Innlent

Vill að bankar hefji endurútreikning gengislána

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar formaður Efnahags- og viðskiptanefndar segir bönkunum ekkert að vanbúnaði að hefja sem fyrst endurútreikning gengislána í samræmi við dóm Hæstaréttar í gær. Sérfræðingur sem reiknaði lánið upp á nýtt fyrir Borgarbyggð hvetur almenning til þess að bregðast við ef bankarnir viðurkenna ekki fordæmisgildi dómsins.

Hæstiréttur dæmdi í gær í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka að óheimilt væri að reikna vexti afturvirkt af ólöglegum gengislánum, ef fullnaðarkvittanir lægju fyrir. Aðilar málsins voru kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar í dag þar sem farið var yfir dóminn og afleiðingar hans. Formaður nefndarinnar segir að dómurinn hafi skýrt mörg álitamál sem talið hafði verið að reka þyrfti mörg flókin prófmál til að komast að niðurstöðu um.

„Þar með er auðvitað grríðarlega skýrt til hverra dómurinn nær og hvernig eigi að reikna út úr þessu," segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar.

Helgi segir niðurstöðuna því skýra:

„Ég tel að bönkunum sé ekkert að vanbúnaði að hefja endurútreikninga strax. Fyrir þá sem það nær til."

Helgi segir að það geti verið áhöld um skemmri samninga en von sé á dómum um slík mál fyrir jól.

„Ég held að bankarnir gerðu best í því að endurreikna líka skemmri lánin og vera einfaldlega tilbúin með endurútrekinga á því ef það verður staðfest að tímalengdin ráði ekki örlögum í þessu máli."

Í tilkynningum frá Arion banka og Landsbanka sem bárust í dag segir að enn séu nokkur álitaefni sem þurfi að útkljá áður en endurútreikningur geti hafist. Þessu er Guðmundur Ingi Hauksson hjá Veritas ráðgjöf ekki sammála en hann er maðurinn sem reiknaði lánið upp á nýtt fyrir Borgarbyggð og Hæstiréttur dæmdi þeirri leið í vil í gær. Guðmundur er sammála Helga í því að dómurinn í gær eyði flestum óvissuatriðum og að bankarnir geti þegar hafið endurútreikning.

„Núna liggur bara fyrir að hefja þann endurútreikning að nýju, með Veritas leiðinni," segir Guðmundur.

Hann hvetur almenning til þess að bregðast við ef bankarnir ætli ekki að viðurkenna fordæmisgildi dómsins.

„Þá held ég að það sé augljóst að almenningur verði að taka sig saman við að þrýsta á bankanna og stefna þeim. Það mun koma efnahagslífinu aftur af stað í stað þess að fresta málinu í tvö ár í viðbót."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×