Neita samráði um úttektargjald Erla Hlynsdóttir skrifar 19. október 2012 20:02
Viðskiptabankarnir þrír eru byrjaðir að taka sérstakt gjald fyrir úttektir úr hraðbönkum af öðrum en eigin viðskiptavinum. Þeir neita því allir að hafa haft samráð um þessa gjaldtöku. Það er af sem áður var þegar hægt var að fara í hvaða hraðbanka sem er og taka út pening, án þess að greiða fyrir það aukagjald. Íslandsbanki tekur lægsta gjaldið, 95 krónur. Þá kemur Arionbanki með 110 krónur. Hæsta gjaldið er síðan hjá Landsbankanum, 150 krónur. Fréttastofa hafði samband við þessa þrjá banka í dag og fengust þau svör að gjaldið væri tekið upp til að mæta kostnaði við rekstur bankanna, og að samskonar gjald sé við lýði víða um heim. Ítrekað skal að það kostar ekkert fyrir viðskiptaavini að nota hraðbanka eigin viðskiptabanka. Við fórum á stúfana í dag og byrjuðum í höfuðstöðvum Arionbanka í Borgartúni, með debetkort frá Íslandsbanka. Þegar útttekt hafði verið samþykkt birtist þessi tilkynning að 110 króna gjald yrði tekið, og viðskiptavini gefinn kostur á að halda áfram, eða hætta við. Næsti viðkomustaður var Íslandsbanki við Lækjargötu, með debetkort frá Landsbankanum. Engin tilkynning kom um að gjaldfært yrði fyrir úttekt og fengust þær skýringar að enn væri verið að innleiða kerfið og uppfæra hugbúnað í hraðbönkunum. Ef engin tilkynning kemur, er ekki tekið gjald. Það var sama sagan í Landsbankanum á Laugavegi. Engin tilkynning, ekkert gjald. Gert er ráð fyrir að uppfærsla hraðbankanna ljúki á næstu vikum. Athygli vekur að innleiðing kerfisins stendur yfir hjá öllum bönkunum á sama tíma. Spurðir hvort þarna hafi verið um samráð bankanna að ræða fékkst einfalt svar: Nei.
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Fleiri fréttir Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Sjá meira