Fleiri fréttir

Fjórða kynslóð Honda CR-V

Nýr Honda CR-V verður kynntur um helgina hjá Bernhard í Vatnagörðum og hjá umboðsaðilum. Þetta er fjórða kynslóð CR-V, sem hefur jafnframt verið einn af söluhæstu fjórhjóladrifsbílum landsins í mörg ár. Nýi bíllinn var hannaður sérstaklega með Evrópumarkað í huga og ýmsar athyglisverðar breytingar hafa verið gerðar. Það hefur líklega tekist með miklum ágætum því nýr CR-V hefur verið hlaðinn verðlaunum og var meðal annars tilnefndur á dögunum sem bíll ársins í Evrópu. Aðrir titlar sem CR- V hefur þegar hampað eru Besti fjölskyldubíll ársins að mati Kelley Blue Book, hann er á topp-tíu lista sama aðila yfir bíla með hæsta endursöluvirðið og hlaut fullt hús stiga hjá National Highway Transportation Safety Administration fyrir öryggi. Honda CR-V er mest seldi bíllinn í sínum flokki í Bandaríkjunum og var valinn besti fjórhjóladrifni bíll ársins 2012 af tímaritinu Total 4x4 Magazine. Í umsögn blaðsins var Honda CR-V hælt sérstaklega fyrir að vera betur hljóðeinangraður en aðrir bílar í sambærilegum flokki og einnig fyrir sérstaklega gott notkunarrými. Umhverfisvænir þættir Honda CR-V hafa fengið enn meira vægi. Útblástur koltvísýrings hefur verið minnkaður og eldsneytisnýting bætt. Nýr CR-V er rúmbetri en fyrirrennari hans. Ný hönnun auðveldar umgengni, hægt er að fella saman aftursæti á einfaldan hátt og farangursrými er 148 lítrum rúmbetra en í eldri gerð. Aukið hefur verið við hljóðeinangrun í gólfi, í afturhurðum og í geymsluhólfum undir sætum og með því tekist að lækka vélar- og veghljóð um þrjú desibil. Bogadregnir hliðarspeglar auka mjög sjónsvið ökumannsins og LED-dagljós eru nú bæði að framan og aftan sem eykur þægindi og öryggi um leið. Frá árinu 1995 hafa meira en fimm milljón CR-V bíla verði seldir um allan heim. Þess má geta að 97% þeirra CR-V bíla sem seldir hafa verið frá komu hans fyrst, árið 1997, eru ennþá í notkun hér á landi. Honda CR-V er frumsýndur hjá Bernhard í Vatnagörðum 24 um helgina. Opið er laugardag á milli kl. 10:00 og 16:00 og sunnudag á milli kl. 13:00 og 16:00. Bíllinn er einnig frumsýndur hjá umboðsmönnum um allt land.

Reyna að koma í veg fyrir umhverfisslys

Fulltrúar frá Umhverfisstofnun og Hafrannsóknastofnun fara nú um Kolgrafarfjörðinn á Snæfellsnesi, til að kanna möguleika á að koma þar í veg fyrir umhverfisslys, í kjölfar síldardauðans þar nýverið.

Stefnir ríkinu vegna auðlegðarskatts

Karlmaður hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna auðlegðarskatts sem á hann var lagður. Hann fullyrðir að innheimta skattsins sé ólögleg og krefst þess að ríkissjóður greiði sér um 1590 þúsund krónur til baka.

Kennari í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa keypt vændi af 14 ára pilti

Menntaskólakennari um sextugt var í byrjun árs í Héraðsdómi Vesturlands dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa keypt vændi af fjórtán ára gömlum pilti. Dómur var kveðinn upp í málinu á síðasta ári en Hæstiréttur ómerkti hann og vísaði málinu aftur heim í hérað. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa kynferðismök við piltinn í tvö aðgreind skipti árið 2011 og greitt honum fyrir. Auk fangelsisvistarinnar þarf kennarinn að greiða piltinum 600 þúsund krónur í miskabætur.

Jeep aldrei selst betur

Allar bílgerðir Chrysler hafa átt velgengi að fagna frá því Chrysler var bjargað frá gjaldþroti árið 2009. Vöxtur í sölu fyrirtækisins nam 21% á liðnu ári, eitthvað sem fáir aðrir bílaframleiðendur léku eftir. Eitt af undirmerkjum Chrysler, Jeep, gekk fádæma vel og seldi fleiri bíla en nokkurt annað ár, eða 701.626 bíla. Fyrra metið var frá árinu 1999, 675.494 bílar. Mest seldi bíll Jeep í fyrra var Jeep Grand Cherokee, sem talsvert er til af hér á landi af ýmsum árgerðum þó. Hann seldist í 223.196 eintökum og í öðru sæti var Jeep Wrangler með 194.142 eintök seld. Sala Jeep í Kína óx um 107% frá árinu 2011. Búist er við áframhaldandi velgengni Jeep á þessu ári og verða kynntar nýjar bílgerðir sem aukið geta söluna enn.

Kyrkislanga á flugvél barðist fyrir lífi sínu í háloftunum

Einstakar myndir náðust af því þegar kyrkislanga festist undir vængi á þotu Qantas flugfélagsins í gær. Þar barðist hún fyrir lífi sínu í háloftunum í tæpa tvo klukkutíma á meðan þotan flaug á milli áströlsku bæjanna Cairns og Port Moresby.

Vilborg búin að ganga 1000 kílómetra

Vilborg Arna Gissurardóttir er búin að ganga ríflega 1000 kílómetra á leið sinni um Suðurpólinn. Hún náði þeim áfanga í gær að komast inná síðustu breiddargráðuna en aðstæður til göngu eru erfiðar, nýsnævi, mikill vindur og lítið skyggni. Þá frýs allt sem frosið getur nema það sem er í hitabrúsanum.

Karzai hittir Obama í Hvíta húsinu í dag

Hamid Karzai forseti Afganistan er staddur í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. Hann mun hitta Barack Obama Bandaríkjaforseta á hálftíma fundi þeirra í Hvíta húsinu í dag.

Sjöunda kynslóð Golf

Það eru ekki margir bílarnir sem selst hafa í 35 milljónum eintaka, en það á þó við um Volkswagen Golf. Hann kom fyrst á markað árið 1974 og á því tæplega 40 ára sögu. Á morgun má berja sjöundu kynslóð Golf augum á frumsýningu bílsins hjá Heklu. Fyrsta kynslóð Golf var í framleiðslu frá 1974 til 1983, þegar önnur kynslóðin sá dagsins ljós, aðeins lengri, breiðari, jafnt að utan sem innan og með lengra hjólhaf. Til gamans má geta þess að þessi fyrsta kynslóð Golf var framleidd áfram lítið breytt í Suður-Afríku allt fram til ársins 2009. Næstu kynslóðir Golf tóku áfram breytingum, þriðja kynslóðin kom fram 1991 og þá með túrbódísilvél með beinni innsprautun eldsneytis, TDI, og einnig með nýrri V-6 vél, 2,8 lítra VR6. Með þriðju kynslóðinni fóru línurnar í útlitinu að mýkjast og þessi gerð Golf var valinn "Bíll ársins 1992 í Evrópu“. Með fjórðu kynslóðinni sem kom fram á sjónarsviðið 1997 varð Golf enn rennilegri, og fimmta kynslóðin sem var frumsýnd 2003 var mjög svipuð í útliti. GTI-gerðin kom með 200 hestafla útgáfu af tveggja lítra TFSI-vélinni. Sjötta kynslóðin sem kom á markað 2008 var að mestu byggð á sama grunni og sú næsta á undan, en með töluvert breyttu útliti, enn straumlínulagaðri, sem hjálpaði til við að draga úr eldsneytiseyðslu og einnig hljóðlátari. Meira var lagt upp úr innréttingu og notendavænleika. Sjöunda kynslóð Golf er að sögn hönnuða VW betri en nokkru sinni fyrr. Bíllinn er aflmeiri og sparneytnari en áður, hraðskreiðari, öruggari og léttari. Nýi Golfinn er 100 kílóum léttari en fyrirrennarinn. Hann er líka verulega sparneytnari, því hann eyðir allt að 23% minna eldsneyti, sem auðvitað fer eftir vélargerð. Sjöunda kynslóð Golf er einnig væntanleg með BlueMotion-tækni og í þeirri útgáfu verður eyðslan aðeins 3,2 lítrar á hundraðið og sendir bíllinn aðeins 85 grömm af CO2 út í andrúmsloftið á hvern ekinn kílómetra. Fótarými í aftursæti hefur verið aukið og farangursrými er 30 lítrum stærra. Hvað öryggið varðar þá er í bílnum hemlakerfi með árekstarvörn, skriðstillir sem aðlagar sig að akstursaðstæðum og heldur jafnri fjarlægð frá næsta bíl og eykur eða minnkar hraðann í samræmi við flæði umferðarinnar. Hann er einnig með skynjara að framan fyrir neyðarhemlun, "akreinaaðstoð“ og "þreytuskynjun“, sem fylgist með aksturslagi ökumanns og gefur viðvörunarhljóð ef vart verður við ónákvæm viðbrögð vegna þreytu í akstri. Volkswagen Golf verður frumsýndur hjá Heklu á laugardaginn milli kl. 12 og 16, sem og hjá umboðsmönnum um landið.

Lét íhaldsflokkana borga dýran fatnað

Ákæran á hendur Páli Heimissyni, fyrrverandi starfsmanni í Valhöll, virðist leiða í ljós að hann hafi ferðast um heim allan og lifað hátt í tvö ár á kostnað norrænu íhaldsflokkanna. Hann tók tólf milljónir í reiðufé út úr bönkum á 26 mánuðum.

Þrjár kúrdískar konur fundust myrtar í París

Hundruð Kúrda í París söfnuðust í gær saman fyrir utan miðstöð Kúrda þar sem þrjár konur fundust myrtar í fyrrinótt. Innanríkisráðherra Frakka segir konurnar hafa verið teknar af lífi. Daginn áður höfðu Tyrkir gert friðarsamning við Kúrda.

Þúsundir sýna Hugo Chavez stuðning

Þúsundir stuðningsmanna Hugos Chavez, forseta Venesúela, komu saman fyrir utan forsetahöllina í Caracas í gær til að sýna stuðning sinn við forsetann.

Segja skrif kynda undir andúð

Ágúst og Lýður Guðmundssynir, Bakkabræður, hafa stefnt Inga Frey Vilhjálmssyni, fréttastjóra DV, og eigendum blaðsins fyrir meiðandi ummæli. Þeir vilja meina að tilgangur Inga Freys með skrifum sínum um rekstur bræðranna, meðal annars Bakkavör Holding, hafi verið að „kynda undir andúð í garð þeirra [Lýðs og Ágústs] vegna þátttöku þeirra í atvinnurekstri og atvinnuuppbyggingu hér á landi, einkum eftir einkavæðingu ríkisbankanna tveggja,“ eins og segir í stefnunni.

Kjötlím er ekki notað hérlendis

Kjötlím er ekki notað í matvælaframleiðslu hér á landi að því er Kjartan Hreinsson, sérgreinadýralæknir á sviði matvælaöryggis og neytendamála hjá Matvælastofnun, best veit.

Lovestar Andra Snæs tilnefnd

Bókin Lovestar eftir Andra Snæ Magnason hefur verið tilnefnd í Bandaríkjunum til verðlauna sem kennd eru við Philip K. Dick. Þetta kemur fram á vefsíðu Forlagsins. Um ein helstu vísindaskáldsagnaverðlaunin þar í landi er að ræða, en Dick er einn þekktasti og áhrifamesti höfundur vísindaskáldsagna í heiminum.

Þekktur barnaníðingur enn í haldi á Selfossi

Þekktur barnaníðingur, Gunnar Jakobsson, sem lögreglan í Árnessýslu handtók í gær, er enn í vörslu lögreglu, en ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir honum.

Ung stúlka slasaðist á spilakvöldi

Ung stúlka slasaðist þegar hún féll innandyra í grunnskólanum í Hveragerði í gærkvöldi og fékk þungt höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landsspítalans.

Komu í veg fyrir blóðbað í skóla í Kaliforníu

Kennara og starfsmanni menntaskóla í bænum Taft í Kaliforníu tókst að koma í veg fyrir blóðbað þegar 16 ára nemandi í skólanum réðist þar inn vopnaður haglabyssu skaut einn bekkjarfélaga sinn í gær.

Kjarasamningar ekki skýring verðbólgu

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, gefur lítið fyrir gagnrýni Þórarins G. Péturssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, á gildandi kjarasamninga frá 2011. Gylfi segir þá ekki skýra verðbólgukúfinn á árunum 2011 og 2012, hvað þá veikt gengi krónu.

Glötuðu tækifæri til að losna við bragga

Isavia féll á tíma og missti af tækifæri til að losna við bragga sem félagið mátti rífa til að rýma fyrir vélaskemmu á Reykjavíkurflugvelli. Bragginn er nú sagður stríðsminjar. Á þeirri forsendu ætti að friða flugvöllinn sjálfan, segir talsmaður Isavia.

Borgin byggir leiguhúsnæði á lóð UMFÍ við Tryggvagötu

Reykjavíkurborg hefur leyst til sín lóð UMFÍ við Tryggvagötu. Greiðir félaginu 14 milljónir í útlagðan kostnað. Lóðin verður með í plönum um eflingu almenns leigumarkaðar. Starfshópur um húsnæðismál skipaður í gær.

Dýr urðu ekki fyrir flúoreitrun

Búfénaður í grennd við álverið á Reyðarfirði hefur ekki orðið fyrir skaða vegna bilunar í mengunarbúnaði álversins. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem dýralæknirinn Freydís Dana Sigurðardóttir gerði í samstarfi við nokkrar rannsóknarstofnanir.

Risasmokkur náðist á mynd

Vísindamenn og sjónvarpsfólk segjast í fyrsta sinn hafa náð upptökum af risasmokkfiski í sínu náttúrulega umhverfi.

Stórtækasta mál sem Guðrún hjá Stígamótum hefur séð

"Ég vildi að ég gæti sagt nei,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, aðspurð um hvort að símalínur samtakanna væru enn rauðglóandi eftir umfjöllun Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson.

Hildur Lilliendahl í nærmynd

"Hún er engin öfgamanneskja, er alltaf tilbúin að hlusta á hina hliðina en er hörð á sínu." Svona lýsa nákomnir Hildi Lilliendahl sem heldur baráttu sinni áfram þrátt fyrir að hafa verið hótað barsmíðum og jafnvel lífláti á netinu.

Óskarsverðlaunadraumurinn enn á lífi

Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks hlaut ekki tilnefningu til Óskarsverðlaunanna í ár. Baltasar segir það vissulega vonbrigði að hljóta ekki tilnefningu en myndin hafi fengið mikla athygli fyrir að komast svona langt.

Tilnefningar til Óskarsverðlauna

Þær kvikmyndir sem hlotið hafa tilnefningu til Óskarsverðlauna voru kynntar í Bandaríkjunum í dag. Stórmynd Steven Spielbergs, Lincoln, fékk tólf tilnefningar.

Stefnir í inflúensufarald hér á landi

Fjöldi greindra tilfella inflúensu hefur tvöfaldast á fyrstu dögum þessa árs og segir sóttvarnarlæknir að nokkuð skæður inflúensufaraldur sé framundan. Hann hvetur fólk til að vera heima ef það finnur fyrir einkennum til að koma í veg fyrir smit.

Fórnarlamb Karls Vignis óttaðist að vera barnaníðingur - þriðja kæran barst í dag

Þrír hafa lagt fram kæru á hendur Karli Vigni Þorsteinssyni vegna kynferðisbrota. Þriðja kæran var lögð fram í dag. Maður sem Karl áreitti kynferðislega á níunda áratugnum kallar eftir málefnalegri umræðu um barnaníðinga til að þolendur þori að segja frá og þjóðfélagið sé í stakk búið til að takast á við frásagnir þeirra.

Skotárás í menntaskóla í Kaliforníu

Tveir eru sárir eftir skotárás í menntaskóla í Bakersfield í Kaliforníu á fimmta tímanum í dag. Breska ríkisútvarpið hefur eftir lögregluyfirvöldum á svæðinu að áverkar fórnarlambanna séu alvarlegir. Aldur þeirra liggur þó ekki fyrir. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa greint frá því að árásarmaðurinn sé nú í haldi lögreglu.

Biskup segir Áskirkju ekki hafa fylgt siðareglum

"Það er þyngra en tárum taki að slíkt skuli hafa viðgengist og það um áratugaskeið," segir Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, um mál Karls Vignis Þorsteinssonar, barnaníðings.

Sportbíll ársins hjá Auto Bild

Á hverju ári velja lesendur bílatímaritsins Auto Bild bíl ársins í hverjum flokki. Í flokki fjöldaframleiddra sportbíla fyrir árið 2012 völdu þeir Porsche Panamera GTS . Það merkilegasta við kosninguna er að um er að ræða fjögurra sæta fjölskyldubíl, eða forstjórabíl, sem telst óvenjulegt í sportbílaflokki. Það voru 72.500 lesendur sem nýttu rétt sinn til að kjósa og var þetta í ellefta sinn sem lesendaverðlaun Auto Bild Sportscars eru veitt. Porsche Panamera GTS er semsagt fernra dyra sportbíll. Í tungutaki Porsche stendur GTS fyrir Gran Turismo Sport og þessi merking hefur staðið fyrir ofuraflmiklum Porsche bílum allt frá hinum goðsagnakennda 904 Carrera GTS árið 1963. Panamera GTS er með aflmikilli 4,8 lítra, V8 vél sem er án forþjöppu en skilar 430 hestöflum. Hámarkstogið er 520 Nm. Veghæð bílsins er 10 mm lægri en hefðbundinn Panamera og sérhannaður sportundirvagninn er með stillanlegri loftpúðafjöðrun og Porsche Active Suspension Management (PASM). Þessi búnaðurinn gerir hann að hæfum keppnisbíl á keppnisbrautum án þess að nokkru þurfi að fórna í þægindum í daglegri notkun innan og utan borga og bæja.

Skrambi veit allt um málið

Leiðréttingarforritið Skrambi er afrakstur nokkurra rannsóknarverkefna, meðal annars meistaraverkefnis Jóns Friðriks Daðasonar tölvunarfræðings. Skrambi hlaut Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands 2012.

Sjá næstu 50 fréttir