi verði samþykkt ákvæði um hvernig stjórnarskrá skuli breytt. Í gær lögðu svo Oddný Harðardóttir og Skúli Helgason þingmenn Samfylkingarinnar og Álfheiður Ingadóttir og Árni Þór Sigurðsson, þingmenn Vinstri grænna, fram nýja breytingartillögu við frumvarp formannanna þriggja. Sú tillaga felur í sér að auðlindarákvæði stjórnarskrárinnar verði breytt áður en þingi lýkur. Og svo hefur Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, lagt fram breytingartillögu við frumvarp formannanna þriggja en breytingartillaga hennar veldur því að greiða þarf atkvæði um frumvarp um stjórnarskránna í heild sinni, eins og það kom frá Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Árni Páll Árnason gagnrýndi frumvarp hennar í fréttum okkar í gær og sagði að með þessu hefði málamiðlunartillga sem ætlað var að skapa sátt einnig verið töluð í kaf. Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, gagnrýndi breytingartillögu Margrétar Tryggvadóttur og sagði ómögulegt að samþykkja nýja stjórnarskrá í formi breytingartillögu án lögskýringa. "Það er mín skoðun að breytingartillaga háttvirts þingmanns Margrétar Tryggvadóttur hafi ekki gert neitt annað en að spilla því ferli sem var verið að reyna ná sátt um. Það er að tryggja áframhaldandi vinnu við stjórnarskrá Íslands. Háttvirtur þingmaður, Margrét Tryggvadóttir, getur ekki ætlast til þess að háttvirtur þingheimur samþykki stjórnarskrá Íslands sem breytignartillögu án greinargerðar, án allra lögskýringa. Það er í raun og veru óvirðing við stjórnarskrá Íslands að fara fram með þeim hætti." Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, sagði þingstörf í uppnámi og gaf lítið fyrir tillögu formannanna þriggja sem hann kallaði svokallaða sáttartillögu. „Við erum hér að ræða eitthvað sem menn kalla sáttartillögu, sem engin sátt ríkir um og er einfaldlega krafa formanns Samfylkingarinnar, Árna Páls Árnasonar um lúkningu á mikilvægasta máli kjörtímabilsins, máli sem yfirgnæfandi meirihluti í þjóðaratkvæðagreiðslu vill klára en lítill hópur fólks hér á þingi er búinn að stöðva." „Þetta er sérkennilega staða svo ekki sé meira sagt. Það er furðulegt að horfa upp á þennan stjórnarmeirihluta hvernig hann hefur lúffað algjörlega fyrir þeirri kröfu formanns Samfylkingarinnar. Það er engu líkara en hér sé í þinginu afturgenginn Davíð Oddsson sem formaður Samfylkingarinnar," sagði Þór.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira