Flokkar ná ekki saman um þak á auglýsingar Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 20. mars 2013 07:00
Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki komið sér saman um að setja hámark á kostnað við auglýsingar og kynningu í aðdraganda kosninganna. Einn fundur hefur verið haldinn um málið, en ekki hefur verið boðað til annars fundar. Kosið verður eftir um sex vikur, eða 27. apríl. Björt framtíð lagði til á fundinum að þakið yrði lækkað úr fjórtán í þrjár milljónir. Aðrir flokkar tóku ekki vel í það. „Ég lagði til að þakið yrði lækkað í þrjár milljónir til að jafna leikinn og hvetja til markvissari kosningabaráttu," segir Atli Fannar Bjarkason, framkvæmdastjóri flokksins. Samfylkingin boðaði fulltrúa flokkanna á fund um málið fyrir rúmri viku. Sigrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri segir flokkinn jákvæðan gagnvart slíku þaki en veit ekki hvort það kemst á. Aldrei sé þó of seint að ná saman. Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir flokk sinn opinn fyrir samkomulagi af þessu tagi. Það verði hins vegar að gerast fljótlega ef það eigi að ná tilgangi sínum, enda skammt til kosninga. Auður Lilja Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri Vinstri grænna, er ekki bjartsýn á samkomulag. „Mér heyrðist að það væri ekki grundvöllur fyrir samkomulagi," segir hún og vísar í tillöguna um lækkun í þrjár milljónir. „Ég væri mjög jákvæð gagnvart því að hafa þetta eins og í síðustu kosningum." Hrólfur Ölvisson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, segir eðlilegt að gera slíkt samkomulag. Það þurfi þó að gerast sem fyrst. „Það er einn aðili sem séð hefur um að kalla okkur saman," segir hann og vísar til Samfylkingarinnar. „Það hvílir þó ekki meiri ábyrgð á honum en okkur hinum."
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira