Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mætti mótbyr annarra dómara Jón Steinar Gunnlaugsson sem nýlega lét af störfum sem dómari við Hæstarétt Íslands er í ítarlegu viðtali við sunnudagsblað Morgunblaðsins í dag þar sem hann ræðir meðal annars um samskipti sín við aðra hæstaréttardómara. Þar segir hann að sumarið sem hann var ráðinn hafi einhverjir dómaranna við réttinn reynt að fá aðra til að sækja um stöðuna til að hindra að hann yrði skipaður. Einn þeirra hafi meira að segja haft í hótunum við sig og sagði að hann yrði skaðaður með umsögn Hæstaréttar drægi hann ekki umsókn sína til baka. Þá segist hann hafa fundið fyri mótbyr og andúð annarra dómara og ákvarðanir hafi verið teknar án aðildar sinnar. 20.10.2012 09:57
Renna blint í sjóinn varðandi talninguna Þjóðaratkvæðagreiðsla um drög að stjórnarskrá fer fram í dag. Formenn yfirkjörstjórna segjast renna blint í sjóinn varðandi umfang talningar. Atkvæði verða slegin inn í tölvu í einu kjördæmi. Talningu lýkur varla fyrr en á morgun. 20.10.2012 09:00
Segir ábyrgðarlaust að gefa út atvinnuleyfi Til eru dæmi um að fólk sæki um hæli hér á landi til þess að vinna, en snúi til síns heima ef það fær ekki undanþágu á dvalar- og atvinnuleyfi. Þetta fólk ætlar að misnota kerfið, segir forstjóri Útlendingastofnunar. 20.10.2012 09:00
Grafa goshús upp og byggja hvolfþak yfir Gerður G. Sigurðardóttir varð öskuill þegar eldgos gleypti nýja húsið hennar í Vestmannaeyjum fyrir 39 árum. Nú er verið að grafa húsið upp. Það verður miðpunktur gosminjasafns. Forréttindi að sjá jörðina opnast, segir Gerður. 20.10.2012 08:00
Íslendingar óviðbúnir óvæntum hamförum Ísland er ekki nægilega undirbúið fyrir vá sem hér gæti hugsanlega riðið yfir. Landið er þó vel í stakk búið til að takast á við þekktar hamfarir. Efla þarf samstarf vísindamanna og almannavarna og gæta að mönnun á sviði björgunar. 20.10.2012 08:00
Sönn og sérstök sakamál Sakamál tengd bankahruninu eru orðin allnokkur og þeim á enn eftir að fjölga. Hæpið er að áætlanir sérstaks saksóknara um að þau verði öll um garð gengin í árslok 2014 standist. Þrír hafa hlotið fangelsisdóma í hrunmálum og tugur annarra ákærður. 20.10.2012 00:01
Igor fékk loks skó Stærsti maður Bandaríkjanna, Igor Vovkovinskiy, hefur loks fengið sína eigin tennisskó. Igor hefur beðið eftir þessu augnabliki árum saman. 19.10.2012 23:42
Vildi 60 milljónir evra í tóbaksmútur Sænska munntóbaksframleiðandanum Swedish Match bauðst í fyrra að greiða 60 milljónir evra til að geta haft áhrif á væntanlega löggjöf ESB um tóbak. Greiða átti peningana í tveimur áföngum, 10 milljónir evra beint á borðið og 50 milljónir evra eftir lagabreytingu. Þetta upplýsir upplýsingastjóri Swedish Match, í viðtali við sænska blaðið Aftonbladet. 19.10.2012 23:30
Heilastarfsemin virðist eðlileg Pakistanska stúlkan Malala Yousufzai er á hægum batavegi á sjúkrahúsi í Bretlandi, en þangað var hún flutt eftir að hún varð fyrir skotárás í heimabæ sínum í Pakistan. 19.10.2012 23:30
Facebook og Twitter hefta þroska barna Þráhyggja og skortur á sjálfsstjórn eru fylgifiskar mikillar notkunar á samskiptamiðlum á borð við Facebook og Twitter. Einna helst eru það börn sem eiga í hættu á að verða fyrir langvarandi áhrifum samfélagsmiðla. 19.10.2012 22:27
Fyrstu tölur klukkan 23:00 annað kvöld "Við gerum fastlega ráð fyrir því að talningin taki mun lengri tíma en gengur og gerist.“ 19.10.2012 21:26
Leit hafin að Jólastjörnu Íslands Á síðasta ári tóku rúmlega fjögur hundruð krakkar þátt í leitinni að Jólastjörnu Íslands. Búist er við að að fleiri taki þátt í ár. 19.10.2012 20:58
Joly segir árangur Íslands í hvítflibbabrotum einstakan á heimsvísu Eva Joly telur að árangur Íslands við rannsókn og saksókn efnahagsbrota sé einstakur á heimsvísu. Þá segist hún ástfangin af landi og þjóð og hyggst rækta tengsl sín við Ísland enn frekar. 19.10.2012 20:55
Kunnum að nýta 96% af fiskinum Fáar ef nokkrar þjóðir nýta fisk jafn vel og Íslendingar. Nýsjálendingar telja til dæmis að íslenskar aðferðir við sjávarútveg geti fært þeim milljarða árlega. Fréttastofa fór í Matís og fylgdist með verkfræðing slægja þorsk. 19.10.2012 20:34
Sekur um kynferðisbrot gegn barnungri stúlku Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn barnungri stúlku. 19.10.2012 20:19
Neita samráði um úttektargjald Viðskiptabankarnir þrír eru byrjaðir að taka sérstakt gjald fyrir úttektir úr hraðbönkum af öðrum en eigin viðskiptavinum. Þeir neita því allir að hafa haft samráð um þessa gjaldtöku. 19.10.2012 20:02
Vill að bankar hefji endurútreikning gengislána Helgi Hjörvar formaður Efnahags- og viðskiptanefndar segir bönkunum ekkert að vanbúnaði að hefja sem fyrst endurútreikning gengislána í samræmi við dóm Hæstaréttar í gær. Sérfræðingur sem reiknaði lánið upp á nýtt fyrir Borgarbyggð hvetur almenning til þess að bregðast við ef bankarnir viðurkenna ekki fordæmisgildi dómsins. 19.10.2012 19:03
Hótaði lögreglumönnum á Facebook Karlmaður á fertugsaldri var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ærumeiðandi aðdróttanir og hótanir í garð tveggja lögreglumanna. 19.10.2012 17:21
Reyndi að ræna mann í Hafnarstræti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft í nógu að snúast í dag en alls komu sex þjófnaðarmál upp í dag. 19.10.2012 18:05
Nýr formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga Gunnar Þorgeirsson, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepp var kosinn formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á ársþingi samtakanna, sem lauk í dag á Hellu. Gunnar tekur við starfinu af Elfu Dögg Þórðardóttur, sem var formaður í tvö ár. Þingið samþykkti meðal annars að leggja Atvinnuþróunarfélag Suðurlands niður frá næstu áramótum og fær þá frá sama tímabili starfsemi sjóðsins til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Gunnlaugur Grettisson, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum var kosinn nýr varaformaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga á þinginu. 19.10.2012 16:53
Úlpumaðurinn slær hafragrautsmanninum við Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á Facebook-síðu sinni að einn af þeirra allra bestu mönnum stoppaði ökumann fyrr í dag, en ástæða þess að lögreglan sá ástæðu til þess að hafa afskipti af ökumanninum var sú að sá hafði ekki verið með bílbelti við aksturinn. 19.10.2012 16:26
Bankarnir byrji samt að endurreikna lánin Bankarnir ættu strax að byrja að endurreikna öll þau lán þar sem fullnaðarkvittanir liggja fyrir og ljóst er að fólk og fyrirtæki hafa staðið í skilum með lán sín. Þetta segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Hæstiréttur dæmdi í gær að óheimilt væri að reikna vexti afturvirkt af ólöglegum gengislánum, ef fullnaðarkvittanir lægju fyrir. Talið er að dómurinn feli í sér mikilvæg skilaboð um það hvernig bankarnir eigi að haga endurútreikningi slíkra lána. 19.10.2012 16:22
Fimm nýir dómarar munu bætast við Héraðsdóm Reykjavíkur Innanríkisráðuneytið auglýsir í dag lausar stöður fimm héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Tveir dómarar verða skipaðir með fast sæti við dóminn en þrír dómarar verða settir tímabundið. Gert er ráð fyrir að dómararnir hefji störf um næstu áramót. Samkvæmt upplýsingum á vef Héraðsdóms Reykjavíkur eru á þriðja tug dómara starfandi við réttinn. 19.10.2012 15:51
Enn er leitað að Rebekku Rut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Rebekku Rut Baldvinsdóttur, 15 ára. Rebekka Rut er um 156 sentimetrar á hæð með sítt skollitað hár og grannvaxin. Samkvæmt nýjustu upplýsingum var Rebekka klædd í svartar buxur, hvítan stuttermabol og bleikan hlýrabol. 19.10.2012 15:35
Fágætt viðtal við frænda leiðtoga Norður-Kóreu Frændi leiðtoga Kim Jong-Un, leiðtoga Norður-Kóreu, kom fram í viðtali í Bosníu, þar sem hann stundar nám þessa stundina. Frændinn, sem heitir Kim Han-sol er sautján ára gamall og ólst meira eða minna upp í Maká og Kína. Faðir hans, Kim Jong-nam er bróðir Kim Jong-il hins alræmda einræðisherra Norður-Kóreu, sem lést í desember á síðasta ári. 19.10.2012 15:19
Dómurinn kostar bankana tugi milljarða Landsbankinn segir jákvætt að gengið hafi dómur sem varpi frekari ljósi á það hvernig Hæstiréttur telur að standa eigi að endurreikningi gengistryggðra lána. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bankinn sendi frá sér í dag í tilefni af dómi Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. 19.10.2012 15:14
Vilja að íslensk stjórnvöld dragi lærdóm af hryðjuverkunum í Noregi Aðalfundur Lögreglufélags Austurlands, samþykkti á aðalfundi sínum, sem haldinn var á Seyðisfirði í gær, að skorar á stjórnvöld að bregðast ekki þeirri frumskyldu sinni að vernda og þjóna þegnum landsins, eins og það er orðað í áskoruninni. 19.10.2012 14:11
Björgunarsveitin á forsíðu símaskrárinnar Í dag var skrifað undir samkomulag þess efnis að næsta bindi Símaskrárinnar verði helgað sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Forsíðan hefur á stundum verið heldur umdeild, meðal annars prýddi Egill Gilzenegger Einarsson forsíðuna í eitt skiptið. Þá myndskreytti Hugleikur Dagson forsíðuna um árið. 19.10.2012 13:26
Er Stangaveiðifélagið að missa Norðurá? Veiðifélag Norðurár hefur hafnað ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur um lækkun á leiguverði. Þar með er ljóst að 66 ára samstarfi þessara aðila lýkur næsta sumar. Vefsíða Skessuhorns greinir frá þessu. 19.10.2012 13:18
Gylfi Arnbjörnsson endurkjörinn forseti - Kosið um varaforseta Gylfi Arnbjörnsson var endurkjörinn forseti ASÍ nú í hádeginu. Hann fékk mótframboð frá Ragnari Þór Ingólfssyni, stjórnarmanni í VR, Gylfi fékk um 69% atkvæða en Ragnar fékk 31% atkvæða. 19.10.2012 12:37
Grásleppukarlar í vanda vegna evrukreppunnar Kreppa er orðin á hrognamarkaði í heiminum og er fjórðungur allra grásleppuhrogna af síðustu vertíð hérlendis óseldur. Grásleppusjómenn vilja dregið verði úr veiðunum um þirðjung á næsta ári til að bregðast við ástandinu. 19.10.2012 12:07
Greiðir atkvæði gegn tillögum stjórnlagaráðs Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi ráðherra, ætlar að greiða atkvæði gegn frumvarpi stjórnlagaráðs á morgun. Hann er ósáttur við ákvæði í frumvarpinu um þjóðaratkvæðagreiðslur og takmarkanir á heimildum til útlendinga um kaup á fasteignum og atvinnufyrirtækjum. 19.10.2012 11:59
Jan Mayen-áform Noregs spennandi fyrir Íslendinga Áform Norðmanna um að opna sinn hluta Jan Mayen-svæðisins til olíuleitar gætu haft verulega þýðingu fyrir Íslendinga, bæði vegna samningsákvæðis um fjórðungshlut Íslands, en einnig vegna nálægðar við Drekasvæðið. Norsk stjórnvöld hófu í vikunni opið umsagnarferli vegna umhverfismats við Jan Mayen en þetta er liður í þeirri stefnumörkun þeirra að opna svæðið til olíuvinnslu. Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Ola Borten Moe, fylgdi þessari ákvörðun úr hlaði með yfirlýsingu um að við Jan Mayen gætu verið verulegar olíu- og gaslindir. Frestur er veittur fram í janúar til að skila inn athugasemdum en þegar umhverfismatinu lýkur hyggst ríkisstjórn Noregs leggja áætlun fyrir norska stórþingið þar sem nánar verður mælt fyrir um olíuleitina. Íslendingar hafa sérstaka ástæðu til að fylgjast grannt með hvaða stefnu Norðmenn taka því ákveði þeir að hefja olíuleit sín megin á Jan Mayen-hryggnum má telja líklegt að athygli olíuiðnaðarins muni jafnframt beinast að Drekasvæðinu, þeim hluta sem er Íslandsmegin. Þá hafa Íslendingar einnig beinna hagsmuna að gæta, hefji Norðmenn olíuleit þarna, því Jan Mayen-samkomulag þjóðanna veitir Íslendingum rétt til 25 prósenta hlutdeildar í olíuleit og vinnslu á stóru svæði Noregsmegin miðlínunnar. 19.10.2012 11:45
Ragnar Þór býður sig fram gegn Gylfa Ragnar Þór Ingólfsson, Stjórnarmaður VR, hefur tilkynnt kjörstjórn ASÍ að hann hyggist bjóða sig fram gegn Gylfa Arnbjörnssyni, forseta sambandsins, á fjölmennu þingi sem stendur nú yfir. Kosningin mun fara fram á milli 11:00 og 12:00 en hún verður leynileg. Um 300 fulltrúar 51. stéttarfélags eru á þinginu, þar af eru VR með flesta fulltrúa. 19.10.2012 10:50
Um 600 manns á fundi Landsbjargar Slysavarnafélagið Landsbjörg býst við að um 600 manns verði viðstaddir alþjóðlegu ráðstefnuna Björgun á Grand hóteli Reykjavík um helgina, en þetta er ein af stærstu ráðstefnunum í björgunargeiranum í heiminum. Í tilkynningu sem barst frá Landsbjörg í morgun segir að hátt í 60 fyrirlestrar verði fluttir á ráðstefnunni. Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, flytur opnunarfyrirlesturinn. Í honum mun Víðir fjalla um hvort Íslendingar eru undirbúnir undir hamfarir sem geta orðið og hvort hægt sé að nýta þá reynslu sem þegar hefur safnast, t.d. í eldgosum síðustu áratuga og stórum jarðskjálftum. 19.10.2012 10:42
Efnahags- og viðskiptanefnd fundar klukkan eitt Efnahags- og viðskiptanefnd mun funda klukkan eitt í dag til þess að fara yfir vaxtadóm Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Dómurinn kveður á um að bankarnir megi ekki reikna vexti afturvirkt. Um leið og hann var kveðinn upp kallað Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, til fundar í henni. Þangað munu mæta fulltrúar frá Samtökum fjármálafyrirtækja og viðskiptabönkunum þremur, Umboðsmanni skuldara, Hagsmunasamtökum heimilanna, Samtökum lánþega og Borgarbyggðar. Þá mun Ása Ólafsdóttir lektor einnig verða á fundinum. 19.10.2012 10:32
Leggjast gegn stofnun atvinnumáladeildar Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins leggst gegn tillögu borgarstjórans, Jóns Gnarr, um að stofna sameiginlega atvinnumáladeild hjá borginni. Í bókun Sjálfstæðisflokksins, sem lögð var fram á borgarráðsfundi í gær, kom fram að að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, geti ekki fallist á að það sé gert með þeim hætti sem borgarstjórinn leggur tillöguna fram. 19.10.2012 10:11
Leyfa rækjuveiðar í Skjálfanda og Arnarfirði Hafrannsóknarstofnun hefur lagt til að leyfilegt verði að veiða 400 tonn af rækju í Skjálfanda á þessu fiskveiðiári og 450 tonn í Arnarfirði. Hinsvegar verði áfram bann við rækjuveiðum í Ísafjarðardjúpi og Axarfirði. 19.10.2012 09:08
Líkur á blóðregni í Danmörku í dag og á morgun Veðurstofa Danmerkur hefur sagt Dönum að í dag og á morgun gætu þeir upplifað afar sjaldgæft veðurafbrigði sem kallast blóðregn, það er að það rigni rauðum dropum víða um landið. 19.10.2012 06:53
Rwanda náði sæti í öryggisráðinu en ekki Finnar Fimm þjóðir voru kosnar til næstu tveggja ára í lausasætin í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í gær þar á meðal Rwanda. 19.10.2012 06:49
Um 30 lömb drápust þegar flutningabíll valt á hliðina Um það bil 30 lömb drápust þegar stór fjárflutningabíll valt á hliðina út af Hróarstunguvegi, milli Lagarfljóts og Jökulsár á Dal á Austurlandi í gærkvöldi, en hátt í 300 lömb voru í tengivagninum. 19.10.2012 06:47
Ágóðinn af kannabisrækt fór til fátækra í Kenýa Ensk bændahjón á sjötugsaldri í Englandi hafa verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir umfangsmikla kannabisrækt á bóndabæ sínum. 19.10.2012 06:45
Saksóknari Alþingis kostaði tæplega 67 milljónir Kostnaður vegna saksóknara Alþingis í landsdómsmálinu gegn Geir Haarde nam tæplega 67 milljónum króna frá árinu 2010 og þar til í mars í ár. 19.10.2012 06:40
Þrjú gráhærð mótorhjólagengi upprætt í New York Lögreglan í New York hefur upprætt þrjú gráhærð mótorhjólagengi í Brooklyn en allir meðlimir þeirra eru komnir á sextugsaldurinn eða eldri. 19.10.2012 06:36
Tveimur erlendum stúlkum bjargað úr hlíðum Kistufells Björgunarsveitarmenn frá Bolungarvík komu í gærkvöldi tveimur erlendum stúlkum til bjargar, sem voru í vandræðum í hlíðum Kistufells í botni Súgandafjarðar. 19.10.2012 06:30