Renna blint í sjóinn varðandi talninguna 20. október 2012 09:00 Endanleg úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggja ekki fyrir fyrr en á morgun. Utankjörfundaratkvæði eru talin síðast. Frá utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Laugardalshöll. fréttablaðið/vilhelm
Þjóðaratkvæðagreiðsla um drög að stjórnarskrá fer fram í dag. Formenn yfirkjörstjórna segjast renna blint í sjóinn varðandi umfang talningar. Atkvæði verða slegin inn í tölvu í einu kjördæmi. Talningu lýkur varla fyrr en á morgun.FréttaskýringHvenær verða úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar ljós? Þriðja þjóðaratkvæðagreiðslan á lýðveldistímanum fer fram í dag. Alls hafa Íslendingar átta sinnum gengið að kjörborðinu í þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst árið 1908 um áfengisbann. Fyrirkomulag kosninga og talning atkvæða er á hendi yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi fyrir sig. Talningin er óvenju flókin að þessu sinni þar sem hver atkvæðaseðill er í raun sexgildur. Hvern seðil þarf því að telja sex sinnum. Í Norðausturkjördæmi verður sá háttur hafður á að atkvæðin á hverjum seðli verða slegin inn í tölvu. Búnt með 200 seðlum verða slegin inn og samtala þeirra skráð. Þannig vonast Páll Hlöðversson, formaður yfirkjörstjórnar, til að spara tíma. „Við teljum að þetta spari vinnu en vitum ekki enn hvort við höfum rétt fyrir okkur, það er ekki komin reynsla á þetta. Það hafa verið gerðar prufur og ég held að við munum einnig gera stikkprufur á hinn veginn og athuga hversu rétt þetta er.“ Með þessu fást fyrstu tölur úr öllum spurningum samtímis. Talningin öll gæti hins vegar staðið fram á sunnudag. Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hins vegar að fallið hafi verið frá þessari aðferð, að slá atkvæðin inn í tölvur. Þess í stað verði hver seðill talinn sex sinnum. Hún segir tölvuinnslátt hafa verið reyndan en það hafi ekki gefið góða raun. „Þetta gaf ekki nógu áreiðanlega útkomu og það kom svolítið af villum. Mitt mat var að sú leið væri ekki fær nema með tvítalningu og þá er ávinningurinn af tölvuleiðinni horfinn.“ Katrín á von á að búið verði að telja 75-80% svara við fyrstu spurningunni um ellefu í kvöld. Hið sama á við um Reykjavíkurkjördæmi suður að sögn Sveins Sveinssonar, formanns yfirkjörstjórnar. Allir seðlar verði taldir sex sinnum, byrjað verði á fyrstu spurningu og svo fari hver seðill aftur í flokkun og talningu. Ríkarður Másson, formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, segir ekki um annað að ræða en að telja hvern seðil sex sinnum. Hann á von á fyrstu tölum upp úr miðnætti. „Við rennum þó blint í sjóinn með það,“ segir Ríkarður. Nákvæmlega sama orðalag notuðu þeir Sveinn og Páll. Formennirnir eru sammála um að standi talningin langt fram á morgun verði talningafólkið sent heim til að hvílast og talning hefjist aftur að nýju á morgun. Því getur orðið nokkur bið á að niðurstöður liggi fyrir að fullu. Ríkisútvarpið verður með aukafréttatíma í sjónvarpi í kvöld vegna kosninganna og hægt er að fylgjast með fyrstu tölum á Vísi. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Sjá meira